02.03.1927
Neðri deild: 19. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1666 í B-deild Alþingistíðinda. (1295)

6. mál, fátækralög

Hjeðinn Valdimarsson:

Jeg varð mjög ánægður, þegar jeg heyrði að taka ætti fátækralögin til nákvæmrar endurskoðunar. Jeg gerði ráð fyrir, að þeim yrði þá breytt samkvæmt þeim kröfum, sem fram hafa verið bornar á síðari tímum. En jeg hefi orðið fyrir vonbrigðum. — Frv. kom svo seint, eins og önnur frv. frá stjórninni, að jeg hafði ekki tíma til að kynna mjer það fyrir þing, annars hefði jeg komið fram með gagngerðari brtt.

Þetta frv., sem hjer liggur fyrir, er, eins og hv. frsm. (JK) gat um, hjer um bil eins og gömlu lögin. Jeg veit satt að segja ekki, til hvers verið er að kosta endurskoðun á lögum, sem svo eru prentuð upp að mestu leyti óbreytt. En þótt menn vilji koma með brtt., reka menn sig strax á það, að það er ekki svo auðvelt á þeim grundvelli, sem frv. er bygt, sem orðinn er úreltur. Grundvöllurinn ætti að vera sá, að landið alt væri eitt framfærslufjelag, en fátækrakostnaðinum samanlögðum væri jafnað af atvinnumálaráðuneytinu niður á öll sveitarfjelögin í landinu, og dvalarsveitin legði fátækrastyrkinn út. Jeg held, að það hafi verið hv. þm. Borgf. (PO), sem talaði skynsamlega um þetta mál hjer í deildinni fyrir nokkrum árum. Þetta fyrirkomulag mundi sníða margar verstu misfellurnar af fátækralögunum; erjurnar milli sveitarstjórnanna, skriffinskan o. fl. mundi hverfa. Til dæmis get jeg nefnt bygðarleyfistillögurnar allar, sem þá mundu hverfa úr sögunni, eins og aðrir annmarkar á fátækralögunum. Maður, sem mikið er við þessi mál riðinn, sagði mjer í morgun, að varlega áætlað mundu sparast 40–50 þús. kr. á skriffinsku einni. Það hefir verið haft á móti þessu, að framfærslukostnaðurinn yrði meiri, en jeg sje ekki betur en hægt væri að láta dvalarsveit ætíð greiða einhvern hluta kostnaðarins, ef álitið væri, að hún veitti annars of háa styrki. — Jeg mun síðar annaðhvort flytja brtt. um þessi atriði, ef hægt verður að fella þær inn í frv., eða flytja um þau þáltill.

Þá ætla jeg að snúa mjer að brtt. allshn., þeim, sem jeg er ekki sammála henni um. 9. brtt. er við 43. gr., og er með henni ætlast til, að sveitarstjórn dvalarsveitar geti ekki ákveðið, hvort sveitarstyrkur skuli afturkræfur eða ekki. Jeg álít betri ákvæði stjfrv. um þetta, þar sem dvalarsveit er altaf kunnugri öllum ástæðum en framfærslusveit.

Viðvíkjandi brtt. um fátækraflutning vil jeg mótmæla því hjá hv. frsm. (JK), að þessar brtt. verði bornar upp í einu lagi. Jeg vil, að þær verði bornar upp í tvennu lagi. Brtt. allshn. ganga ennþá lengra aftur á bak en hjá hæstv. stjórn, þar sem heimta má, að maður sje fluttur, þó að ekki megi sjá, að hann sje kominn á fast framfæri, og mundi því fátækraflutningur aukast mikið, ef þær næðu fram að ganga.

Þá ætla jeg að snúa mjer að brtt. mínum. Fyrst er lítil brtt. við 11. gr., um að fyrir 1 kr. komi 5 kr. í sjúkrakostnað hjúa utan heimilisins. Jeg hygg, að það liggi í augum uppi, að 1 kr. á dag er ekkert í áttina til þess, að fólkið geti haldið í sjer lífinu. 5 kr. miða jeg við dagpeninga í slysatryggingarlögunum. Einhverjum kann að þykja þetta of hátt, en þá má breyta því til 3. umr.

Þá kem jeg að 43. gr., þar sem er eina verulega brtt., sem hæstv. stjórn hefir gert á fátækralögunum. Þáltill. hafa áður komið hjer fram, og að minsta kosti einu sinni náð samþykki, í þá átt, að styrkur, sem veittur er vegna elli, heilsuleysis eða ómegðar, ætti ekki að teljast sveitarstyrkur, og styrkþegar ekki að missa kosningarrjett sinn. Þáltill. hafa þannig viljað gera það augljóst, hvenær menn hjeldu kosningarrjettinum og hvenær ekki. En breytingar stjfrv. ganga í þá átt, að sveitarstjórn skuli dæma um þetta í hverju einstöku tilfelli. Enda þótt jeg viðurkenni, að sú breyting er bót á ástandinu eins og það er nú, álít jeg þó mjög varhugavert að leggja það á vald sveitarstjórna eða bæjarstjórna, sem kosnar eru pólitískt, að meta borgaraleg rjettindi manna. Jeg hefi því lagt til í mínum brtt., að styrkur skuli talinn veittur vegna elli, ef styrkþegi er fullra 60 ára, vegna ómegðar, ef styrkþegi á 3 heimilisföst börn framfærsluskyld, ef karlmaður á í hlut, en 1 barn, ef kona á í hlut, vegna slysa eða heilsuleysis, ef styrkþegi sannar, að hann hafi verið ófær til vinnu 3 mánuði í senn, og vegna atvinnuleysis, ef sveitar- eða bæjarfjelag getur ekki vísað styrkþega á vinnu. Atvinnuleysi kemur ekki til greina í sveitunum, en í bæjunum eru oft menn, sem ekkert vilja annað frekar en vinna, en fá ekki vinnu vegna þess, að þeir eiga engin umráð yfir framleiðslutækjum. Þessi tillaga mín gengur í sömu átt og komið hefir fram á undanförnum þingum, og þm. hafa þá fallist á að minsta kosti 3 fyrri ástæðurnar.

