02.05.1927
Efri deild: 63. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1395 í B-deild Alþingistíðinda. (1192)

21. mál, fjárlög 1928

Magnús Kristjánsson:

Jeg skal fúslega játa, að starf hv. fjvn. er bæði erfitt og vanþakklátt, en hún má ekki búast við, að allir geti verið ánægðir með þær niðurstöður, sem hún hefir komist að.

Jeg hefi ætlað mjer að minnast á ýmsa liði, þar sem mjer hefir fundist sparnaður hennar ganga í öfuga átt. En nú hefir verið tekið af mjer ómakið með sumt, svo að það er fáu einu við að bæta, enda hefi jeg enga tilhneigingu til þess að lengja umræðurnar að óþörfu. Þó að viðleitni nefndarinnar til að spara sje virðingarverð, þá verð jeg að segja, að því víkur óþægilega við, þegar um er að ræða verklegar framkvæmdir. Þegar verið er að klípa utan úr litlum upphæðum til ýmissa fyrirtækja, þá getur jafnvel farið svo, að það, sem áður er lagt í verkið, komi ekki að fullum notum. Ef farið er eftir ráðum hv. fjvn. í þessu efni, þá getur það ekki einungis valdið því, að það, sem áður er gert, komi ekki að fullum notum, heldur getur það orðið til skaða, ef ganga þarf frá verkinu hálfgerðu. Jeg á hjer við sparnaðartill. nefndarinnar til verklegra framkvæmda yfirleitt, og mun jeg með atkvæði mínu sýna, hvernig jeg lít á hverja einstaka þeirra.

Þá vil jeg aðeins minnast á 12. brtt. á þskj. 449 við 12. gr., 19, gr. þar hafði Nd. lagt það til, að Jóni Kristjánssyni veitingamanni á Akureyri yrðu veittar 1000 kr. sem lítilfjörlegar bætur fyrir það mikla tjón, er hann varð fyrir vegna sóttvarnarráðstafana á sínum tíma.

Jeg býst við, að það stafi af ókunnugleika hjá nefndinni, að hún vill, að þessi liður verði feldur niður. Það verður að gæta að því, að hversu tilfinnanlegt sem það kann að vera fyrir ýms heimili, sem verða fyrir því sama, þá er það svo miklu tilfinnanlegra fyrir þann, sem stundar þennan atvinnurekstur. Þessi litla upphæð gerir auðvitað lítið til þess að bæta hið mikla tjón, sem hann beið. Slíkar stofnanir bíða þess aldrei bætur, þegar veikindi koma þar inn, því það dregur úr aðsókninni, og jeg vil segja, að þetta veitingahús beri þess merki enn. Mjer finst því varla þess vert að hafa af manni þessum þessa litlu upphæð.

Þá er hjer 58. brtt., við 16. gr., 24. lið. Jeg álít það muni í raun og veru stafa af misskilningi, að háttv. nefnd hefir borið fram þessa till. Eins og allir vita, er það viðurkent hið mesta nauðsynjamál að gera alt, sem hægt er, til þess að afla afurðum okkar sem bestra söluskilyrða. Háttv. Nd. gerði talsverðar tilraunir í þá átt. Hv. sjútvn. í Nd. hafði málið til meðferðar, rannsakaði það til hlítar og komst að þeirri niðurstöðu, að 30 þús. kr. alls til markaðsleitar erlendis fyrir aðalafurðir okkar væri sú minsta upphæð, sem frambærilegt væri, að hún legði til, að þingið veitti í þessu skyni. Ennfremur taldi nefndin nauðsynlegt að liða upphæðina sundur, þannig, að ákveðið væri, hversu miklu skyldi verja til markaðsleitar á hverjum stað og fyrir hverja aðalvörutegund, er hjer um ræðir. En háttv. fjvn. Ed. hefir þóknast að gerbreyta þessu. Jafnvel þótt hún leggi til nærri sömu upphæð og háttv. Nd., eftir að búið var að klípa af fjárveitingunni þar, þá er það mikill galli, að hún hefir slengt saman í eitt upphæð, sem er tvískift í frv. eins og það liggur fyrir. Það má ekki eiga sjer stað, að svo verði frá fjárveitingunni gengið sem till. fer fram á. Jeg vænti þess, að háttv. fjvn. geri þessa till. ekki að kappsmáli. Jeg þykist hafa reynt að kynna mjer þetta atriði, og jeg þykist hafa þekkingu og reynslu í þessum sökum, þar sem jeg hefi fengist við þennan atvinnurekstur milli 30 og 40 ár, og mjer er það ljóst, að nauðsyn ber til, að fyrirkomulaginu verði hagað sem næst því, er háttv. sjútvn. Nd. hefir lagt til. Jeg hefi ekki heyrt, hvorki frá háttv. frsm. nje öðrum í nefndinni, nein rök fyrir því, að nokkuð sje unnið við þessa breytingu. Að vísu er lauslega á það drepið í nál., en ekki tel jeg þau rök, er þar koma fram, fullnægjandi. Því er nú einu sinni svo varið, að þessum fjárveitingarlið verður að skifta í tvent.

