29.04.1927
Neðri deild: 62. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1998 í B-deild Alþingistíðinda. (1523)
112. mál, Mosfellsheiðarland
Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Jeg þykist sjá á nál., að allshn. líti svo á, að ef frv. verði samþ. og úr sölunni verði, þá verði prestssetrið svo að segja landlaust til slægna og beitar. (MJ: Presturinn mætti þá aldrei heita Jóhann, svo að hann fengi ekki viðumefnið „hinn landlausi“). Út af þessu vil jeg taka það fram, ef frv. verður samþ., að stjórnin mun telja sjer skylt að undanskilja það land, sem prestssetrið og hjáleigurnar þarfnast til þess að halda uppi sæmilegum búskap. Í orðinu heiðarland felst mótsetning við heimaland, og ekkert af heimalandinu á að selja. Jeg verð að segja, að það er næsta algengt að selja hreppsnefndum heiðarlönd kirkjujarða, til þess að hafa fyrir upprekstrarland. Jeg sje því ekkert á móti því að selja þetta heiðarland frekar en önnur, þegar eftir verður skilið nægilegt land handa jörðinni.
Það getur meira að segja verið hyggilegra að selja en að halda í það, þegar sveitarfjelagið vill kaupa; ekki hvað síst þegar þess er gætt, hvað landið er nálægt Reykjavík og hætt við, að mikið verði boðið í það. Það er vissulega mikil freisting fyrir fátækan prest að láta landið á leigu um lengri tíma, en það gæti aftur orðið erfitt fyrir sveitina, því að þá mundi hreppurinn geta orðið í vandræðum með afrjett. Aftur á móti get jeg ekki sjeð, að hlutaðeigandi prestur verði fyrir neinu skakkafalli, þótt salan nái fram að ganga, þegar eftirskilið er nóg heimaland handa jörðinni og andvirði heiðarlandsins gengur til þess að rækta hans eigin ábýlisjörð. Því er haldið fram, að mikið slægjuland sje á þessu heiðarlandi. Þannig er oft á heiðarlöndum, en slægjur eru þar vanalega ótryggar sökum ágangs. Jeg hefi viljað taka þetta sjerstaklega fram vegna þess, að hv. frsm. allshn. spurði, hvað það væri, sem ætti að selja. Mjer finst það harla undarleg spurning, þar sem það var einmitt eitt af þeim atriðum, sem nefndin átti að rannsaka.
Ef frv. verður samþ., verða matsmenn látnir meta, hve mikið land jörðin þurfi til þess, að þar geti þrifist sæmilegur búskapur.