05.04.1927
Efri deild: 45. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1949 í B-deild Alþingistíðinda. (1480)
22. mál, skipun prestakalla
Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):
Jeg vil aðeins gera þá aths., að mjer þótti hv. frsm. (GÓ) mæla um of, er hann sagði, að prestsþjónusta í Mosfellsprestakalli hefði farið fram þvert ofan í lög. Svo er nefnilega ekki. Í 3. gr. laganna um skipun prestakalla frá 1907 segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Landsstjórnin hlutast til um, að þær breytingar á skipun prestakalla, sem að ofan eru ákveðnar, komist á, eftir því sem prestaköllin losna, svo fljótt, sem því verður við komið“. Nú er það að vísu svo, að Mosfellsprestakall hefir losnað síðan þessi lög voru sett, en sá prestur, sem nú er í Reynivallaprestakalli, hefir alls enga skyldu til að taka að sjer þá sókn, sem honum er ætluð í lögunum. Þannig eru þau skilyrði, sem þarf til þess að koma lögunum í kring, ekki fyrir hendi. Niðurlag 3. gr. laganna 1907 grípur líka yfir allar ástæður, hvers eðlis sem eru, er hamlað geta samsteypu prestakalla. Og þar sem nú kirkjumálastjórnin álítur, að ekki sje hægt að koma því við að sameina tvær sóknirnar Reykjavíkurprestakalli, verður heldur ekki sagt, að lögin hafi verið brotin í því atriði. — Annars vil jeg í fjarveru dóms- og kirkjumálaráðherra þakka hv. allshn. fyrir góðar undirtektir þessa frv.