16.03.1927
Neðri deild: 31. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1774 í B-deild Alþingistíðinda. (1329)

6. mál, fátækralög

Frsm. (Jón Kjartansson):

Jeg verð að taka til máls út af ummælum tveggja hv. þm., sem talað hafa.

Hv. 2. þm. Eyf. (BSt) sagði, að við hefðum hjer blandað saman tvennu óskyldu: sveitarstyrk og kosningarrjetti. En þetta er ekki rjett. Hjer er aðeins verið að leiðrjetta mikið misrjetti, sem verið hefir. Nú er það svo, að allir menn, sem þegið hafa sveitarstyrk, án nokkurs tillits til þess, af hvaða ástæðum þeir hafa þegið, missa kosningarrjett sinn. Frv. fer fram á að leiðrjetta þetta. En eins og jeg tók fram við 2. umr., þá er jeg ekki fyllilega ánægður með þá leið, sem frv. stingur upp á. En eins og sakir standa, þá er ekki önnur leið fær, nema þá ef hv. Alþingi vill fara þá leið, sem hv. 4. þm. Reykv. vill fara, að gera alt landið að einu framfærslufjelagi. En það get jeg vel skilið hjá hv. þm., að hann telji varhugavert að aðhyllast tillögur hv. 4. þm. Reykv. athugasemdalaust, og jeg býst við, að þessi hv. deild sje honum þar sammála.

Þrír hv. þm. hafa lýst því yfir, að þeir mundu verða á móti frv., ef víðtækar breytingar ná ekki fram að ganga. Jeg skil nú ekki þessa aðstöðu. Í frv. er farið fram á að leiðrjetta mesta órjettlætið, sem nú er ríkjandi, án þess að gera neinar stórfeldar breytingar á fátækralögunum, og sýnist mjer þá næsta undarlegt, að þessir hv. þm. skuli vilja kasta því og heldur búa við það ranglæti, sem er. Jeg fer að halda, að ekki beri að taka alvarlega þær raddir, er látið hafa til sín heyra um ómannúð og órjettlæti gildandi laga um þessi mál, ef hv. deildarmenn greiða atkvæði móti frv. eins og það liggur fyrir.

Hv. 4. þm. Reykv. (HjV) þarf jeg ekki að svara frekar. Jeg held mjer fast við það, er jeg sagði í gær, að jeg tel ómögulegt og óverjandi að samþykkja aðalbreytingar hans að órannsökuðu máli. Afleiðingar þeirra álít jeg mundu verða þær, að ýta undir sveitarstjórnir að eyða og bruðla sem mestu að þörfu og óþörfu. Engin hvöt til að fara sparlega og hagsýnilega með fjeð, því að þær, sem spara, mega eiga von á kröfu um greiðslu til að seðja hít þeirra óhófsömu, sem fá endurgreitt það, er þær hafa eytt umfram meðallag, samkvæmt niðurjöfnun. Þessa leið er ekki hægt að fara, nema settar sjeu skorður við því, að illa sje farið með fjeð. — Jeg hefi svo ekki meira að segja um málið, en vona, að ekki verði margir til að fylgja þessum þrem hv. þm. um að vera á móti frv., þótt brtt. hv. 4. þm. Reykv. eða hv. 1. þm. N.-M. verði feldar.