29.04.1927
Neðri deild: 62. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2003 í B-deild Alþingistíðinda. (1529)

112. mál, Mosfellsheiðarland

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Jeg fylgist varla með þessum spurningum öllum: hvers vegna — hverjum — hvaða verð — hve nær — hvaða heimild. Þær eru víst 5, ef jeg tel rjett.

Tveir menn hafa keypt skákir í Mosfellsvíði; annar er Árni G. Eylands, en hinn Bogi Þórðarson. Heimildin fyrir sölunni er sú, er felst í lögum frá 1907 um sölu kirkjujarða. Kaupverðið man jeg ekki því miður og heldur ekki dagsetning á afsalsbrjefum. Var það svo fleira? (HjV: Hvers vegna?). Hvers vegna notar stjórnin heimildarlög, sem hún hefir? Það er af því, að hún álítur það rjettmætt. Um það má náttúrlega deila. En ástæðan var sú hjer, að fá peninga til þess að rækta þann hluta Víðisins, sem ekki var seldur. Fjenu verður varið til þess að rækta hinar skákirnar.