03.05.1927
Efri deild: 64. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í B-deild Alþingistíðinda. (1201)
21. mál, fjárlög 1928
Jónas Jónsson:
Mjer skilst, að talsverð mistök sjeu orðin í starfi hv. fjvn., ef marka má af þeim Aron, er hún hefir valið til að túlka sitt mál við deildarmenn. Það er sagt, að hann sje stundum í því ástandi, að hann sjái 11 þar sem 1 á að vera, og er það ekki ótrúlegt eftir þeim glundroða, sem var á framsöguræðu hans, er hann virtist jafnvel mæla með þeim tillögum, sem nefndin er á móti. Það er eins og segir í fornsögunum, að „mikil raun er að ferðast milli svo heimskra þjóða;“ — það hlýtur að hafa verið mikil neyð, er kom hv. form. fjvn. (JóhJóh) til að hliðra sjer hjá að bera sjálfur vopnin að þessu sinni, en fá þau í hendur slíkum amlóða, sem hefir sýnt sig vanfæran til að bera bæði sverð og skjöld.
Út af tveim vegum, sem nefndin vill skera niður, veginum yfir Hólmaháls og Vesturlandsveginum, vil jeg gera nokkrar athugasemdir. Hv. frsm. taldi tvær ástæður til að lækka styrk til þessara vega. Fyrst var sú, að sjálfsagt væri að lækka styrk til þessara vega eins og annara framkvæmda. En þar er þess að gæta, að ólíkt minna hefir hingað til farið af landssjóðsfje til vegalagninga í Suður-Múlasýslu eða Dalasýslu heldur en t. d. í Rangárvallasýslu. par er mikill munur á. Það sje mjög fjærri mjer að vilja telja eftir viðgerðina á Holtaveginum, en mjer er ekki kunnugt um, að í mörg ár hafi verið lagður nokkur vegarspotti um Suður-Múlasýslu fyrir landsins fje. Er því ákaflega hart að vera með eftirtölur á öðru eins lítilræði og þessu. Sama máli er að gegna um Dalasýslu. Hún hefir verið mjög afskift árum saman. Hin röksemdin hjá hv. frsm. gegn þessum vegum var sú, að vegamálastjóri hefði ekki lagt með þeim og þeir væru komnir í fjárlagafrv í trássi við hann. Þetta er líkara því, að það sje mælt í draumi heldur en í vöku. Hv. frsm. hefir alveg haft endaskifti á valdaskiftingunni í þessu landi. Eða ímyndar hann sjer, að embættismaður, undirmaður Alþingis, eigi að ráða því, hvaða vegir eru lagðir? Nei, það er til minkunar og skaða, hvað slíkir undirmenn hafa leyft sjer að sýna mikla samúð og andúð á ýmsum sviðum og þannig gert tilraunir til að hrifsa til sín völdin. Það lítur annars helst út fyrir, að hv. frsm. haldi, að við lifum undir embættismannastjórn eins og á 18. öld. Og eftir öllu sálarástandi hv. þm. (EJ) mætti vel ætla, að hann hafi ekki fylgst betur með.
Hv. frsm. (EJ) sagði, að ekki væru margar brýr, sem tengdu okkur saman. Ekkert mun jeg játa með ljúfara geði en að þarna hafi hann sagt rjett frá. Það skilur okkur altof mikið af öllum þeim eiginleikum, sem móta menn, til þess að nokkur samvinna sje hugsanleg milli okkar. Það eru ekki aðeins lífsskoðanir, heldur og alt annað. Jeg hefði t. d. aldrei getað hugsað mjer, að maður á menningarstigi hv. frsm. næði kosningu á þing, og þá þaðan af síður, að hann yrði kjörinn framsögumaður sæmilega virðulegrar nefndar. Enda hefir hv. meiri hl. fjvn. orðið hált á því kjöri, því að ekki munu dæmi til annarar eins frammistöðu af hálfu frsm. í stórmáli.
