11.05.1927
Neðri deild: 72. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1635 í B-deild Alþingistíðinda. (1268)

21. mál, fjárlög 1928

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Jeg vil aðeins út af hinum almennu niðurlagsorðum hv. þm. Str. geta þess, að mjer þykir það ekki undarlegt, þó að hv. þm. sje orðið nokkuð þungt í skapi út af þeirri ádrepu, sem hann hefir nú fengið fyrir sín ummæli. En þegar hv. þm. er hjer að endurtaka það, sem hann hefir áður sagt í blaði sínu, að það sje einhver synd hjá núverandi stjórn, að hennar fjárlagafrv. hafi verið 21/2 milj. kr. hærri en fjárlagafrv. hafi verið áður, þá leggur hv. þm. satt að segja vangann svo flatan við kinnhesti á þá stjórn, sem hjer var áður, að það þarf talsverða stillingu til þess að skella ekki lófanum á vangann. En jeg ætla ekki að gera það, af því að jeg á ekkert útistandandi við þá fjrh., sem hjer voru áður, hvorki við núverandi hv. 1. þm. Rang. (KIJ) nje hinn fjrh., sem nú er farinn út úr hinu pólitíska lífi. En jeg vil benda hv. þm. Str. á það, að þótt stjórnin leggi fram fjárlagafrv. að upphæð 101/2 milj. kr., þá er ekki nóg að bera það saman við fjárlagafrv. annara stjórna. Það er þá miklu nær að bera það saman við landsreikningana, því að það er satt að segja ekki mikil dygð að hafa fjárlagafrv. þannig úr garði gert, að það sýni svo sem 2 milj. kr. lægri útgjöld í fjárlagaliðunum sjálfum, en svo verður að líta á það, sem borgað hefir verið, en það sýna landsreikningarnir. En jeg held nú einmitt, að af því sjáist það best, hvað núverandi þing og stjórn hefir gert til að rjetta við fjárhag landsins, en það er að útgjöldin í fjárlögunum eru nú talsvert nær því, sem vænta má, að þau verði, heldur en þau voru áður.

Hv. þm. Str. var kominn í fjvn., þegar fjárlagafrv. fyrir árið 1925 kom í hendur þeirrar nefndar, svo að jeg tala hjer um hluti, sem hv. þm. átti þátt í. Það getur verið, að útgjöldin hafi þá verið 4 milj. kr. lægri heldur en þau eru eftir núverandi frv., en jeg býst við, að það megi, með því að benda á tvö atriði, skýra allan þann mismun. Annað var það, að ýmsar alveg bundnar upphæðir, sem skylt var að greiða eftir fjárlögunum, reyndust of lágt áætlaðar, og hinn liðurinn er sá, að nú er stungið upp á að veita hátt á aðra milj. kr. til ýmissa verklegra framkvæmda í landinu, fram yfir það, sem gert var í stjfrv. fyrir árið 1925. Þetta mun vera það, sem hv. þm. á við. Og jeg hygg, að hvorki jeg nje Íhaldsflokkurinn muni þurfa að blygðast sín fyrir að koma slíkri reglu á fjárlögin, og jeg veit, að hv. Ed. treystir landsmönnum líka til að bera þessar byrðar, sem hjer er stungið upp á; en jeg vona, að það takist að fella allar hækkanir hv. Nd.

Það, sem hv. þm. hafði eftir mjer um fyrverandi stjórn, að hún ætti ekki skilið að fá tekjuhallalaus fjárlög, er slitið út úr rjettu sambandi og illa túlkað. Jeg hirði ekki að hafa hjer upp ummæli mín, en jeg skal birta þau á einhverjum þeim stað, þar sem alþjóð getur sjeð, hvað ráðvandlega hv. þm. Str. fer með tilvitnanir. (TrÞ: Orðin geta ekki gefið nema eina merkingu!). Það má slíta setningar svo út úr samhengi, að þær verði óskiljanlegar eða hafi þveröfuga merkingu, ef ekki er lesið það, sem á undan og eftir fer.

Þátttaka mín í þessum umræðum fer nú að styttast, og jeg skal láta það verða mín seinustu orð nú, að fari fjárlögin frá þinginu lík því, sem hv. Ed. gekk frá frv., þá má stjórnin vel við una. Þá hefir ekki orðið önnur breyting á stjfrv. en að gjaldaliðirnir hafa verið hækkaðir um 50–60 þús. kr., eða nálægt því, sem svarar tekjuafganginum, eins og hann var áætlaður í frv. stjórnarinnar. Ef frv. fær líka afgreiðslu hjer eins og hjá háttv. Ed., þá gefa lögin heildarmynd af tekjum og gjöldum, sem líkari er stjfrv. heldur en verið hefir á nokkru þingi áður. Hlýt jeg að telja það góðan ávinning, sem gefur góða von um framhaldandi gætni í fjármálum. — Þingið hefir að þessu sinni staðist prýðilega þá freistingu að hlaða meira á fjárlögin heldur en stjórnin hefir stungið upp á og talið fært.

Það er eðlilegt, að menn geri nokkurn samanburð á frv. þessu og núgildandi fjárlögum, sem samþykt voru á síðasta þingi. Landsmenn búast við því, að útgjöldin fari lækkandi, því að þeir gera sömu kröfur til ríkissjóðs og annara. Það er því um samanburðinn að segja að þessu leyti, að útgjöldin eru lækkuð um ca. 650 þús. krónur frá því, sem er í gildandi fjárlögum. Og þó að það sje ekki mikil upphæð í samanburði við þær 10–11 miljónir króna, sem útgjöldin nema, þá er það þó spor í rjetta átt.