12.05.1927
Efri deild: 72. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1820 í B-deild Alþingistíðinda. (1360)
6. mál, fátækralög
Frsm. (Guðmundur Ólafsson) :
* Jeg þarf eiginlega ekki að svara fyrir hönd nefndarinnar ræðu hv. 5. landsk. (JBald). Hann játaði, að endurskoðunin væri til bóta, og hafði um það mörg lýsingarorð, hve lítið hún væri til bóta. En því fleira, sem hann taldi upp, því meiri varð bótin, að mjer skildist. Háttv. þm. var óánægður við nefndina út af því, að hún hefði hælt hæstv. atvrh. fyrir þetta frv., sem árangur endurskoðunar á fátækralöggjöfinni. Ekki var það nú gert með afarsterkum orðum. Þá kvað hann lasleika sinn og það, hve háttv. nefnd væri lítilþæg, valda því, að hann kæmi fyrst nú með brtt., og síðan fór hann að telja upp alt það, er hann hefði komið með í brtt. í fyrra og skyldi valda, að sveitarstyrkur teldist ekki skuld. Væri aðeins eitt af því komið inn í frv., þ. e. um styrk vegna aldurs. Auk þess taldi hann upp 3 aðrar ástæður fyrir óendurkræfum styrk, sem sje veikindi, slys og ómegð. En þetta er líka komið inn í frumvarpið. 43. gr. kveður svo á, að styrkur veittur vegna þessara orsaka, skuli teljast óendurkræfur.
Með öðrum orðum: Það er þó nokkuð komið fram af því, sem háttv. þm. (JBald) ber fyrir brjósti, og hefir verið tekið ekki svo lítið tillit til hans, að því er sjeð verður, og það í ekki merkilegri endurskoðun, að hans áliti. Honum finst endurskoðunin ófullnægjandi, breytingarnar of fáar og smáar. En nefndin vill heldur færri breytingar, ef það væri þá heldur von til, að ekki væru gerðar aðrar en þær, sem sjáanlega eru til bóta og allir eru ásáttir um, að nauðsynlegar sjeu. Allshn. getur t. d. alls ekki talið til bóta að gera alt landið að einu framfærsluhjeraði. Hún lítur alt öðrum augum á það mál en hv. 5. landsk. Svo er að minsta kosti um mig, og jeg þykist einnig vita vissu mína um hv. meðnefndarmenn mína. Því til sönnunar, að rjettmætt væri, að alt landið yrði eitt framfærsluhjerað, vitnaði hann í berklavarnarlögin. Ætti að hafa framfærslufyrirkomulagið líkt og nú er háttað um berklavarnir. Þessu til sönnunar tók hann dæmi, að í hverju framfærsluhjeraði gætu verið mismunandi sveitarþyngsli. Útsvör væru mun lægri í Seltjarnarneshreppi heldur en í Reykjavík, og hann bætti því við, að Seltjarnarnes væri í einskonar skattahljei við Reykjavík. Það er þá líklega eini hreppurinn, sem svo er ástatt um, því að það er almannarómur, að Reykjavík sje frekar til hins gagnstæða og auki á dýrtíðina í landinu. Það getur verið, — jeg þekki það ekki, — að útsvör sjeu í bili hlutfallslega lægri í Seltjarnarneshreppi heldur en í Reykjavík. En hitt veit jeg, að þetta veltur alla vega til eftir atvikum; sá hreppur, sem mest hefir sveitarþyngsli í ár, getur haft tiltölulega ljettar byrðar að bera að nokkrum árum liðnum.
Jeg segi fyrir mig, að jeg hefi ótrú á, að það gengi nokkuð betur, þótt alt landið væri eitt framfærsluhjerað. Jeg tel það ennfremur kost, að ekki eru teknar upp í þetta frv. aðrar breytingar, sem ymprað hefir verið á, en þær, sem allir hljóta að viðurkenna, að sjeu til bóta. Hv. 5. landsk. hefir líka gert það, þótt hann álíti þessa endurskoðun of lítið til bóta.
* Ræðuhandr. óyfirlesið.