Annars er eitt atriði í ræðu hv. frsm., sem jeg vil viðurkenna og er glaður að fá tækifæri til að viðurkenna. Það eru þau ummæli, er hann hafði um þingsystur sína, háttv. 2. landsk. (IHB), að hún væri ekki lakari þingmaður en hver karlmaður, sem hjer á sæti. Já, það er t. d. ekki sambærilegt, hve mjög hún er þarfari og nýtari en háttv. 2. þm. Rang. (EJ). Í raun og veru er móðgun að nefna þau saman, því að hann er svo miklu neðar en alt það, sem íhaldið hefir leyft sjer að bjóða þinginu, — og er þá mikið sagt. Jeg hefi heyrt marga bera brigður á gagnsemi hv. 2. landsk. (IHB), en jeg hefi jafnan tekið svari hennar og sagt, að hún tæki langt fram mörgum flokksbræðrum sínum að gáfum og hjartalagi. En svo sem jeg sagði, hefir Íhaldsflokkurinn hvergi komist neðar en í hv. 2. þm. Rang. (EJ), sem nú er kallaður frsm. fjvn. Enginn, sem lesið hefir eitthvað í Alþt. og sjeð hefir hið sundurlausa ræðurugl þessa hv. þm., — sem þó birtist þar í leiðrjettri og lagfærðri mynd, — hefir getað komist hjá því að kveða upp þungan áfellisdóm yfir Rangæingum fyrir að hafa ekki betra að bjóða á löggjafarsamkomu þjóðarinnar. (EJ: Mikið er að heyra!). Það vill svo til, að jeg á einhversstaðar í fórum mínum nokkur blóm, sem jeg hefi tínt upp úr ræðum hans. Getur vel komið fyrir, að jeg leiði þingheim síðar inn í þann grasgarð, ef tilefni gefst. Jeg hefi neyðst til að taka þetta fram sakir þess, að mjer þótti það óhæfilegt grobb hjá hv. frsm. að ætla að fara að slá sjer upp á kostnað háttv. 2. landsk. (IHB).
Það lítur út fyrir, að hv. þm. hafi sjerstaka ást á fjósi sínu og því, sem þar á heima, því að hann er altaf að tala um kýr hjer í deildinni. Jeg held, að hann gerði rjett í því að fara að reka á eftir till. um Gunnarsholtskýrnar, sem hann bar fram snemma á þingi. Það er leitt, ef flokksbræður hans ætla að svæfa það mál fyrir honum, og bendir ekki á, að hann hafi mikið að segja í sínum hóp. Annars held jeg, að hv. þm. ætti að leysa út þessar 60 Gunnarsholtskýr og láta þær bregða á leik hjer í deildinni áður en hann fer frekar út í kúafræðina. (EJ: Kannske Síbilja vilji slást í hópinn?) Hann myndi vera hæfilegt forustudýr í þeim hópi, og mun hann þess vegna sífelt draga kýr inn í umræðurnar.
Að öðru leyti mátti heita, að hv. frsm. gæfist algerlega upp, og skal jeg aðeins minnast á fá atriði til að sýna hinn undraverða misskilning hans. Það vita allir, að fjárlögin eru ekki nema að litlu leyti mynd af þjóðarbúskapnum. Ótal önnur lög grípa inn í hann að miklu leyti. Menn kannast við lögin um húsagerð ríkisins, um bryggjugerð í Borgarnesi, berklavarnarlögin o. s. frv. Einhvern næstu daga verður líklega afgreitt frv. um heimavistir við mentaskólann. Alt þetta má stjórnin borga, þegar henni sýnist. Hvernig fer þá um „jöfnuðinn“, sem á að vera í fjárlögunum? Hv. Nd. er nú nýbúin að samþykkja stærðar skólabákn, og nái það frv. fram að ganga, verður það vitanlega til stórkostlegrar eyðslu, hvað sem öllum fjárlögum líður. Eða hvað halda menn að þurfi að leggja til landsspítalans, ef hann á að vera fullgerður 1930? En kúasmalinn frá Gunnarsholti og öll íhaldshersingin gapir af undrun, þegar talað er um 100 þús. kr. til að rækta Flóa og Skeið. En þeir þurfa ekki að vera hissa. Undrunin stafar aðeins af þeirra eigin vanþekkingu, því að þeirra frv. fara fram á margfalt meiri eyðslu, og hæstv. landsstjórn er að bisa við margfalt stærri útgjaldaliði utan fjárlaga. Jeg hlýt því að neita, að nokkur ábyrgðarhluti sje að flytja slíkar endurbótatillögur, sem jeg hefi borið hjer fram. Enda sýndi hv. frsm. einu greindarmerkin í að reyna ekki að hrekja gagnsemi þeirra. Hann hefir vitað, að hægara myndi að drepa þær þegjandi.
