14.02.1927
Efri deild: 5. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1946 í B-deild Alþingistíðinda. (1475)

22. mál, skipun prestakalla

Jónas Jónsson:

Út af skoðun hæstv. ráðh. (JÞ) um Þingvallanefndina vil jeg segja það, að sá, sem ber fram þetta frv., lokar leiðinni til þess að sameina þetta brauð Þingvallabrauði. Ábyrgðin hvílir því á hæstv. ráðh. (JÞ), sem ber fram þetta frv., en veit af því, að altaf hefir verið opin deila við Þingvallaprestinn, síðan hann fjekk þetta brauð. Nú er verið að loka fyrir, að leyst verði skynsamlega úr Þingvallamálinu.