21.03.1927
Neðri deild: 35. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1857 í B-deild Alþingistíðinda. (1391)

115. mál, bankavaxtabréf

Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):

Það er alveg undir lánskjörum erlenda lánsins komið, hver lánskjör lánþega verða. En við álítum, að kjörin megi ekki vera öllu lakari en á þriggja miljóna láninu í fyrra. Um það er ekkert hægt að fullyrða fyrirfram, en jeg vildi leggja áherslu á, að heldur verði beðið, þó að erfitt sje, en að taka lán með slæmum kjörum.