21.03.1927
Neðri deild: 35. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (130)

1. mál, sveitarstjórnarlög

Magnús Torfason:

Þegar fátækralögin lágu hjer fyrir um daginn, gat jeg þess, að jeg hefði ýmsar athugasemdir við þau að gera, einmitt í sambandi við það mál, sem hjer um ræðir. Þessar aths. voru þó hvorki stórar nje mikilvægar, en um þetta frv. er það sjerstaklega að segja, að jeg sakna þess, að engin breyting skuli gerð á tekjustofnum sveitarsjóða og að verkefni þeirra er ekki heldur breytt. En þegar slíkur lagabálkur sem sveitarstjórnarlög er endurskoðaður, þá hlýtur það að verða eitt af aðalatriðunum, sem til álita kemur, hvernig eigi að skapa sveitarsjóðum það afl, að þeir geti leyst hlutverk sitt af hendi, eða með öðrum orðum, að leysa úr því, hvaðan sveitarstjórnirnar eigi að fá fje til þess. Hjer í frv. er gert ráð fyrir því, að verkefni sveitarstjórna sjeu hin sömu og verið hefir, og má það að vissu leyti til sanns vegar færast, en þó er það svo í reyndinni, að verkefnin eru ekki hin sömu; þau aukast dag frá degi, eftir því sem menn gera meiri og stærri kröfur, og eftir því, sem hið opinbera seilist lengra og lengra inn í þjóðlífið.

Þegar nú litið er á verkefni sveitarstjórna og hvað sveitarsjóðum er ætlað að vinna, þá verður fyrst fyrir manni barnafræðslan. Að vísu er það nú svo, að lögin gera ekki meiri kröfur til fræðslunnar en áður var af hendi sveitarstjórna, en hitt er víst, að íbúar sveita og sveitarstjórnir gera æ meira ár frá ári til þess að gera fræðsluna sem fullkomnasta og fullnægja fræðslukröfunum sem best. Hitt er líka vitanlegt, að flestar sveitarstjórnir skortir fje til þess að gera þetta eins vel og þær hefðu óskað. Jafnframt er það og sýnilegt, að þetta málefni, barnafræðslan, er svo stórmerkilegt mál fyrir þjóðina í heild, að sjálfsagt er að reyna að sjá sveitarstjórnum fyrir ríflegu fje til hennar þá er kostnaður vegna berklavarnalaganna. Í minni sýslu, Árnessýslu, er hann nú 1/3 hlutinn af öllum gjöldum sýslusjóðs. Sýslusjóðsgjaldið þar er nú um 33 þús. kr. á ári, en berklavarnakostnaðurinn nemur um 12 þús. kr., eða rúmlega 1/3 af því. Auk þess eru ýms önnur útgjöld til heilbrigðismála, sem hafa sívaxandi kostnað í för með sjer, einkum nú hin síðari árin. Má þar meðal annars minnast á hinn aukna kostnað, sem stafar af yfirsetukvennauppbótinni, er samþykt var í fyrra. Með henni er sveitunum talsvert mikið íþyngt. Og til þess að sýna það, hvað sveitirnar verða að leggja mikið á sig vegna heilbrigðismálanna, skal jeg geta þess sem dæmis, að úr sýslusjóði Arnessýslu eru útgjöld til þeirra mála allra fullar 22 þús. kr.

Enn er og eitt ótalið, sem aukið hefir útgjöld sveitarsjóða afarmikið á seinni árum og altaf fer í vöxt. Eins og öllum er kunnugt, hafa vegir innansveita verið troðningar að mestu eða hestagötur og reiðbandsvegir. En jafnframt því, sem ríkissjóður og sýslur hafa látið leggja akbrautir, hafa sveitirnar orðið að gera hið sama. Þær hafa orðið að leggja akbrautir í sambandi við aðalvegina, til þess að geta haft þeirra full not. Þetta er ekki aðeins þarft, heldur einnig bráðnauðsynlegt, og hjá því verður ekki komist. En þessu fylgir afarmikill kostnaður og mikið starf, og þó eru engar vegabætur jafnódýrar og þær, sem sveitirnar gera.

Í þessu frv. er ekki tekið tillit til alls þessa, því að þar er ekki bent á neinar nýjar leiðir til þess að auka tekjur hreppsfjelaganna. Þeim er ætlað, eftir sem áður, að ná fje til nauðsynlegra útgjalda með eintómum beinum tekjum, útsvörum, en það hlýtur altaf að verða takmarkað mjög í fátæku landi, hve miklu er hægt að ná með slíkum beinum tekjum. Jeg verð því að telja það aðalgallann á frv. þessu, að sveitarsjóðunum skuli ekki sjeð fyrir nýjum tekjum. Og í því sambandi verð jeg að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. atvrh. (MG), hvort ekki hafi komið til stjórnarinnar tillögur frá sýslunefndum og sveitarstjórnum um það, hvernig eigi að auka tekjur sýslu- og sveitarsjóða. Í minni sýslu var því fast haldið fram, að finna þurfi nýjar tekjulindir til þess að standast hinn sívaxandi kostnað. Menn geta þar ekki greitt hann með útsvörum einum nje öðrum beinum sköttum.