21.03.1927
Neðri deild: 35. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1854 í B-deild Alþingistíðinda. (1389)

115. mál, bankavaxtabréf

Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):

Jeg þarf í rauninni ekki að bæta mörgu við það, sem sagt er í greinargerðinni fyrir frv. þessu á þskj. 161. Frv. er borið fram af fjhn. þessarar hv. deildar eftir ósk hæstv. fjrh. (JÞ). öllum hv. þdm. er fullkunnugt um þörf manna fyrir veðlán; um hana þarf ekki að fjölyrða. Ráðstafanir síðasta þings í þessum efnum hafa ekki nægt nema til bráðabirgða, enda mun veðlánaþörfin hafa reynst mun meiri en gert var ráð fyrir á síðasta þingi. Það er ekki að undra, þótt þörfin sje mikil nú, því að það má segja, að veðdeildin hafi ekki starfað svo neinu nemi síðan 1918. — Ástæðurnar fyrir þessu frv. eru annars best skýrðar í brjefi landsbankastjórnarinnar til hæstv. fjrh., sem prentað er á þskj. 161. Við það, sem þar er tekið fram, vil jeg aðeins leyfa mjer að bæta nokkrum orðum. Hæstv. fjrh. (JÞ) tjáði nefndinni, að brjef ræktunarsjóðsins væru nú lítt seljanleg nema með afföllum, og svo yrði það í náinni framtíð, ef ekkert væri aðhafst til að ljetta undir og greiða fyrir sölunni. Jeg hefi átt tal við forstjóra sjóðsins, og hafa þeir tjáð mjer, að þeir hafi nú lánað sem svari milj. kr., en vegna örðugleikanna á sölu brjefanna sjái þeir sig nú neydda til að kippa að sjer hendinni og neita um lán til bygginga í sveitum. Lán sjeu nú aðeins veitt til jarðræktar.

Jeg býst nú við því, að flestum muni hrjósa hugur við því að ráðast í nýjar lántökur erlendis, og mjer finst það eðlilegt, en hjer er nokkuð öðruvísi ástatt en um flest önnur lán. Þetta fje verður ekki eyðslufje, og lánskjörin eiga að vera með þeim hætti, að ríkissjóður hafi engan halla af láninu. Jeg tel líka víst, að meiri hl. fjhn. mundi verða á móti því, ef um lántöku væri að ræða til eyðslu. Nú er svo ástatt, að við höfum enn ekki getað selt okkar veðlánabrjef á erlendum markaði, en það er sú leiðin, sem flestar þjóðir fara og telja hættulausa. Það er að sjálfsögðu tilætlunin, að þessu láni verði hagað svo, að vextir og afborganir af þeim lánum, sem veitt verða í veðdeildinni og ræktunarsjóði, nægi til þess að greiða vexti og afborganir af þessu erlenda láni. Það má að vísu gera ráð fyrir því, að nokkur útgjöld leiði af lántökunni fyrstu árin, og að ríkissjóður verði að leggja út svo sem 15–20 þús. kr., en það fje fæst endurgreitt síðar, þegar líður á lánstímann.

Það, sem farið er fram á með frv., er aðeins það að tryggja mönnum ræktunarsjóðs- og veðdeildarlán — fasteignaveðslán — og skapa þessum lántakendum betri kjör en ella eru fáanleg, og það án sjáanlegrar áhættu fyrir ríkissjóðinn.

Þá hafði Landsbankinn farið fram á, að breytt yrði nokkrum ákvæðum um veðdeildarflokkana. Það fyrirkomulag yrði þægilegra og hentugra, einkum að því leyti, að tveir flokkar gætu verið opnir samtímis.

Jeg er ekki viss um, að það lánist að fá eins hagkvæmt lán í Danmörku eins og á síðasta ári. En lán með mun óaðgengilegri kjörum væri varla takandi til þess að bæta úr veðlánaþörfinni. En það er búist við því, að ríkisstjórninni takist að fá hentugt lán til nógu langs tíma. Í frv. er gert ráð fyrir, að lögin verði aðeins heimildarlög, svo ef ekki fást viðunandi lánskjör, þá er rjettara, að minsta kosti í bili, að fresta lántökunni, einkum þar sem búist er við, að vextir lækki innan skamms í þeim löndum, þar sem von er um, að lán fáist.

Landsbankastjórnin gerir ekki ráð fyrir meira en 3 milj. kr. til veðdeildarinnar. En bæði nefndin og hæstv. fjrh. telja ekki síður þörf að bæta úr fjárskorti ræktunarsjóðsins, og með það fyrir augum óskar nefndin, að heimildin nái til 43/4 milj. kr. lántöku.