31.03.1927
Efri deild: 41. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (149)
1. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. (Guðmundur Ólafsson):
Framhaldsnál. þessu var ekki útbýtt fyr en nú á fundinum, en jeg býst við, að allir hv. þm. hafi fengið það nú í hendur og kynt sjer það. Það er ekki nema ein breyting, og hún bæði lítilfjörleg og óþörf, sem háttv. Nd. hefir gert við frv., og það er, að um reikning fjallskilasjóðs skuli gilda sömu ákvæði um endurskoðun og gilda um aðalsveitarsjóðsreikning. í nál. háttv. allshn. Nd. er sagt, að þessi breyting á frv. sje til bóta, en jeg verð að telja það ofsagt, því að það er engin ástæða til að taka hreppskilasjóðsreikninginn sjerstaklega út úr. Það eru ýmsir fleiri reikningar, sem standa undir hreppsnefnd, sem ekki eru nefndir, en fara Verður með á sama hátt að því er endurskoðun snertir. Nefndin álítur, að óþarft hafi verið að taka nokkuð fram um einn sjerstakan reikning, því það hefði þá alveg eins átt að telja þá alla upp, en það er auðvitað ógerningur, svo margir og mismunandi sem þeir eru. Enda er það og venja, að þessir reikningar komi undir endurskoðun sýslunefndar. Nefndin hefir ekki, þótt hún álíti breytingu Nd. óþarfa, komið fram með till. um að fella hana niður aftur, til þess að tefja ekki fyrir frv., og leggur hún því til, að frv. verði samþykt eins og það nú liggur fyrir.