Í sambandi við þetta langar mig til að benda hv. þdm. á, hve lítið tilefni hæstv. landsstjórn hefir til að gorta af jafnvægi í fjárlögunum. Þegar borguð eru 15–20 þúsund til að geta notað eitt einstaks manns hús í Reykjavík 2 eða 3 daga til konungsmóttöku og eins stórri upphæð eytt fyrir eina nótt hjá Ölfusá, þá held jeg að enginn þurfi að blikna eða blána, þótt farið sje fram á 50 þús. kr. til sundhallar í Reykjavík eða 300 kr. til ferju á Hrosshyl. Jeg skil ekki, að íhaldsfylkingin þurfi þess vegna að rísa upp á afturfæturna og mótmæla í nafni „viðreisnar fjárhagsins.“
Þá kem jeg að þeim lið, sem kvennafulltrúinn, hv. 2. landsk. (IHB), hefir tekið að sjer að verja. Þetta virtist koma heldur illa við skapsmuni hv. þm., og segi jeg henni það meira til lofs en lasts, því að það sýnir einmitt hreinskilni og hjartagæsku hv. þm. Hún sá nú sína sæng upp reidda, er rakin hafði verið hin undarlega afstaða hennar til þessara mála.
Hv. þm. svaraði í miklum gremjutón og kastaði hnútum, og er það glegsta sönnun þess, að hjer var einmitt stungið á kýlinu. (IHB: Þetta er ósvífni!). Jeg er einmitt að hæla hv. þm.; því að það er áreiðanlega satt, sem skáldið segir, að „bestu blómin gróa í brjóstum, sem að geta fundið til.“ Miklu verra væri, ef ofan á sannaða sök hefði bæst það, sem í kverinu mun hafa verið kallað „andvaraleysi og harðúð hjartans;“ en því var alls ekki til að dreifa.
Jeg ætla þess vegna ekki að fara að svara neitt köpuryrðum þessa hv. þm., því að þau voru öll ástæðulaus. Jeg hefi einmitt oft tekið svari þessa hv. þm. og það gagnvart hans eigin starfsbræðrum, og jeg held það sje ekki ástæða að bregða mjer um hlutdrægni í þessum dómi. Hitt er annað mál, að jeg hefi sjeð ástæðu til þess nú, þegar svo mjög keyrði um þverbak í málum kvenþjóðarinnar, að láta opinberar umræður skera úr því, hvaða rök hv. þm. gæti fært fram fyrir sinni afstöðu til mála kvenna hjer á Alþingi. Og það var ekki af neinni löngun til að erta hv. þm., heldur blátt áfram af því, að mjer finst óhugsandi, að það geti liðist átölulaust til lengdar, að fulltrúi kvenna á Alþingi sje beinlínis valdur að því, að kvenfólkið í landinu fái sem erfiðasta aðstöðu til undirbúnings undir lífsbaráttuna.
Vegna þeirra, sem ekki gátu heyrt mál mitt í gær, vil jeg benda á, að það hefir verið gerð verri aðstaða kvenfólksins frá því, sem nefndin skildi við málið, með 4 brtt. hjer í hv. deild. Og mjer er kunnugt, að með sumar, — jeg held allar, — var hægt að skapa öðruvísi meiri hluta í nefndinni, ef þessi hv. þm. hefði lagst á þá sveif. Jeg býst við, að hv. þm. (IHB) muni ekki vilja neita þessu. En það er skemst af að segja, að í hv. Nd. beittist sá flokkur, sem hv. 2. landsk. (IHB) telst til, móti a. m. k. flestum þessum till. Allir þessir hv. þm., að einum undanteknum, beittu sjer móti húsmæðradeild við skólann á Laugum og margir móti hækkun til Staðarfellsskólans, flestir móti hækkun til Blönduósskólans og að minsta kosti allmargir móti hækkun til Ísafjarðarskólans. En það voru einmitt samherjar mínir í hv. Nd., sem stóðu með þessum hækkunum, þótt hjer væri engu síður um kjördæmi andstæðinga að ræða.
