05.05.1927
Neðri deild: 67. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2007 í B-deild Alþingistíðinda. (1541)

112. mál, Mosfellsheiðarland

Tryggvi Þórhallsson:

Við 2. umr. um þetta mál bað jeg um upplýsingar um það, hvað kirkjustjórnin eða biskup landsins legði til um þessa sölu. Nú hefir þessi hv. deild samþykt að endurreisa Mosfellsprestakall, en hjer er um það að ræða að skerða land jarðarinnar, prestssetursins, að miklum mun.

Út af þessu vildi jeg beina þeirri spurningu til hv. nefndar, hvort hún hafi aflað sjer upplýsinga um það, hvernig kirkjustjórnin lítur á þetta.