10.05.1927
Efri deild: 70. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1811 í B-deild Alþingistíðinda. (1353)

6. mál, fátækralög

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Það er rjett athugað hjá hv. 2. þm. S.-M. (IP), að í 3. málsgr. 43. gr. stendur, að sveitarstjórn sje heimilt að gefa upp þeginn sveitarstyrk, ef 2 ár eru liðin frá því, að þurfamaðurinn þáði af sveit. En það mætti vel skjóta inn í 1. málsgr., að sveitarstjórn skyldi innan þriggja mánaða ákveða, hvort styrkur skyldi endurkræfur. Jeg hefi ekkert á móti því, að slíkur frestur sje veittur. Það má bara ekki vera langur tími, vegna samningar kjörskrárinnar.