Nú vil jeg spyrja hv. þm. (IHB), hvernig á að útskýra það öðruvísi en sem vöntun á samúð með þessum fyrirtækjum úti á landi, þegar hv. þm. leggur til, að það sje gerður erfiðari fjárhagur þessara þriggja húsmæðraskóla, sem nú eru, og að beint sje ákveðið að drepa þann fjórða, þrátt fyrir það, að fjeð er til, sem leggja á á móti, og hlægilega lítil upphæð, sem farið er fram á í stofnkostnað. Það er ómögulegt að komast utan um það, að hv. 2. landsk. (IHB) hefir nú með sinni afstöðu reynt að gera erfiðari hag þessara stofnana, en fer hinsvegar fram á það, sem einn í hv. fjvn. Ed., að gerður verði betri hagur þeirrar stofnunar, er hv. þm. sjálfur stýrir. Það virðist altaf brenna í þessum hv. þm., að ekki tókst að koma þeim skóla alveg yfir á ríkið. Hv. þm. hefir ekki viljað láta yfir sinn skóla ganga það hrís sparnaðarins, sem heimtað er að gangi yfir hina skólana í svo ríkum mæli.
Hv. þm. (IHB) hefir látið í ljós, að það vanti kerfi í kvennaskólamálinu. Jeg spyr: Í hvaða kerfi er kvennaskóli Reykjavíkur? Hann er utan við öll kerfi landsins. Ef mjer skjátlast ekki því meir, þá er hann líka í sinni röð eini kvennaskólinn á landinu, skóli með aðallega bóklega fræðslu, aðeins að karlmönnum er ekki veittur aðgangur. Og jeg get tæplega hugsað mjer, að það komi nokkurn tíma nokkur annar skóli með sama sniði. En það má telja til hróss hv. þm. og sem merki um dugnað, að þessi skóli hefir samt sem áður vaxið og blómgast undir hans stjórn, þrátt fyrir það, þótt hann sje í engu samræmi við strauma samtíðarinnar eða þróun skólamálanna í landinu. Þó að það rísi upp húsmæðraskólar og ungmennaskólar, þá reisir enginn skóla í svipuðu sniði og kvennaskólann í Reykjavík. Allir vita, að svo sjerstaklega stendur á, að skólinn er sem leifar frá þeim tímum, þegar kvenfólk átti ekki aðgang að neinum öðrum skóla, en hann var sjálfsagður liður í viðreisnarbaráttunni hjá forgöngumanni í þeim málum.
Það má nú náttúrlega segja sem svo, að kvenfólkið eigi ekki rjett á að fá nema þennan skóla í Reykjavík. En jeg er á gagnstæðri skoðun um það efni. Jeg held við verðum að gera stórkostlega mikið á næstu árum til þess að auka möguleikana, ekki síst fyrir konur, til þess að afla sjer verklegrar mentunar. Fyrir almennu mentuninni er nokkurn veginn sjeð, — bæði kvenna og karla —, svo að þar vantar minna á. En því finst mjer það svo undarlegt, að þessi hv. þm., sem ætti að hafa vit á þessum hlutum, af því að hann hefir svo gott vit á mörgu öðru, skuli leyfa sjer að standa þarna á móti.
Til þess að taka fleira um afskifti af baráttu fyrir möguleikum hinnar íslensku kvenþjóðar til þess að afla sjer mentunar, vil jeg benda á málið um húsmæðraskóla á Staðarfelli, sem jeg flutti frv. um. Þar var gert ráð fyrir að nota jörðina og eignir, sem þar voru. Þessu máli var eytt fyrir mjer; og hv. þm. (IHB) mun ekki neita að hafa unnið að því að koma því fyrir kattarnef. (IHB: Studdi það manna mest, þegar tíminn var kominn til þess!). Jeg skal benda hv. þm. á það, að það var stöðvað í nefnd, einmitt fyrir fulla andstöðu þessa hv. þm.
