14.02.1927
Efri deild: 5. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1945 í B-deild Alþingistíðinda. (1474)

22. mál, skipun prestakalla

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Jeg ætla ekki að fylgja hætti hv. 1. landsk., að gera hvert þingmál, er mjer kynni að detta í hug, að umræðuefni í sambandi við þetta frv. Mjer finst t. d. ræktun landsins koma þessu máli ákaflega lítið við. Þá mintist hann einnig á starf nefndar, er kosin var af sameinuðu þingi í fyrra til þess að athuga undirbúning hátíðahaldanna á Þingvöllum 1930. Frá þessari nefnd hafa engar tillögur komið til stjórnarinnar, er snerti nokkuð af því, er þessi hv. þm. talaði um. En hann getur ekki vænst þess, að stjórnin geri honum svo hátt undir höfði, að hún fari að ræða við hann um mál, er bera á góma innan nefnda, en stjórnin hefir ekkert heyrt um frá nefndinni sjálfri. Annars munu hv. þingdeildarmönnum kunnar ástæðurnar fyrir frv. þessu. Svo var ákveðið með lögum nr. 45, 16. nóv. 1907, að Mosfellsprestakall skyldi lagt niður og sameinað Reykjavík og Reynivallaprestakalli. Síðan þetta var ákveðið, hefir sú breyting orðið á hjer í Reykjavík, að fólksfjöldi hefir tvöfaldast, en tala presta ekki fjölgað, svo að vitanlegt er, að dómkirkjuprestarnir í Reykjavík geta ekki sint þeim hluta Mosfellsprestakalls, sem þeim er ætlaður. Nú er svo ákveðið í lögunum frá 1907, að samsteypan eigi fram að fara, þegar landsstjórninni sýnist, að því verði við komið. Og þegar prestakallið losnaði, fór svo, að stjórninni sýndist þetta ekki tiltækilegt, og jeg geri mjer enga von um, að það verði fremur hægt hjer eftir en hingað til, með öllum þeim fólksfjölda, sem nú er hjer í bæ.