21.03.1927
Neðri deild: 35. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í B-deild Alþingistíðinda. (132)

1. mál, sveitarstjórnarlög

Hákon Kristófersson:

Jeg vil byrja með því að biðja velvirðingar á því, að jeg hafði ekki athugað, að þetta frv. væri á dagskrá hjer í dag. Því að ef jeg hefði gert það, mundi jeg hafa komið fram með brtt. og reynt að koma í veg fyrir, að þetta fáránlega frv. næði fram að ganga. Sum ákvæði þessa frv. eru svo afkáraleg, að jeg undrast það, að núverandi hæstvirt landsstjórn skuli hafa gengið frá því. Þessu til sönnunar vil jeg leyfa mjer að benda á ákvæði 30. gr. frv., um það, að sektir megi taka lögtaki í eignum oddvita o. s. frv. Finst mjer það lítil nærgætni gagnvart hreppsnefndaroddvitum að fá sumum sýslumönnum slíkt vald í hendur, því hætt væri við, að þetta gæti orðið mjög tvíeggjað sverð í höndum á mörgum þeim mönnum, sem hæstv. stjórn telur sjer þó skylt að halda í embætti. Jeg tel það skyldu mína sem hreppsnefndaroddvita að vinna á móti því, að óhlutvöndum mönnum sje fengið slíkt vald í hendur, því að geta má nærri, hvernig því mundi verða beitt, ef ósamkomulag eða óvild væri milli oddvita og hlutaðeigandi yfirvalds. Sje það aftur á móti rjett, að ekki muni til þess koma, að slíkum ákvæðum yrði beitt, þá sýnist engin ástæða til að hafa þau í löggjöfinni. Þau hafa líka aldrei verið til áður í sveitarstjórnarlögum okkar í því sambandi, sem þau eiga nú að vera. Jeg vil leyfa mjer að beina því til hæstv. forseta, að hann taki þetta mál af dagskrá og fresti umræðum um það, svo að jeg fái tækifæri til þess að koma fram með brtt., ef vera mætti, að enn væri unt að leiðrjetta þær hörmulegu misfellur, sem hjer hafa átt sjer stað.

Að öðru leyti ætla jeg ekki að ræða þetta frekar nú, en vil beina þeirri spurningu til hæstv. atvrh. (MG), hvaða ástæðu hann hafi fundið til þess að hækka laun oddvita úr 3 kr. upp í 4 kr. fyrir hvern fullan tug hreppsbúa. Mjer skilst, að hjer hljóti einhver almenn óánægja að hafa verið á ferðinni yfir því, að laun oddvita væru of lág, þó mjer sje ekki kunnugt um það. Það skal að vísu viðurkent, að laun oddvita eru ekki há, en þó svo sje, þá held jeg, að hver góður maður sje fús til að inna þessi störf af hendi fyrir sitt hreppsfjelag, án sjerstaks tillits til þess, hver launin eru, svo fremi þeim sje mögulegt að hafa þennan starfa á hendi. Mjer virðist líka, að það sje tæplega rjettlátt, að oddviti hafi há laun, en hinir nefndarmennirnir alls engin, enda þótt jeg viðurkenni það hinsvegar, að öll helstu störfin, að undantekinni niðurjöfnun, komi á herðar oddvita. Sem sagt, mjer er ekki kunnugt um það og mjer þykir það ótrúlegt, að óskir um launahækkun hafi komið frá oddvitunum sjálfum, og jeg verð að segja það, að mjer kemur þessi hækkunarráðstöfun á óvart, einkum þegar á það er litið, að hún kemur frá núv. hæstv. stjórn, sem jeg tel yfirleitt varfærna í slíkum sökum. Jeg verð að segja það, að ef þetta frv. verður að lögum, tel jeg það ekki annað en auðvirðilega bót á gamalt fat, bót, sem jeg átti síst von á úr þeirri átt, sem þetta frv. kom úr, sem sje frá hæstv. stjórn. Eins og jeg sagði áðan, tel jeg það mjög varhugavert að fá slíkt vald í hendur sýslumönnum eins og þeir eru nú, að þeir geti fyrst ákveðið hreppsnefndum sektir og síðar tekið þær lögtaki í eignum oddvita. Það er að vísu sagt, að slíkum sektardómum megi áfrýja til ráðherra, en það hefir nú stundum verið talsverðum örðugleikum bundið að fá rjetting mála sinna hjá hinu háa stjórnarráði, þó að menn hafi verið ofríki beittir fyrir heimsku og gerræði yfirvalda. Mjer þykir vænt um, að þetta frv. gefur mjer tilefni til að minnast á þetta. Hinsvegar skal jeg taka það fram, að þó að jeg sje ekki sammála hæstv. atvrh. hvað þetta frv. snertir, þá rýrir það á engan hátt það traust, sem jeg ber til hans yfirleitt. Því að kunnugt má það vera, að jeg er mjög ánægður með þá stjórn, sem nú situr að völdum. (HStef: Um þetta ætti að tala á eldhúsdegi). Já, en jeg býst ekki við að taka neinn þátt í væntanlegum eldhúsdagsumræðum. Það verður líklega hv. sessunautur minn (HStef), sem tekur það starf að sjer að ásaka hæstv. stjórn á eldhúsdaginn. Til þess verða aðrir, ef til vill ekki minn kæri sessunautur (HStef), eins og jeg sagði áðan, heldur einhverjir aðrir ennþá óhlutvandari menn.

Jeg vil að endingu leyfa mjer að skora á hæstv. forseta að taka þetta mál af dagskrá nú, eða ef hann er því ekki hlyntur, að bera það undir deildina. Þetta frv. er svo stórkostlega gallað, í þeirri mynd, sem það nú er, að óbreytt má það ekki verða að lögum.