Það er kannske rjett að gera upp fleira viðvíkjandi Staðarfellsskólanum. Vil jeg nefna það atriði, að þegar var verið að ákveða rekstrarstyrk þess skóla, vildum við Sigurður Eggerz tiltaka hann 4 þús. krónur. En af því að hv. 2. landsk. lagðist á móti, gerðum við það til samkomulags að lækka hann niður í 3 þús. Þessu veit jeg, að hv. þm. muni ekki vilja neita. Fanst mjer sannast að segja kenna þarna lítillar samúðar gagnvart þessum upprennandi skóla og hart, að við karlmennirnir skyldum þurfa að vera kröfufrekari fyrir kvenfólksins hönd heldur en sjálfur kvenfulltrúinn.
Jeg ætla ekki að fara út í einstakar styrkveitingar, þó aðeins minnast á tvær, styrkinn til Halldóru Bjarnadóttur og utanfararstyrk Sigurborgar Kristjánsdóttur til þess að sækja fund í Finnlandi, þar sem jeg held, að við karlmennirnir höfum ekki viljað sýna kvenþjóðinni minni samúð heldur en hv. 2. landsk. (IHB: Jeg er ekkert að sýnast!). Það er aðalatriðið að vera. (IHB: En hv. 1. landsk. er ekki, hann sýnist!). Jeg hugsa, að þær háttv. konur tvær, sem hafa orðið af þessum styrk sínum og sitja með það verðleikalof neitunarinnar, sem hv. 2. landsk. hefir úthlutað þeim, hafi fundið hinn beiska veruleika á þann hátt, að frá karlmönnum í þessari hv. deild fengu þær verulegan stuðning, en frá hv. 2. landsk. engan stuðning. (IHB: Ábyrg fyrir mig!). Þetta hefði jeg aldrei dregið inn í umræðurnar, hefði ekki hv. 2. landsk. viljað gera nokkurskonar allsherjar hreingerningu viðvíkjandi þrálátri mótstöðu gagnvart málum kvenþjóðarinnar.
Mjer heyrðist hv. þm. (IHB) grípa fram í áðan og vera búinn að gleyma, að Staðarfellsskólamálið var í tvennu lagi. Fyrst kom fram till. frá mjer um að stofna ríkisskóla á Staðarfelli, og var ætlast til, að notaður yrði Herdísarsjóðurinn til þess skóla, þannig að framkvæmdur yrði sá samningur, sem fyrverandi forsætisráðherra gerði við hjónin á Staðarfelli, og Herdísarsjóðurinn sameinaður þeirri gjöf. Háttv. 2. landsk. beitti sjer mjög á móti þessu viðvíkjandi sjóðnum.
Þá vil jeg minna á, að það er ekki nema örstutt liðið, síðan hv. 2. þm. S.- M. (IP) bar fram frv. um skóla á Hallormsstað. (IHB: Við mintumst á það rækilega í dag!). Ekki er úr vegi, að málið sje skýrt, því að afstaða hv. 2. landsk. var dálítið vafasöm í því efni. Hv. þm. kunni ekki við að láta komast svo að orði, að hann hefði verið með því að drepa skólann á Hallormsstað; en ef hv. þm. athugar í skjölum þingsins, þá mun frv. talið meðal fallinna mála. Og hverjir eru þeir, sem báru sverðið að skólanum? Hv. 2. landsk. og flokksbræður hans; ekki er um það að deila, „af er fóturinn“, eins og segir í Njálu.