Það má ganga út frá því sem gefnu, að sú upphæð, sem ætluð er til að leita markaðs fyrir fisk í Suður-Ameríku, beri ekki sýnilegan árangur í fljótu bragði. Alt fyrir það er sjálfsagt að hefjast handa, en ekki má búast við verulegum eftirtekjum í náinni framtíð. Það geta liðið allmörg ár þangað til þessi viðleitni, sem nú er verið að styrkja, ber ávöxtu til heilla landi og þjóð. Vænti jeg þess, að á sínum tíma þurfi enginn að sjá eftir, að til þessarar viðleitni gangi sú upphæð, er háttv. Nd. ætlast til.

Hinn liðurinn, sem ætlaður er til markaðsleitar fyrir síld í Mið-Evrópu eða þeim löndum, þar sem vænlegt er um árangur, t. d. í Frakklandi, máske í Finnlandi, honum er svo varið, að jeg er ekki í vafa um, að það er beinlínis búhnykkur að leggja fram í þessu skyni fje það, er þar er gert ráð fyrir. Því að eins og allir vita, er tollur á þessari vöru svo hár að salan þarf ekki að aukast ýkjamikið til þess, að ríkissjóður verði skaðlaus. En búast má við, að þessi upphæð beri margfaldan ávöxt og ríkissjóði áskotnist drjúgar tekjur af aukinni síldarsölu. Segjum, að salan ykist um 10 þús. tunnur. Tollar af þeim nemur 15 þús. kr. Þá hafa þegar áunnist 5 þús. kr. Þegar þessa er gætt, ætti öllum að vera ljúft að láta eitthvað af hendi rakna til stuðnings þeim atvinnuvegi, sem ber hæsta skatta og tolla, tífalt og jafnvel tvítugfalt við aðrar sambærilegar atvinnugreinir. Það er ekkert smáræði fyrir atvinnurekendur, sem þessa atvinnu stunda, að greiða kr. 1.50 í toll af hverri síldartunnu, þótt þeir hafi jafnvel stórtjón af atvinnurekstrinum að öðru leyti. Kröfur úr þessari átt eru fullkomlega rjettmætar. Það fer eftir undirtektum þingsins í þetta mál, hvort hin megna óánægja, sem komið hefir í ljós út af þungum og óbærilegum álögum, sem íþyngja þessum atvinnuvegi, á að haldast ellegar ekki. Mjer þykir ekki þurfa að fjölyrða um þetta frekar. Háttv. þm. virðast líka hafa tilhneigingu til þess að vera alstaðar annarsstaðar en þeir eiga að vera, svo að það þýðir ekkert að tala fyrir fólki, sem ekki gerir skyldu sína. En jeg vona samt, að allir þeir að minsta kosti, sem heyra mál mitt, sannfærist um það, að þessi 58. brtt. sje óþörf og skaðleg, og jeg hygg, að hv. fjvn. þurfi ekki að taka sjer nærri, þótt hún verði feld. Jeg ætla ekki að ámæla hv. nefnd, því að jeg álít þetta stafa af því, að hún hefir ekki haft tækifæri til þess að kynna sje málavöxtu. En jeg skora fastlega á háttv. deild að samþykkja ekki þessa till., heldur láta liðina standa óhreyfða, eins og þeir eru í frumvarpinu. Jeg tel mig ekki hafa farið neitt ósanngjarnlega að hv. fjvn. og vona því líka, að hún líti á bendingar mínar með fullri sanngirni.

Áður en lýkur þarf jeg að segja fáein orð um eina brtt. á þskj. 472. Það er XXV. brtt., við 18. gr. — Það er ekki alveg nýtt, að á mál þetta sje minst. Svipuð till. þessari hefir legið tvisvar eða þrisvar áður fyrir hv. Ed., en fallið með eins atkvæðis mun eða jöfnum atkvæðum. Að minni hyggju er það sönnun þess, að nokkuð mikill hluti hv. þm. í deildinni telji hana eiga rjett á sjer.

