29.04.1927
Neðri deild: 62. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2001 í B-deild Alþingistíðinda. (1527)

112. mál, Mosfellsheiðarland

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Hæstv. forseti hefir nú borið af mjer þá sök, að jeg hafi dregið að kveðja mjer hljóðs þangað til hv. frsm. (JörB) var dauður, svo að jeg þarf engu að svara því.

Jeg vil benda hv. frsm. á það, að þótt ekki sje skift úr landi fyrir hjáleiguna Bringur, er ekkert hægra en gera það að skilyrði fyrir sölunni, að nokkur hluti landsins fylgi Bringum, og þá Mosfelli líka. Þetta áleit jeg hafa tilheyrt nefndinni að gera, að fela stjórninni að undanskilja nauðsynlegt land handa þessum býlum. Það er algengt, að skifta þurfi löndum út af sölu kirkju- og þjóðjarða. Og því verður ekki sjeð, að hjer sje um meira að ræða en þegar stjórninni er falið með lögum að annast sölu kirkjujarða.

Jeg ber ekki brigður á, að rjett sje frá skýrt um slægjur í þessu landi. Jeg þekki það ekki. En hitt veit jeg, að það er algengt, að á afrjettum sjeu slægjulönd. Það ræður af líkum, að á afrjettum sje hægt að slá, að minsta kosti að þar sjeu góðir hagar, ef á annað borð er um góð afrjettarlönd að ræða. En hins þarf jeg ekki að spyrja nokkurn mann, að slægjulönd í miðjum afrjetti eru mjög ótrygg.

Að öðru leyti sje jeg ekki ástæðu fyrir mig að ræða málið. Ef frv. verður samþykt, mun stjórnin telja sjer skylt að sjá um, að nægilegt land fylgi þessum býlum.