12.05.1927
Efri deild: 72. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1829 í B-deild Alþingistíðinda. (1366)

6. mál, fátækralög

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg, nefndi ekki byltingu í ræðu minni, og var óþarfi fyrir hv. 5. landsk. að stökkva upp á nef sjer fyrir þær sakir og brigsla mjer um fákunnáttu og flaustur um þingstörf. Jeg held mjer sje alveg óhætt að bera mig saman við hv. 5. landsk. að því leyti, frá hvorum okkar komi till., sem frekar nái fram að ganga, og fyrir hvorum sjeu drepnir fleiri vanskapningar.