Nei, það væri miklu skynsamlegra af hv. þm. að reyna ekki að neita staðreyndum; og þar sem hv. þm. var að gefa í skyn, að ekki hafi verið mikill skoðanamunur í nefndinni, þá var hann þó svo mikill, að meiri gat ekki verið, þar sem jeg í minni hluta vildi láta frv. halda áfram; gekk að vísu inn á að breyta frv. í verulegum atriðum. En hv. 2. landsk. lagði til það gagnstæða, nefnilega að eyðileggja málið. Það, sem jeg tel í raun og veru allra vítaverðast í framkomu hv. þm., er, að hafa ekki notað sína kunnáttu og þekkingu á þessum málum, sem vafalaust er allmikil, því að það hefði verið auðvelt fyrir nefndina að bæta frv. til verulegra muna. Jeg skal taka fram, hvaða breytingu jeg vildi gera. Það var að hafa skólann minni, og hefði hann orðið tiltölulega ódýr stofnun í rekstri, en gert tiltölulega mikið gagn. En hvað leggur hv. nefnd til að gera í þessu máli? Það er að vísa málinu til stjórnarinnar, en samt ekki með þeirri orðsendingu, að það skuli lagt fyrir næsta þing. „Svo fljótt sem verða má“ er býsna óákveðið; það gætu verið ein 10 ár, alt eftir því, hvað koddinn væri mjúkur, sem málið væri lagt á. En það var sjálfsagt að óska, að málið kæmi fyrir næsta þing.
Jeg hefi áður látið í ljós skoðun mína um það, hvað miklar líkur eru til, að núverandi stjórn myndi hafa aðstöðu til að bæta þetta mál, og hefi engu þar við að bæta. Jeg vil þó nefna það, að jeg tel harla ósennilegt, að þeir ráðunautar hæstv. stjórnar í þessu máli hjer í bænum hafi þann kunnugleika t. d. í Múlasýslu og Þingeyjarsýslu, að þeir geti komið með betri ráðagerðir heldur en áhugafólk í þessum hjeruðum, sem leggur peninga fram úr eigin vösum til þess að styðja þetta mál. Jeg hygg, að þar sje einmitt sú hagkvæmasta þekking, sem hægt er að fá viðvíkjandi lausn þessa vandamáls. Og þó að jeg hafi sýnt mikla sanngirni í því að unna hv. 2. landsk. margra góðra kosta, þá verð jeg að segja, að einmitt í þessum málum finst mjer jeg ekki geta búist við neinum endurbótum fyrir Austfirði frá þessum hv. þm., þótt hæstv. stjórn leitaði í þá átt um ráð; því að ýmsar till. þessa hv. þm. bera vott um svo mikið skilningsleysi, að jeg held alveg áreiðanlega, að fólkið í þessum hjeruðum viti miklu betur sjálft, hvernig á að koma þessum málum fyrir.
Ef hv. 2. landsk. hefði haft góðan málstað í þessu efni, þá hefði engin geðshræring þurft að komast að, — ef hv. þm. hefði á öllum tímum reynt að styðja viðleitni karlmanna hjer á Alþingi til að koma mentamálum kvenna í betra horf. Hefði það að vísu verið ánægjulegt, ef þessi eina kona í þinginu hefði tekið að sjer að vera einskonar verkstjóri og stýra veikum kröftum karlmannanna, sem vildu að því vinna að bæta úr því misrjetti, sem kvenþjóðin hefir hingað til átt við að búa. En því miður er það svo, að það er ekki þyngra blýlóð lagt á metaskálarnar móti kvennamentun utan Reykjavíkur frá öðrum en einmitt hv. 2. landsk.
Hv. 2. landsk. vildi gera tvent í einu, rjettlæta það að drepa þessa viðbót til verklegs náms við Laugaskóla og jafnframt sýna fram á, að það væri gert vegna laganna frá 1917.
Nú vil jeg fyrst taka Laugamálið. Þar stendur svo á, að sýslufjelagið og konur í þessu hjeraði vilja leggja fram, að jeg hygg, 3/5 af þeirri litlu upphæð fyrir deild handa 12 stúlkum, sem verður bygð 1928, ef ekki stendur á framlagi úr ríkissjóði. Það er sjerstaklega heppilegt að hafa skóla á þessum stað fyrir margra hluta sakir. Hann gæti að ýmsu leyti haft stuðning af hinum skólanum, íþróttakensla gæti verið sameiginleg o. fl.; svo kostar þessi viðbót ríkið ekki nema einar 11 þús. kr., og þá sennilega ekki meira en 3–4 þús. kr. í rekstrarkostnað, miðað við áætlun um Staðarfellsskólann.