Loks er engin ástæða til þess að varna sveitarstjórn að gefa upp sveitarstyrk hvenær sem er. Eftir frv. er ekki hægt að gefa hann upp fyr en eftir 2 ár, en eftir gildandi lögum eftir 5 ár. Jeg legg til, að sveitarstjórn sje heimilt að gefa hann upp hvenær sem er.

Jeg vil benda háttv. deild á, að ef þessar till. stjórnarinnar verða samþyktar, má búast við, að af því stafi mikið misrjetti. Til dæmis má telja víst, að bæjarstjórnin í Reykjavík mundi ákveða, að styrkurinn væri ekki endurkræfur, nema í örfáum tilfellum, líklega 20–30. Öðru máli er að gegna úti um sveitir landsins. Afleiðingin yrði sú, að menn hefðu kosningarrjett í Reykjavík, en mistu hann annarsstaðar.

Þá er loks brtt. frá mjer um fátækraflutninginn. Jeg ætla til skýringar því, hvernig fátækraflutningurinn er enn hjer á landi, að taka nokkur dæmi úr Reykjavík. Gamalkunnugt dæmi er frá 1914. Þá var hjer í bænum gömul kona, sem vann að mestu leyti fyrir sjer með allskonar ullarvinnu. Hún fjekk aðeins einu sinni örlítinn húsaleigustyrk. En hún var með valdi flutt suður með sjó eftir kröfu hreppsnefndar þar. Á öðru heimili var konan og 6 börn flutt í burtu eftir kröfu sveitarstjórnar, en manninn var neitað að flytja með valdi, vegna þess að læknir sagði hann þá mundi bila á geði. Þá kom það í ljós, að 2 börnin voru berklaveik, og þótti ótækt að hafa þau með öðru fólki. Var þá reistur hrörlegur torfkofi fyrir þetta fólk á sjávarbakka, og þarna bjó það á annað ár. Fyrsta missirið var engin eldavjel nje ofn til og örlítill 6 lína lampi, en það fjekk þó síðar, fyrir milligöngu hjeraðslæknis, 8 línu lampa og eldavjel. Börnin fengu enga skó fyrsta missirið og mat urðu þau að sækja þá daglega til næsta bæjar og af skornum skamti, uns hjeraðslæknir fjekk ráðna bót á. Þetta gerðist 1918. Árið 1923 varð maður nokkur atvinnulaus um stundarsakir. Hann átti 2 ung börn, konu og stálpaðan dreng. Konan fjekk læknisvottorð, en þrátt fyrir það var lögreglan fengin til að hafa uppi á fólkinu, því að það flutti hús úr húsi til að forðast flutning. Loksins sá maðurinn ekki annað ráð en að senda börnin í ýmsar áttir. 1924 var hjer maður, sem giftist konu, sem hann hafði búið með í nokkur ár og átt með henni 6 börn. Hann deyr 2 mánuðum síðar, en konan og börnin eru flutt á hans framfærslusveit, sem þau höfðu aldrei komið í áður nje þektu þar neinn mann, og var þeim sundrað sínu á hvert heimilið, nema 2 börnum, sem konan hjelt af náð. Og sama ár er hjer maður atvinnulaus. Hann átti vísa vinnu hjá Eimskipafjelaginu, þegar siglingar ykjust. Hann átti 4 börn. Fjölskyldan var öll flutt norður í land, konan og maðurinn sett niður sitt á hvorn bæinn, og börnunum skift niður á ýmsa bæi. Þó að þeim væri komið fyrir á ódýra staði, reyndist þetta fyrirkomulag samt sveitinni of dýrt, og fjölskyldan var send til Reykjavíkur um haustið. Sveitin varð að borga ferðakostnað fram og aftur, en maðurinn varð af sumaratvinnu sinni hjerna það veltiár. Enn er eitt nýlegt dæmi, sem er þekt úr blöðunum. Norðmaður var giftur íslenskri konu. Honum var vísað úr landi og konan tekin nauðug og flutt með honum til Noregs. Lögregluþjónn var látinn fylgja henni til að gæta þess, að hún slyppi ekki. Þar voru þau flutt úr einni sveitinni á aðra, en komust loks aftur hingað. Samskonar dæmi um flutning konu nauðugrar til Noregs er nú í uppsiglingu, sem sýnir, hvaða hrakningum þetta fólk lendir í. Það er ekki við því að búast, að menn felli sig við, enda þótt þeir einhverra hluta vegna verði að þiggja af sveit, að óviðkomandi menn skerist í leikinn, skilji börn frá foreldrum og konu frá manni sínum og sendi þau sitt í hverja áttina. Að vísu er sveitarstjórnum nokkur vorkunn eftir núgildandi fátækralöggjöf. Fyrir þær er þetta þó aðeins sparnaðaratriði, en fyrir fólkið, sem í hlut á, er hamingja þess í lífinu í veði. Tillaga mín fer nú fram á, að slíkt sje ekki hægt að leyfa, nema með vilja fólksins sjálfs. Það á að vera hæstirjettur um persónulegt frelsi sitt.