06.05.1927
Efri deild: 67. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1516 í B-deild Alþingistíðinda. (1229)

21. mál, fjárlög 1928

Jóhann Jósefsson:

Við fyrri umr. þessa máls flutti jeg till. um dálitla fjárveitingu til styrktar þeim mönnum, sem þurfa að fá sjer gervilimi. Jeg skýrði þá að nokkru það, hvernig henni ætti að verja, og ætlast jeg til, að sú skýring geti dugað, þannig, að það sje ljóst, hver tilgangurinn er með þessari fjárveitingu, ef hún verður samþykt. En af því að jeg heyrði það þá nokkrum hv. deildarmönnum, að þeim þótti upphæðin helst til há, þá tók jeg till. aftur og flyt hana nú þannig breytta, að upphæðin er mikið lækkuð. Jeg vonast til þess, að hv. deildarmenn muni sjá, hver nauðsyn er á því, að þeir, sem verða fyrir því slysi að missa limi sína, eigi undir vissum kringumstæðum kost þess að fá styrk frá því opinbera, annan heldur en sveitarstyrk, til þess að fá sjer aftur gervilim. Læt jeg svo útrætt um þetta, með því líka, að jeg var búinn að lýsa því við fyrri umr. málsins.

Svo á jeg aðra brtt. á sama þskj., það er VIII. brtt. Það var um að styrkja tvo stúdenta, en jeg tók hana aftur við 2. umr., meðfram af því, að jeg hafði þá ekki allar upplýsingar, sem þurfti og jeg hefi nú fengið. Það er eins og kunnugt er, að þingið hefir styrkt nokkra stúdenta til framhaldsnáms erlendis, ýmist með því að veita þeim beinlínis styrk eða með því, að þeir hafa fengið styrk af þeirri upphæð, sem stjórnin hefir til umráða handa stúdentum erlendis, og veittur er eftir tillögum ákveðinnar nefndar, sem sker aðallega úr um það, hverjum eigi að veita þennan námsstyrk. Þegar síðast var úthlutað þessum námsstyrk, sóttu fleiri stúdentar en hægt var að veita, en nefndina greindi dálítið á um það, hverjum fjórum ætti að veita styrkinn, og tilnefndi eiginlega fimm, sem sumir í nefndinni álitu nokkurn veginn jafnrjettborna til styrksins, en það urðu þó ekki nema fjórir af þeim, sem fengu styrk. En þá vildi svo einkennilega til, að jafnvel þótt ætlast sje til, að styrkur sje veittur þeim, sem útskrifast á því ári, var skilinn eftir stúdent með ágætiseinkunn og frá því ári, sem um ræddi, en styrkur aftur veittur manni, sem var útskrifaður fyr, en ekki hafði eins gott próf og hinn. Það verður ekki sjeð, hvað hefir valdið þessu, en hitt virðist vera nokkurn veginn augljóst, að sá stúdent, sem þarna var skilinn eftir, hefir orðið fyrir ranglæti. Sá stúdent, sem hjer ræðir um, heitir Bjarni Sigurðsson og er frá Akranesi, fátækur piltur og af fátækum kominn, og hefir sjálfsagt ekki átt hjer neina eftirtölumenn í höfuðstaðnum. Hann hefir stundað smíðar jafnframt náminu og hefir lagt mikinn hug á að læra húsagerðarlist, og er það eftir ráðum húsameistara ríkisins og Guðmundar prófessors Hannessonar. Svo mikinn hug hefir hann lagt á að halda áfram á þessari braut, að þótt hann fengi engan styrk, þá hefir hann samt sem áður náð í lán og er kominn til Svíþjóðar, til Stokkhólms, og stundar þar námið. Af meðmælum, sem hjer liggja fyrir, er það auðsjeð, að þetta er óvenjulega duglegur og efnilegur maður, og mjer finst, að það sje ekki gert annað með þessu en að rjetta hlut mannsins, veita honum jafnrjetti við þá, sem þegar hafa orðið aðnjótandi styrks. Það, sem jeg fer fram á með tillögunni, er það, að Bjarna Sigurðssyni sje veitt jafnrjetti á við þá menn, sem þegar hafa fengið þennan styrk eða loforð um hann, og að sá órjettur, sem hann hefir orðið fyrir við úthlutun styrksins, sje nú leiðrjettur af hv. deild.

