12.05.1927
Efri deild: 72. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1828 í B-deild Alþingistíðinda. (1365)

6. mál, fátækralög

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Það er nú eins og vant er, þegar nefnt er þjóðskipulag við hv. 5. landsk. og flokksbróður hans í hv. Nd., hv. 4. þm. Reykv. (HjV), þá sverja þeir og sárt við leggja, að fyrir þeim vaki nokkrar breytingar, því síður byltingar. Það er rjett eins og þeim finnist slíkt hið mesta ódæði, sem þeim verði borið á brýn. Og þó er þjóðnýting á öllum sviðum aðalstefnumál þeirra.

En út af ummælum hv. þm. (JBald) um hv. þm. Borgf. (PO) og þá umræddu till. hans, að gera landið að einu framfærsluhjeraði, skal jeg gefa þær upplýsingar, að hann skaut aðeins fram þeirri hugsun og ljet þess getið, að vert væri það athugunar, um leið og endurskoðun væri framkvæmd á fátækralögunum. Hann hefir nú athugað málið og komist að þeirri niðurstöðu, að þessi hugmynd sje ekki framkvæmanleg.

Það er von, að hv. 5. landsk. sje úrillur og „jaloux“ yfir því, að stjórninni skuli vera hælt fyrir það, hve vel henni hafi farist undirbúningur þessa máls úr hendi. Það er eðlilegt, að honum þyki það sárt; en hann ætti að bera harm sinn í hljóði og halda honum ekki meira á loft en þörf er á.