16.05.1927
Neðri deild: 76. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1832 í B-deild Alþingistíðinda. (1373)
6. mál, fátækralög
Halldór Stefánsson:
Við fyrri meðferð þessa máls var reynt að koma fram leiðrjettingu á stærstu annmörkum fátækralaganna, eins og t. d. fátækraflutningnum og hinum misþungu álögum, sem landsmenn verða að bera til þessara þarfa, eftir því hvar þeir eru búsettir í landinu. Það var reynt að gera þetta með því að afnema dvöl sem skilyrði fyrir sveitfesti, en það lánaðist ekki, og síst hefir hv. Ed. úr því bætt. Til dæmis álít jeg, að Ed. hafi stigið stórt spor aftur á bak frá því sem nú er, með brtt. sinni við 21. gr., þar sem hún vill setja það að skilyrði fyrir 4 ára sveitfestitíma, að maður hafi ekki þegið sveitarstyrk síðastliðin 10 ár. Framfærsluskyldan er lögð á landsmenn með stjórnarskránni sem almenn útgjaldakvöð, sem vitanlega á að leggja á eftir sömu reglum og skatta og tolla alment, en ekki misþungt eftir því, hvar menn eru búsettir í landinu. Því hefir verið haldið fram við fyrri meðferð þessa máls, bæði af mjer og öðrum, að þessar álögur væru mjög misþungar í hinum ýmsu framfærsluhjeruðum. Jeg hefi reynt að gera mjer ljósari grein fyrir því síðan, hvernig þessu er háttað, en það er erfitt, þar sem ekki er auðsjeð. við hvað á að miða. Jeg hefi tekið fátækraframfærið 1924–25 og hefi hallast að því að miða við manntal.
Manntalið er að vísu ekki alveg rjettur mælikvarði, og fyrir sýslurnar er fátækrakostnaðurinn ekki miðaður við sama ár og manntalið, en jeg hafði ekki aðgang að sundurliðuðu manntali sýslnanna fyrir 1924, og þar sem breytingar á fólksfjölda eru hægfara í sýslunum, þá vænti jeg, að það muni litlu með útreikninginn. Eftir þeim gögnum, sem jeg hefi haft, hefi jeg þá reiknað út fátækraframfæri á mann, þannig:
Fátækraframfæri 1924–'25 ámann eftir manntali, í sveitum
Fátækraframfæri 1924–'25 ámann
eftir manntali, í sveitum 1920, í kaup-
stöðum 1924.
Hæst Lægst Meðaltal
Einstök framfærsluhjeruð. í framf.hjeraði í sýslu.
Í Gullbr. og Kjósarsýslu (30.00)
106.00 7.00 22.00
- Borgarfjarðarsýslu . . 13.00 1.00 9.00
- Mýrasýslu 13.00 » » 7.00
- Snæf.n. og Hnappads. 14.50 3.50 9.00
- Dalasýslu 19.00 1.00 9.00
- Ísafjarðars. (báðum) . 17.00 1.00 7.50
- Strandasýslu 11.00 1.50 6.00
- Húnavatnssýslu . . . . 14.50 1.50 7.00
- Skagafjarðarsýslu. . . 10.50 1.50 5.00
- Eyjafjarðarsýslu. . . . 17.00 2.00 7.00
- Þingeyjars. (báðum) . 11.00 1.00 5.00
- N.-Múlasýslu 22.00 2.50 9.00
- S.-Múlasýslu 15.00 2.50 8.00
- A.-Skaftafellssýslu . . 1.50 » » 0.60
- V.-Skaftafellssýslu . . 7.50 2.00 4.50
- Rangárvallasýslu . . . 10.00 3.50 6.50
- Ámessýslu 17.00 2.50 11.50
Kaupstaðir:
Í Reykjavík 16.00
- Hafnarfirði 10.00
- Ísafirði 23.50
- Akureyri 9.50
- Siglufirði 13.00
- Seyðisfirði 10.00
- Vestmannaeyjum . . . 12.00
Alt landið (manntal 1924) . . . 10.50
Barðastrandarsýslu vantar.
Jeg skal geta þess, að hin háa tala, sem á við Bessastaðahrepp í Gullbringu- og Kjósarsýslu, stafar af alveg sjerstaklega háum kostnaði þetta ár, því að næsta ár var hann t. d. ekki nema rúmar 30 kr. á mann.
Mjer hefir dottið í hug, að finna mætti sæmilega rjettan mælikvarða, til dæmis með því að miða við manntalið að 1/3, skuldlausa eign hvers framfærsluhjeraðs að 1/3 og skattskyldar tekjur að 1/3. En þó að notaðir væru þessir stofnar til að miða við, mætti sennilega hafa annað töluhlutfall á milli stofnanna en 1/3.
Þó að jeg sje mjög óánægður með afgreiðslu þessa máls og þyki engin úrlausn fengin til rjettingar á mestu agnúunum, hefi jeg ekki sjeð mjer fært að bera nú fram brtt. Engu að síður finst mjer nauðsynlegt að gera einhverja rjettingu á þeim annmörkum, sem eru á fátækralögunum. Til dæmis mætti fara þá leið, að framfærsluhjeruðin sendu þegar eftir uppgjöf ársreikninga ríkisstjórninni yfirlit yfir framfærslukostnað sinn, og hún ljeti síðan athuga, hver mismunur væri í hinum ýmsu framfærsluhjeruðum, og jafnframt væru gerðar einhverjar ráðstafanir til að jafna a. m. k. mesta misrjettið.
Samkvæmt framansögðu tel jeg, að þessi endurskoðun fátækralaganna hafi ekki borið viðunandi árangur, því að það er ekki viðunandi lausn á málinu eftir svo ítarlega íhugun, þegar stjórnin hefir haft málið til íhugunar á milli þinga, að hafa ekki gert einhverjar rjettarbætur á átakanlegustu göllunum, sem eru á þessari löggjöf. Jeg vil því gera það að tillögu minni, að málinu verði á ný vísað til stjórnarinnar til frekari rannsóknar og undirbúnings fyrir næsta þing, og verði þá tekið tillit til þess, sem fram hefir komið við meðferð málsins í vetur, og reynt að bæta úr þeim mestu agnúum, sem fundið hefir verið að á þessari löggjöf, frekar en gert er með þessu frv.