Þá er önnur tillaga mín viðvíkjandi Hrafnkatli Einarssyni stúdent, sem hefir sótt um styrk til þingsins, en ekki ennþá fengið, til að ljúka hagfræðinámi og semja doktorsritgerð við háskólann í Vín um íslenskar fiskiveiðar. Það hefir verið lagt fram langt brjef frá þessum manni um það, hvernig hann hefir hugsað sjer að haga þessari ritgerð sinni, og af því að hún á nær eingöngu að vera um fiskiveiðar okkar, varð mjer sjerstaklega starsýnt á það, sem hann skrifar. Brjefið er vitaskuld alt of langt til að fara nokkuð að ráði út í það, en með leyfi hæstv. forseta vildi jeg þó lesa upp úr því dálítinn kafla, til þess að sýna það í höfuðdráttunum, hvernig hann hugsar sjer að starfa að þessu verki. Hann skrifar á þessa leið:

„Hingað til hefir enginn hagfræðingur skrifað um fiskiveiðar alment, líkt og gert hefir verið t. d. um landbúnaðinn. Þetta var aðalástæðan til þess, að próf. Spann“ — hann hefir minst á hann hjer að framan, það er einn af kennurum hans, sem hefir hvatt hann til að skrifa um þetta efni — „eggjaði mig á að skrifa um þetta. Hann er sömu skoðunar og jeg, að þar sje stórt skarð ófylt í hagfræðivísindunum, þar sem hluta af frumframleiðslunni sje slept algerlega. Þetta er frá hreinvísindalegu sjónarmiði það mikilverðasta, og það er von mín, að jeg verði þessu viðfangsefni svo vaxinn, að jeg geti fylt út þessa eyðu. Fiskiveiðunum ber sjerstakt sæti í kenningum hagfræðinnar um frumframleiðsluna, við hliðina á landbúnaði og námagrefti. Það er ætlun mín að sýna fram á, að svo er; hingað til hefir enginn hagfræðingur gert það. í sambandi við þetta er það afarmerkilegt frá vísindalegu sjónarmiði að sýna, að hverju leyti þjóðarbú, sem svo mjög er bygt á sjávarútvegi, sje „principielt“ frábrugðið öðrum, sem byggjast aðallega á landbúnaði eða stóriðnaði eða hvorutveggja í sameiningu . . .“

Jeg skal nú ekki tefja tímann lengur með því að lesa meira upp af því, sem Hrafnkell Einarsson hefir sagt í sínu erindi, en svo virðist, eftir öllu að dæma, sem hann hafi valið sjer bæði mjög merkilegt viðfangsefni og þarft, ekki hvað síst frá vísindalegu' sjónarmiði. Og fari það svo, að hann leysi það vel af hendi, þá hygg jeg, að þjóðinni verði allmikill sómi að þessum manni, þar sem hann tekur sjer fyrir hendur að rita um þessa atvinnugrein frá vísindalegri og hagfræðilegri hlið, og nokkuð á annan hátt en gert hefir verið. Jeg þekki manninn að vísu ekki persónulega, en frá dómi þeirra manna, sem jeg hefi talað við og þekkja hann vel, er það að segja, að þeim ber saman um, að hann sje frábærlega vel gefinn maður, og gera sjer bestu vonir um starf hans í þágu vísindanna.

Læt jeg svo útrætt um þessa tvo menn, sem jeg hefi flutt brtt. um. Mjer hefir að nokkru leyti orðið starsýnt á þá, því að mjer virðist sem það hafi verið gengið fram hjá þeim. Og það er ekki laust við, að manni detti í hug, að þetta fari nokkuð eftir því, hve margir eftirtölumennirnir eru, sem mæla með mönnum, þegar verið er að sækja um styrki til Alþingis. En mjer finst, að það verði fyrst og fremst að líta á það, hve mikill hagnaður verður að þeim í framtíðinni, og sömuleiðis verður að líta á það, hvort þeir eiga efnaða foreldra eða aðra menn fjarskyldari, sem maður hefði ástæðu til að ætla, að vildu hjálpa þessum ættingjum sínum. En þegar er að ræða um alveg bláfátæka menn, sem berjast áfram af engum eða litlum efnum, þá er mikill munur á, það hljóta allir hv. þm. að sjá. Og þegar hið opinbera á annað borð er að hafa áhrif á framhaldsmentun þessara manna, þá ber því óhjákvæmilega skylda til að taka tillit til þess, hvernig ástatt er í þessu efni; því að það er illa farið, ef góðar gáfur eða dugnaður ekki getur notið sín vegna þess, að efnin vantar til að menta þann mann, sem í hlut á.