19.03.1927
Efri deild: 32. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1793 í B-deild Alþingistíðinda. (1340)
6. mál, fátækralög
Jón Baldvinsson:
Mjer fanst hv. 2. þm. Rang. (EJ) líta nokkuð á þetta mál með augum fátækrastjórnarinnar, þ. e. a. s. þeirra manna, sem eiga að framkvæma lögin, og sem náttúrlega geta búist við nokkuð auknu erfiði, af því að þeim hefir verið breytt. En það er naumast hægt að líta á þau frá því sjónarmiði eingöngu, því að það eru menn hinumegin líka, það er fólk, sem máske hefir orðið fyrir því óláni af óviðráðanlegum ástæðum að þurfa að leita sveitarstyrks, og þá get jeg ekki hugsað mjer, að fátækrastjórnir, enda þótt sumar hverjar kunni að hafa stirðnað upp í framkvæmd gamalla lagabálka, geti litið svo á, að fólkið, sem fyrir þessu verður, megi ekkert hafa um þetta að segja. Því að mjer finst alveg sjálfsagt, að það fái nokkuð að segja um það t. d., hvort það vill láta börnin frá sjer. Hv. 2. þm. Rang. lítur aðeins á málið frá sjónarmiði fátækrastjórnanna, hvort þetta verður meira erfiði fyrir þær eða ekki, en ekki frá því mannlega sjónarmiði, sem ætti að koma til greina.
Hæstv. atvrh. (MG) þykist nú ekki vera alveg berskjaldaður í þessu fátækramáli, þar sem hann getur borið fyrir sig hv. Nd., hún hafi svo sem ekki fundið mikið að frv. hæstv. ráðh. En það er nú sannast að segja, að jeg álít, að stjórnin hefði átt að leitast við að gera frv. betur úr garði en áður, bæði með því að gera það einfaldara og framkvæmdina umsvifaminni; hæstv. atvrh. hlýtur að játa, að þótt framkvæmd fátækralaganna sje komin í nokkuð fast horf, vegna þess, hve lengi þau hafa verið notuð, að það er afskaplega langur tími, sem fer í hana, vegna þess mikla þjarks, sem löngum verður milli framfærsluhjeraðanna út af sveitfesti þurfalinga.
Það er nú svo, að hæstv. ráðh. má ekki skjóta sjer inn undir þingið og segja, að það vilji ekki samþykkja þetta eða hitt. Mjer finst, að stjórnin ætti að hugsa upp heppilegar breytingar á lögunum, sem betur mættu fara, og jeg álít ekki, að neinn ráðherra eigi að hugsa um það eitt, hvort hann kemur þessu máli fram eða ekki, heldur hitt, hvort hann fer með rjett mál eða ekki; því að ef það er ávalt hugsun stjórna yfirleitt að reyna altaf að aka svo seglum eftir vindi að samræma alt við vilja meiri hl. í þinginu, en stinga sjálfar aldrei upp á neinu, þá verður aldrei mikið gagn að uppástungum þeirra. Jeg álít, að þær eigi að finna nýjar leiðir í löggjöfinni og reyna að gera þjóðarbúskapinn einfaldari heldur en að vera altaf að reyna að þóknast meiri hlutanum. Og svo getur stjórnin heldur ekki vitað, nema hv. Nd. hefði fallist á breytingar hennar, því að hæstv. ráðh. veit, að stjórnin hefir stóran flokk að baki sjer í deildinni, og ef hún hefði viljað beita sjer á þá leið, sem jeg talaði um, þá býst jeg við, að hún hefði getað fengið sína flokksmenn til að fylgja sjer. En að láta undan með það, sem rjett er og sanngjarnt, af því að ekki sje hægt að koma því fram, álít jeg alveg fráleitt hjá hverri stjórn; því að jeg álít, að hver stjórn eigi að fylgja reglunni: „Til frægðar skal konung hafa, en eigi til langlífis“. Jeg tel rangt að vera altaf að reyna að þóknast meiri hlutanum, en hafa aldrei neitt frumkvæði í löggjöfinni sjálfri.