29.04.1927
Neðri deild: 62. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1983 í B-deild Alþingistíðinda. (1516)
112. mál, Mosfellsheiðarland
Ólafur Thors:
Mjer er ljóst, að orðalengingar um smámál sem þetta hafa enga þýðingu og gera ekki annað en að þreyta hv. þdm.
Þó get jeg ekki leitt hjá mjer að leiðrjetta ýmsar villur, sem komist hafa inn í nál. hv. allshn. Hv. allshn. telur mesta skaða að selja þennan landskika undan jörðinni. Jafnhliða telur hún, að sveitin hafi enga þörf fyrir land þetta. Þá skýrir nefndin frá því í áliti sínu, að þetta umrædda svæði, sem farið er fram á, að sveitin fái keypt, sje aðalbeitarland jarðarinnar. En þetta er rangt. Heiðarlandið er afrjettur jarðarinnar, en fyrir nautpening og annan búpening, sem haldið er heima á sumrum, er land þetta með öllu ónothæft til beitar. Það liggur um 7–10 km. frá peningshúsum jarðarinnar og mundi taka um 3 Stundir morgna og kvöld að koma nautpeningi í haga og sækja hann. Og geta allir dæmt um, hvílíkur búhnykkur það mundi verða fyrir ábúanda Mosfells að nota þetta land fyrir kúabeit.
Það eina, sem hægt er að segja, að ábúandi Mosfells fari á mis við, ef landið er selt, er slægjukaup það, sem hann hefir fengið fyrir að leyfa heyskap í heiðarlandi jarðarinnar. En þó segja kunnugir mjer, að það gjald sje ekki hærra en það, að ekki hrökkvi það til þess að greiða fjallskilakostnað af landinu. Að mínu viti er aðalkjarni málsins sá, að andvirði hins selda lands á að nota til þess að bæta og rækta heimaland jarðarinnar. Fróðir menn munu telja, að fjárhæð sú, er fæst fyrir hið selda land, muni nægja til þess að rækta um 6–10 hektara, en það orkar ekki tvímælis, að sá viðauki við ræktað land jarðarinnar er ábúanda jarðarinnar miklu meiri fengur en heiðarlandið.
Nefndin segir í áliti sínu, að hinn svo nefndi Mosfellsvíðir sje allur tættur og mikið af því landi selt undan jörðinni. En þetta er ekki rjett. Það mun láta nærri, að búið sje að tæta um 1/3 af landi þessu, en af því hefir verið selt um 1/3 undan jörðinni. Eftir munu vera um 80 hektarar, sem að mestu leyti eru ótættir enn. Auk þessa á jörðin eftir stórar landspildur, sem er nægilegt beitiland fyrir nautpening og hesta, þótt búið margfaldaðist, miðað við það, sem verið hefir.
Enn á jörðin allstórt landflæmi, sem kallað er Jónssel. Hefir það að jafnaði verið notað til slægna frá Mosfelli, en til þessa lands nær söluheimildin ekki.
Loks má nefna eina landspildu enn, sem Bringur heita, sem að vísu er í bygð nú. En svo er um hnútana búið, að ábúandi Mosfells getur lagt það land undir heimajörðina, ef hann sæi sjer hag í því, t. d. að hafa þar sauðfjárrækt.
Jeg verð því að mótmæla því, að jörðin sje á nokkurn hátt rýrð með því að selja heiðarland það, sem frv. fer fram á, heldur virðast mjer meiri líkur fyrir því, að einmitt þetta geti orðið til þess að bæta hana og auka verðmæti hennar til stórra muna.
Þá kem jeg nú að því atriðinu, hvort hreppnum sje nokkur þörf á að eignast landið. Um það ætla jeg ekkert að þrátta. En með leyfi hæstv. forseta ætla jeg að lesa upp kafla úr brjefi hreppsnefndarinnar til mín. Þar eru taldar fram aðalástæðurnar fyrir því, að hreppsnefndin hefir í umboði sveitarinnar farið fram á að fá þetta heiðarland keypt. Þessi kafli hljóðar þá á þessa leið:
„Meiri hluta af jörðum í Mosfellshreppi er svo háttað, að þær eru betur fallnar til sauðfjárræktarennautgripa (víðast ekkert kúgæft hey utantúns) og á mörgum þeirra er talsvert mikið land, sem alls ekki verður nytjað öðruvísi en til beitar fyrir sauðfje — haust- og vetrarbeit.
En til þess að fjáreign sje örugg og arðvænleg, þarf að tryggja til sumarbeitar svo gott land, sem kostur er á. Hreppurinn hefir ekki viðurkenningu fyrir eignarheimild nema á litlum hluta af afrjettarlandi. Fjórar jarðir aðrar en Mosfell — 3 bændaeign (Miðdalur, Elliðakot og Helgadalur) og ein þjóðareign (Þormóðsdalur) — eiga nóg upprekstrarland fyrir sig, og sumar þeirra nokkuð meira. En langmesta og besta landið á Mosfell.
Land þetta hefir hreppurinn notað sem afrjettarland frá ómunatíð og altaf annast um öll fjallskil á því og stundum goldið auk þess leigu í peningum.
Nú á síðari árum hafa ábúendur (prestar) á Mosfelli stundum leigt landið til slægna, helst Reykvíkingum. Sem eðlilegt er, hafa þá þeir menn varið landið, svo að afrjettarfjenaður hefir engan frið haft á því, en hröklast burtu, sumpart ofan í bygðina og gert þá skaða á heyjum og slægju löndum manna, og sumpart hefir hann farið í lönd annara sveita, sem flest eru heimalönd einstakra jarða, svo sem Stardals, Fremraháls, Fellsenda og Stíflisdals.
Fari nú svo, að girðingar yrðu settar á hreppa- og sýslumörkum í heiðarlandinu, sem vel má vera, sjá allir, hve nauðsynlegt það er fyrir fjáreigendur í Mosfellssveit, að þeir hafi óskift afnot af þessu umrædda landi fyrir afrjettarfjenað sinn, en þau eru mjög óviss nema hreppurinn eignist landið. Ábúandi Mosfells getur haldið áfram að leigja landið til slægna um lengri eða skemri tíma, og má þá vel vera, að þeir menn tækju, sem girtu landið að meira eða minna leyti, og þó að landið sje ekki girt, þá er það varið að mestu, eins og áður er sagt . . . . “.
Jeg hygg ekki, að jeg þurfi sjálfur að bæta neinu við þau rök, sem þessir kunnugu menn færa fyrir þörf hreppsins um að eignast þetta land. Veit jeg, að allir, sem þekkja þessa menn, leggja trúnað á orð þeirra, og vænti jeg mjer mikils styrks af umsögn þeirra, vegna þess hve þeir eru kunnir mörgum hv. þdm.
Mjer sýnist það tvent bert í þessu máli, að Mosfell verður engu verri bújörð, þótt heiðarlandið verði selt, úr því að andvirði hins selda lands gengur til ræktunar heimalandsins, og að hreppurinn hefir ríka þörf fyrir afrjettinn, þörf, sem löggjafanum ætti að vera því ljúfara að bæta úr, sem hjer eiga hlut að máli landskunnir búforkar, sannir forgöngumenn um nýrækt og fyrirmyndarbúskap í hvívetna.
Jeg lofaði að tala ekki langt mál og læt því staðar numið með þeirri ósk til hv. frsm. (JörB), — sem jeg þykist vita, að muni svara mjer —, að hann fari að mínu dæmi og tali stutt, svo að málið geti fengið afgreiðslu þegar í dag.