Þess er vert að gæta, að þessi deild við Laugaskólann yrði sem sjálfstæður partur úr þeirri sjerstæðu nýjung í skólamálum, sem Laugaskólinn er, þar sem hann er almennur unglingaskóli fyrir karla og konur, þar sem fyrst og fremst er lögð stund á íþróttir og verklega kenslu, auk bóknámsins. í fyrra var þar ágætur trjesmiður og teiknikennari, og kendi hann a. m. k. piltum smíði. Voru þeir farnir að smíða töluvert vandasama hluti, þegar þeir fóru. Síðastliðinn vetur var einnig haldið uppi vefnaðarkenslu fyrir stúlkur. Alt er þetta spor í rjetta átt. Ennfremur var reynt að koma á húsmæðrakenslu, en húsrúm skorti tilfinnanlega.
Það má því segja, að þessi viðbót sje sprottin upp af þörf fólksins. Menn og konur hafa hafist handa til þess að bæta úr þörf hjeraðsins heima fyrir, en ekki, eins og hv. 2. landsk. álítur, til þess að spilla fyrir, að upp komi skóli á Akureyri samkvæmt lögum frá 1917.
Þar sem nú háttv. 2. landsk. skoðar þessa viðleitni sem fleyg til þess að drepa annað þarft málefni og vitnar svo mjög í þessi lög, þá vil jeg leyfa mjer að spyrja, hvers vegna sami hv. þm. (IHB) hefir ekki gert meira síðan 1923, eða frá byrjun þingsetu sinnar, til þess að hrinda því eitthvað áleiðis. Ef hv. 2. landsk. skoðar sig sem sjálfkjörinn fulltrúa og leiðtoga í þessum efnum, skyldi maður ætla, að einhver litur hefði verið sýndur á viðleitni til að koma þessum skóla á. En öll þessi ár hefir ekkert verið gert fyrir þetta mál fyr en nú, þegar á að hindra framkvæmdir annarsstaðar. Það ber ekki vott um mikinn áhuga fyrir þessum málum. Hv. þm. (IHB) sagði, að með þessari fjárveitingu til verklegs náms á Laugum væri verið að bera rjett eyfirskra kvenna fyrir borð. Jeg ætla þá að skýra frá því aftur, hvernig þessu máli horfir við. (IHB: Það er óþarfi!). Jeg veit, að hv. 2. landsk. er ekki enn farinn að skilja viðhorfið, og nú reyni jeg að skýra það í þeirri veiku von, að hv. þm. komist nú í skilning um villu síns vegar.
Lög um stofnun húsmæðraskóla í Eyjafirði gengu í gegn á þingi árið 1917, fyrir atbeina núverandi hv. 4. landsk. (MK), og var þar með sköpuð aðstaða til þess að hrinda málinu í framkvæmd. Nú hefir sá hv. þm. (MK), er fyrir því barðist þá, ekki átt sæti á þingi um nokkurra ára skeið. Hann verður því ekki ásakaður fyrir það, að ekkert hefir verið gert síðustu árin.
Hvað skeður nú á þessu þingi? Þegar till. um framlag til Laugaskólans í áður umræddu skyni er borin fram í hv. Nd., þá rís upp núverandi hv. þm. Ak. (BL), sem ekkert hefir gert fyrir þetta mál og ekki svo mikið sem þakkað hv. 4. landsk. (MK), og ræðst með ónotum og dylgjum á skólann á Laugum, þótt hann sje áður orðinn ósannindamaður að öllum sínum ummælum, sem hann ljet sjer enn á ný um munn fara nú á þingi. Það er vítavert þetta, að hann að ástæðulausu stekkur upp á nef sjer með órökstuddri gremju og bæxlagangi gegn andstæðingum sínum, sem vilja koma þessu í kring. Það, sem af er kjörtímabils hans, hefir hann ekki, svo menn viti, gert neitt fyrir væntanlegan kvennaskóla í kjördæmi sínu. Nú sker hann upp herör, símar norður á Akureyri, biður menn vakna og búast sem skjótast. Liggi nú mikið við að koma áformum þingeyskra kvenna fyrir kattarnef. Fær hann síðan skeyti að norðan, sem notast skyldi sem fleygur til að kljúfa liðið. Upp á þetta skeyti, sem reyndar segir ekki mikið, því að engin trygging er fyrir því, að þetta fje, sem þar getur, sje til, kemur hv. þm. (BL) með tvær till., aðra til vara, og ber þær fram í hv. Nd. Hvernig fer svo atkvgr. um þessar till.? Þannig, að margir Framsóknarflokksmenn greiða atkvæði með aðaltillögunni, 35 þús. kr. til skóla hjá Akureyri, en aðeins einn einasti stjórnarflokksmaður, og það var hv. flm. (BL) sjálfur. Sást þá, að fyrir háttv. flm. vakti ekki að hrinda málinu áfram, ella mundi hann hafa lagt meira kapp á að safna liði meðal flokksbræðra sinna um aðaltill.; í stað þess reynir hann að smala fáeinum atkv. á hina till., um að drepa skóla þingeyskra kvenna. öll frammistaða hans ber þess vott, að gerðum hans ráði ekki löngun til þess að verða þessu húsmæðraskólamáli að liði, heldur pólitísk illgirni til þess að hindra, að upp komi slíkur skóli í nágrannahjeraði.
