05.05.1927
Neðri deild: 67. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2007 í B-deild Alþingistíðinda. (1542)
112. mál, Mosfellsheiðarland
Árni Jónsson:
Jeg býst við, að það sje ekki til neins að fara að ræða þetta mál nú, með því að það mun nokkurnveginn ákveðið, hvernig það á að fara. En í sambandi við það frv., sem samþ. var hjer áðan, um að endurreisa Mosfellsprestakall, vildi jeg benda á það, að það hefir hingað til verið talinn slæmur hrekkur að bjóða manni til sætis og kippa um leið stólnum undan honum. Hjer hafa þau undur skeð, að hinir sömu menn, sem hæst hafa hrópað um þörfina á því að endurreisa Mosfellsprestakall, hafa um leið róið að því öllum árum, að selt yrði landið undan prestinum. Er ekki annað sýnna en að aumingja prestinum sje ætlað að standa á öðrum fæti á blásnum þúfnakolli einhversstaðar í sókninni. Er auðsætt, að svo fýkin sem sóknarbörnin eru í hin andlegu verðmætin, þá er fýknin enn meiri í landið.
Nú má af þessu ráða, að vissulega sje þessum afvegaleiddu moldarbörnum ekki vanþörf geistlegrar uppfræðslu. En ósamræmið í atferli þeirra bendir til slíks hugsunarháttar, að vafi hlýtur jafnan á því að leika, hvort fremur sje hlutverk þjóðkirkjunnar en heiðingjatrúboðsins að sjá þeim fyrir fræðslu.