02.03.1927
Neðri deild: 19. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1706 í B-deild Alþingistíðinda. (1304)

6. mál, fátækralög

Jörundur Brynjólfsson:

Það er ekki þannig að skilja, að jeg ætli á neinn hátt að fara að blanda mjer inn í verkefni hv. frsm. (JK), þó að jeg taki til máls. Hann er fullkomlega fær að svara fyrir hönd nefndarinnar út frá þeim umræðum, sem hjer hafa fallið, og ætla jeg því ekki að ræða málið á þeim grundvelli.

Hinsvegar vil jeg gjarnan, áður en gengið er til atkvæða, gera grein fyrir afstöðu minni gagnvart þeim brtt., sem hjer liggja fyrir og nefndin hefir ekki tekið afstöðu til.

Eins og getið var um, þegar málið var til umræðu í gær, þá er aðalbreytingin á gildandi lögum sú, er felst í 43. gr. þessa frv. Það er eina verulega efnisbreyting fátækralaganna. Aðrar breytingar, sem lagt er til að gera á gildandi lögum í þessu efni, eru flestar smávægilegar. Eins og hv. frsm. nefndarinnar tók fram, þá var mikið rætt um þessa grein í nefndinni, hvernig unt væri að koma því svo fyrir, fyrst og fremst, að menn yrðu þeirra rjettinda aðnjótandi, sem frv. ræðir um, og í annan stað, að nokkurs samræmis gætti milli hinna einstöku hjeraða. Okkur var það öllum ljóst í nefndinni, að með því að leggja þetta á vald sveitarstjórna, myndi það vart verða að öllu leyti sambærilegt, hvernig þær ljetu mönnum í tje þessi rjettindi. Jeg þykist alveg viss um, að hjá sumum sveitarstjórnum mun hjálp ekki verða talin skuld hjá styrkþega, þar sem hjá öðrum mundi í samskonar tilfellum talinn skuld, og viðkomandi misti þar af leiðandi rjettindi sín.

Til orða kom í nefndinni að hafa einhvern aðila, sem hægt væri að skjóta slíkum málum til, svo að samræmi fengist. Það varð samt ekki ofan á að gera neina tillögu þar að lútandi. En jeg veit ekki nema þetta kynni að vera rjettara og væri meiri trygging fyrir því, að fleiri menn töpuðu ekki rjettindum sínum en nauðsynlega þyrfti að vera, og gætti meira samræmis.

Við áttum líka tal um að setja svipaðar reglur og koma fram í brtt. hv. 4. þm. Reykv. (HjV). En að ekki náðist samkomulag um þesskonar till. í nefndinni, kom til af því, að menn þóttust samt sem áður ekki sleppa fram hjá þeim agnúum, að þetta yrði að nokkru leyti undir mati komið. — Þess vegna kom nefndin ekki með till. frá sjer í heild. En um þessar till. er það að segja, að þar hefir nefndin óbundin atkvæði.

Jeg er viss um, að hvort sem þessi breytingartill. verður samþ. eða ekki, verður það í flestum tilfellum svo, að styrkur þeirra manna, sem þiggja hann af óviðráðanlegum ástæðum, verður ekki talinn sveitarstyrkur. — Þetta kom greinilega fram í allshn., og við vildum sumir einmitt setja þessa breytingu, sem nú er gert ráð fyrir, sem bráðabirgðaákvæði aftan við lögin, með skírskotun til þess, að þegar ákvæði stjórnarskrárinnar, um að menn tapi kosningarrjetti, þegar þeir þiggja af sveit, verður felt í burtu, að þá falli þetta bráðabirgðaákvæði í burtu. Jeg hefði felt mig betur við það, og með því móti er enn sterkar gefið í skyn, að þingið hafi hug á að gera þessa breytingu. Úr því að ekki náðist samkomulag, var ekki svo mikill skoðanamunur innan nefndarinnar, að vert væri að gera ágreining út af því. Jeg er alveg sammála hv. 1. þm. Reykv. (JakM) um, að það er sú eðlilega lausn á þessu máli, að þar sem liggur fyrir frv. um breyting á stjórnarskránni, verði þessi breyting einmitt gerð.

Þá ætla jeg að víkja stuttlega að brtt. hv. 4. þm. Reykv. (HjV). Þær eru gamlir kunningjar, og jeg hefi áður í 2 eða 3 skifti fengið tækifæri til að lýsa afstöðu minni til þeirra. a-, b- og c-lið 2. brtt. mun jeg greiða atkv. Reyndar er í þeim dálítið vikið frá því, sem hefir verið áður, en sá munur er ekki það mikill, að jeg geti ekki greitt þeim atkvæði. Þær eru nokkuð rýmri en þær voru, þegar þáverandi 2. þm. Reykv. (JBald) og jeg gengum frá þeim, en jeg mun fylgja þeim til 3. umr.

Hinum liðunum get jeg ekki greitt atkvæði, meðal annars af því, að jeg álít, að meðan ekki er öðruvísi skipulag á fátækralöggjöfinni en nú er, sje ekki hægt að koma í veg fyrir, að fólk verði flutt hreppaflutningi. Jeg get persónulega látið þá skoðun í ljós, að mjer þætti skemtilegast að vera alveg laus við fátækraflutninginn. En áður en það getur orðið þarf að gera miklu ítarlegri breytingar en gert er í þessu frv., og það er ekki eins auðvelt og háttv. 1. þm. Reykv. (JakM) heldur. Það er víst, að ef aðeins er horfið að því að hætta við fátækraflutninginn án frekari breytinga, og það verður ofan á, að t. d. hver framfærslusveit greiði kostnað af þurfalingunum, yrði alveg ofvaxið mörgum sveitarfjelögum að standa straum af því. Þau sveitarfjelög, sem ættu að sjá fyrir ómögum í Reykjavík eða öðrum stöðum, þar sem dýrt er að lifa, yrðu hart úti, enda er það eingöngu þessi ástæða, sem hefir valdið því, að flutningurinn hefir átt sjer stað.

Það virðist vera einfalt mál að borga alla fátækraframfærslu úr sameiginlegum sjóði, t. d. ríkissjóði. En þá er ekki auðvelt að koma því svo fyrir, að þeir einir njóti, sem þurfa, og með þessu móti er mjög hætt við misnotkun opinbers fjár. Vitaskuld er það ekki nema skylda hvers þjóðfjelags að rjetta hjálparhönd þeim, sem þurfa, en það er nú svo, að okkar þjóðfjelagi er ofvaxið að gera það fram yfir hina sönnu þörf. Það er einmitt í þessu, sem mestu vandkvæðin eru fólgin. En hafi hv. 1. þm. Reykv. (JakM) einhverja sjerstaka tillögu í þessa átt, væri ánægjulegt að fá að heyra hana, og jeg veit, að allshn. væri fús á að líta á tillögur hans til 3. umr. Jeg held, að það sje ekki fyllilega rjett hjá honum, að þingmenn hafi ekki vilja á að gera umbætur á þessu sviði.