Hv. 2. landsk. hefir látið sjer nægja órökstudda sleggjudóma og gremjufullar upphrópanir gegn staðreyndum. Jeg skal ekkert segja um, hvernig á því stendur, en niðurstaðan verður sú, að háttv. 2. landsk., forstöðukona kvennaskólans í Reykjavík, er ekki í fremstu röð um neitt „positivt“ í kvennafræðslumálum, nema um fjárframlög til síns eigin skóla. Fram að þessu hefi jeg greitt atkvæði með endurteknum hækkunum á styrk til kvennaskólans í Reykjavík, af því að mjer hafa fundist þær sanngjarnar, og jeg hefi vænst skilnings á móti um sanngirniskröfur annara landshluta í þessum efnum. En svo lengi má hrópa í skóginn, að komi þaðan svar. Þótt mig langi ekki að hefnast á hv. 2. landsk., get jeg fullyrt, að þessi frammistaða skólastýrunnar í Reykjavík hefir frá upphafi vakið eftirtekt og gremju í landinu.
Hvað geta nú þau hjeruð sagt, sem orðið hafa fyrir þyngstum búsifjum af hendi hv. 2. landsk.? Jeg geri mjer kannske vonir um, að þau vilji ekki erfa mótstöðuna og andmælin, heldur skoða þau sem óvitahjal gegn kvennamentuninni í landinu. Með því einu móti geta þau afsakað hv. 2. landsk.
Þegar átti að koma kvennaskólanum í Reykjavík á landssjóð í fyrra skiftið, þá gleymdist kvennaskólinn á Blönduósi. Og þegar hv. þm. A.- Húnv. (GÓ) bar fram till. um, að hann fengi að fljóta með, var því afarilla tekið af hv. 2. landsk.
Við seinni tilraunina var Blönduósskólanum loks hnýtt aftan í, bersýnilega af þeirri ástæðu, að sá skóli átti þá aðstandendur í hv. Nd., að ekki varð undan komist.
Það má segja, að ekki skifti máli, þótt einn þingmaður sje svona harðsnúinn í þessu kvennamentunarmáli. En ákaflega er það leiðinlegt, að til skuli vera þeir menn á þingi, sem ekki geta tekið skynsamlegum fortölum nje litið á sjálfsbjargarviðleitni annara hjeraða í þessum efnum með sanngirni og óhlutdrægni, heldur nota hvert tækifæri til þess að hamla, að þau fái kröfum sínum framgengt.
Áður en jeg sest niður get jeg ekki stilt mig um að minnast á eina furðulega og í fljótu bragði óskiljanlega setningu í ræðu hv. frsm. (EJ). Hann sagðist sem sje ætla að tala stutt í dag, þó að það væri mánudagur. Hann útskýrði ekki frekar, hvað það merkti eða hvort mánudagurinn væri eitthvað sjerstaklega hættulegur. Jeg held nú samt, að vit megi fá út úr þessu „goðsvari“. Sumir menn búa sem sje þannig að heilsu sinni og hæfileikum á laugardögum, að þeim er áreiðanlega best og hentast að hafa sig sem minst í frammi og halda sem stystar ræður á mánudögum.