18.05.1927
Efri deild: 77. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1926 í B-deild Alþingistíðinda. (1448)

134. mál, seðlainndráttur Íslandsbanka

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Mál þetta er flutt af hv. fjhn. Nd. og stóðu að því 6 af 7 nefndarmönnum. Er þetta gert eftir tilmælum bankastjórnar Íslandsbanka í brjefi, sem sent var formanni bankaráðsins. — Ástæðurnar fyrir málaleitun þessari eru þær, að það þykir óhentugt, eins og sakir standa, að draga inn 1 milj. kr. af seðlum Íslandsbanka á yfirstandandi ári, og þá auka um leið að sama skapi víxlafúlgu Landsbankans, vegna endurkaupa hans á víxlum Íslandsbanka. Er það samkomulag milli bankastjóra Landsbankans og Íslandsbanka, að æskilegt sje að fresta inndrætti seðlanna nú.