19.05.1927
Efri deild: 79. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2044 í B-deild Alþingistíðinda. (1578)
112. mál, Mosfellsheiðarland
Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Jeg tel, að í heimildinni til að selja liggi einnig heimild fyrir stjórnina til að setja skilyrði fyrir sölunni, og þá einnig um þetta atriði, t. d. þannig, að ríkissjóður skuli eiga forkaupsrjett að eigninni fyrir sama verð og selt er fyrir nú, ef hreppurinn ætlar að selja síðar. Þetta svar vona jeg, að hv. þm. láti sjer nægja.