11.05.1927
Neðri deild: 72. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1619 í B-deild Alþingistíðinda. (1261)
21. mál, fjárlög 1928
Frsm. síðari kaflans (Tryggvi Þórhallsson):
Það er vafamál, hvort ástæða er til að ræða einstakar tillögur. Ef lækkunartill. okkar í meiri hl. fjvn. verða ekki samþ., tökum við allar hinar aftur og greiðum atkvæði gegn öllum breytingum. Við álítum, að tekjuáætlunin sje of há, og viljum því kosta kapps um að skila fjárlagafrv. ekki verra hjeðan en það er frá hv. Ed.
Jeg ætla aðeins að segja örfá orð út af annari brtt. nefndarinnar. Fyrst vildum við fella niður styrkinn til landsspítalans. Því var eindregið mótmælt, bæði af hæstv. stjórn og fleirum. En hinu hefir ekki verið mótmælt, að það, sem á að veita á næsta ári, er ekki nema lítill hluti af öllu, sem um er samið að veita til spítalans. Ef standa á við samninginn, þarf ríkið að minsta kosti að borga 450 þús. kr. hvort áranna 1929 og 1930, ef áætlunin ekki hækkar. En reynslan sýnir, að hún hefir þegar hækkað úr 800 þús. kr. upp í 1500 þús. krónur. Hæstv. stjórn ber því við, að hún hafi gert skuldbindandi samning um greiðslu til landsspítalans. Það kom fram seint á þinginu. (Atvrh. MG: Hann var lagður fram 1925). Já, en það vissi fjvn. ekki um. En til þess að hægt sje að vitna í samninginn, verður hann fyrst og fremst að vera löglegur. Samningurinn er fyrst og fremst reistur á lögum um húsagerð ríkisins frá 1919, 1. gr. Samkvæmt 2. gr. er svo ríkisstjórninni heimilað að taka lán. Enginn efast um, að hún hafi leyfi til þess, ef hún vill takast slíka ábyrgð á hendur. En hún hefir í þessum lögum engan rjett til að skuldbinda fjárveitingarvaldið til að leggja fram hundruð þúsunda í þessu skyni, hvernig sem á stendur, og hvernig sem fjárhag ríkissjóðs er háttað. Önnur heimild, sem hæstv. stjórn mundi vitna í, er þál. frá 1925, en þar er sagt, að byggingunni skuli vera lokið í árslok 1929, ef ekki ófyrirsjáanleg atvik komi til greina. Hver á að skera úr þessu? Auðvitað á fjárveitingarvald Alþingis að segja fyrir um, hvaða afstöðu á að taka til málsins. Jeg held því þess vegna hiklaust fram, að þó að stjórnin hafi vald til að taka lán, þá hefir hún ekkert vald til að binda hendur okkar þingmanna um atkvgr., en það hefir hún gert, og að því leyti er samningurinn að engu hafandi. Í stað þess verður nú hver einstakur þm. að taka þá ábyrgð á sig að skuldbinda okkur til að veita 450 þús. kr. hvort áranna 1929 og 1930.
Nú skulum við athuga, hver sá samningsaðili er, sem hæstv. stjórn telur sig svona bundna við. Það er stjórn landsspítalasjóðsins. Mjer þykir það ákaflega merkilegt, ef það, að fólk víðsvegar á landinu gefur fje í landsspítalasjóðinn, þegar vel lætur í ári, á að gefa konunum vald til að gera svona óheyrilega kröfu. Jeg skil ekki, að til hennar þurfi að taka nokkurt tillit, þegar ríkissjóður er í fjárþröng og atvinnuvegir landsins bera sig ekki. Við eigum ekki að greiða atkvæði um samninginn, heldur hitt, hvort ríkið sje þess megnugt að leggja fram þessa miklu fjárhæð til landsspítalans. Við eigum að kasta mæðinni og sníða okkur stakk eftir vexti.
Jeg geri ráð fyrir, að þessi tillaga verði feld, þar sem mjer virðist Íhaldsflokkurinn gera það að kappsmáli, að staðið verði við samninginn. Það er hlutur, sem hæstv. stjórn verður að standa þjóðinni reikningsskil á.
Hin tillagan, sem fjvn. hefir borið fram og orðið hefir að deilumáli, er þess efnis að veita fjárhæð til fjósbyggingar á Hvanneyri, eins og samþ. var við 2. umr. Hv. þm. Borgf. (PO) hefir allmikið um hana talað og sömuleiðis hæstv. ráðh. — Hæstv. forsrh. vildi halda því fram, að jeg hefði farið með rangt mál í gær, þar sem jeg sagði, að auglýst væri eftir tilboðum í fjárhúsbygginguna á Hólum, byggingu, sem framkvæma ætti fyrir fje, sem nú væri farið fram á að veita. Að jeg hafi farið þarna með rangt mál, vil jeg harðlega mótmæla; jeg fór þvert á móti með fyllilega rjett mál. Og það er býsna merkilegt, að hæstv. ráðh. skyldi leggja út í að mótmæla þessu, þar sem það er skýrt tekið fram í athugasemdum við fjárlagafrv. það, sem hjer er til umræðu, að ýmisleg útgjöld Hólaskóla sjeu áætluð svo há vegna byggingarkostnaðar fjárhúsa og heyhlöðu. Það verður því ekki hrakið, að verið sje að leita tilboða um byggingu á húsum, sem að minsta kosti að miklu leyti á að byggja fyrir fje? sem ekki er búið að veita ennþá.
Út af orðum háttv. 2. þm. Skagf. (JS) vil jeg taka það fram, að það er langt frá, að jeg sje að mæla á móti þessari fjárveitingu, um það hlýtur honum líka að vera kunnugt frá samstarfi okkar í fjvn., heldur vil jeg, að báðum bændaskólunum sje gert jafnt undir höfði. Sje jeg svo ekki ástæðu til að fjölyrða öllu frekar um þessa deilu.
Aðrar till., sem meiri hluti fjvn. hefir borið fram, hafa ekki verið gerðar að umtalsefni; er þar því engu að svara.
Um þær mörgu brtt., sem bornar hafa verið fram af einstökum þingmönnum, er það að segja, að jeg mun ekki taka fram afstöðu nefndarinnar til hverrar einstakrar, fyrst og fremst af því, að nefndin er klofin, og í öðru lagi sökum þess, að ekki er útlit fyrir, að sparnaðartill. meiri hlutans verði samþyktar, en þá mun hann ganga á móti öllum öðrum tillögum.