Þessi maður, sem í till. er nefndur, var starfsmaður landssímans um mörg ár, — jeg man ekki, hvort hann var það frá upphafi, en víst milli 10 og 20 ár. Og hjer liggja nú fyrir ummæli starfsmanna landssímans, sem þessu máli eru kunnugir, að þessi umræddi maður hafi verið starfi sínu vel vaxinn og rækt það með alúð og skyldurækni. Jeg ætla ekki að fara fram á það við hæstv. forseta að fá að lesa upp þessi skjöl. Ef á þarf að halda, mun jeg grípa til þeirra. En jeg læt þau eiga sig fyrst um sinn. Þessi maður, Eggert Stefánsson, hefir orðið fyrir því óláni að komast í ósátt við ýmsa af samstarfsmönnum sínum og það einmitt þá þeirra, sem miklu hafa verið og eru ráðandi innan símamannastjettarinnar og hafa með stofnun fjelagsskapar meðal starfsfólks símans og úthaldi blaðs skapað sjer aðstöðu til þess að halda á lofti og útbreiða skoðanir sínar. Þessir starfsmenn virðast hafa lagt alt kapp á að spilla áliti og mannorði þessa manns. Orsakir eru þær, að innan starfsmannaflokks símans hefir, sem kunnugt er, reyndar ekki frá upphafi, en síðan 1914, bólað nokkuð á uppreisnaranda og hvað eftir annað soðið upp úr og verið hafðar í frammi megnar verkfallshótanir. Allir vita, hversu hættulegar afleiðingar það hefði getað haft, ef þessar hótanir hefðu verið framkvæmdar.

Þessi maður, sem jeg hefi nefnt, taldi það skyldu sína að vinna á móti þessum uppþotsviðbúnaði, ef jeg mætti svo segja. Fyrir þær sakir hafa þeir starfsmenn, er fremstir stóðu í flokki, lagt slíkt hatur á hann, að þeir hafa ekki lint látum fyr en þeir höfðu ófrægt hann svo mjög við yfirboðara hans, að honum var vikið úr stöðu sinni. Jeg verð að segja, að það hafi verið mjög ófyrirsynju, því að enda þótt því verði ekki neitað, að eitt var hægt að finna þessum manni til ámælis, — hann er sem sje nokkuð vínhneigður, — þá voru þó ekki meiri brögð að því en svo, að yfirboðarar hans höfðu veitt honum sæmilega stöðu úti á landi og þar með viðurkent starfshæfileika hans. Hjelt hann sjer þá algerlega frá vínnautn um eins árs skeið, og er jeg sannfærður um, að framhald hefði orðið á þeirri hófstillingu, ef hann hefði fengið að vera áfram í þeirri stöðu. En er búið var að ræna hann starfi sínu, — liggur mjer við að segja, — og eyðileggja álit hans, sótti aftur í sama horf um vinfengi hans við Bakkus, og varð það tilefni þess, að honum var vikið frá símanum.

Nú hefir berlega komið fram sú skoðun hjer á þingi, að rjett sje að sýna langlundargerð og umburðarlyndi starfsmönnum ríkisins, þótt í fari þeirra finnist breyskleiki sá hinn sami og þessum manni var gefinn að sök. Í samræmi við þá skoðun leyfi jeg mjer að vænta þess, að hv. deild álíti rjett að viðhafa þá sömu aðferð gagnvart þessum ógæfusama manni.

Jeg álít í raun og veru æskilegast, að þessi fjárveiting þyrfti aldrei að koma til framkvæmda, heldur sæju þeir, sem ráðin hafa, svo um, að þessum manni yrði aftur veitt starf við landssímann. Það væri besta lausn málsins og sanngjörnust. — Jeg er óhræddur um, að hann reynist ekki fær til þess að leysa starf sitt af hendi. Því að hefði þetta ólán ekki hent hann, er mjer kunnugt um, að ekki voru meiri brögð að vínnautn hans en svo, að hann hefði vel getað gegnt starfi sínu áfram og ekki miður en gerist upp og ofan um aðra starfsmenn símans.

Verður nú að skeika að sköpuðu, hvort háttv. deild vill sjá sóma sinn í að bæta að nokkru fyrir þá ómannúðlegu meðferð, sem þessi maður hefir orðið fyrir. Annað samskonar tilfelli hefir komið fyrir, þar sem manni þeim, sem talinn var hafa orðið fyrir misrjetti, var bættur skaðinn. Munu háttv. þm. minnast Petersens í Vestmannaeyjum, sem þjarkað var um á þingi svo árum skifti. Jeg er sannfærður um, að hans málsstaður var þó ekki betri en svo, að hafi verið rjettmætt að veita honum, sem einum af starfsmönnum ríkisins, 10 þús. króna uppbót fyrir ómannúðlega meðferð, þá sje þessi till. því rjettmætari sem hún er hreint lítilræði að fjárkröfu til, samanborið við fordæmið.

Þar við bætist, að þessi maður má skoðast sem nokkurskonar píslarvottur. Það er eftirtektarvert, að þetta hefir hann orðið að líða af því, að hann taldi það skyldu sína gagnvart þjóðfjelaginu að vera á verði gegn því, að óbilgjarnir samstarfsmenn með yfirgangi og frekju bökuðu landinu ófyrirsjáanlegt tjón, ef þeir hefðu fengið vilja sínum framgengt, með því að undirbúa verkfall við símann oftar en einu sinni.

Ef til andmæla kemur, mun jeg hjer nokkru við bæta. Jeg vona, að til þess komi ekki. Jeg hefi ekki ætlað mjer að nefna nein nöfn og geri ekki að svo komnu máli. En svo getur þó farið, að jeg neyðist til þess, ef till. verður þunglega tekið.