13.05.1927
Efri deild: 73. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2081 í B-deild Alþingistíðinda. (1606)
3. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum
Magnús Kristjánsson:
Mjer kemur það undarlega fyrir, að nefndin vill ekki láta fresta atkvgr. um þessa liði, og mjer finst það hrein og bein skylda hv. fjhn. að veiða við tilmælum mínum. Það er lítil ástæða til og ekkert vit í að vera að samþykkja ákvæði, sem sýnilegt er, að breyta þurfi við næstu umr. Jeg tel það óráð og ósið, sem ekki ætti að eiga sjer stað. Jeg býst líka við, að hv. frsm. (JJós) telji ekki starf hv. fjhn. svo óskeikult, að ekki mætti sumt betur fara. Það er þá fyrst, til að nefna misrjetti það, er jeg tel stefnt að með brtt. hv. fjhn., að þeim, sem hafa verið svo óhepnir — jeg vil ekki segja óvarkárir, — að byrja samskonar starfrækslu og þá, er hjer um ræðir, frá síðastliðnum áramótum og þangað til þessi lög öðlast gildi. Jeg fer fram á, að þessu ákvæði verði breytt, svo að lögin nái til allra, sem starfrækja samskonar fyrirtæki, alt þangað til lögin ganga í gildi. Með því móti má bæta úr þessu misrjetti, sem annars ætti sjer stað. Þótt frjáls samkepni sje góð á sinn hátt, þá getur hún líka verið hættuleg — það er skoðun, sem jeg hefi haldið fram bæði fyr og síðar — og ekki síst fyrir þá sök, hve iðnaðarfyrirtæki eru hjer kraftlítil, og það því fremur, sem lítil skilyrði eru hjer fyrir því, að slík starfræksla geti þrifist í stórum stíl. Jeg get þá líka verið hv. meiri hl. sammála um það, að rjett sje að setja nokkrar takmarkanir fyrir því, að fyrirtæki af þessu tægi spretti upp sem gorkúlur á haug, en þó með því skilyrði, að ekki kæmi þungt niður á þeim, sem hafa ekki gert sjer grein fyrir, hváð til stæði. Jeg er sannfærður um, að hv. fjhn, eða meiri hl. hennar, og hv. þingdeild í heild sinni hljóta að sjá, að þessi breyting er sjálfsögð. Jeg hefði kunnað betur við, að gr. kæmist alls ekki inn í frv., því að það eru fleiri en jeg, sem álíta, að þetta atriði sje ekki nægilega athugað. Jeg tók það fram áðan, og vildi gjarnan beina því til hv. nefndar, að mjer þykir óþarflega langt gengið í þessari ívilnun. Það er ekki alllítil upphæð, að ívilnunin skuli nema 250 kr. á hvert tonn. Minna mátti gagn gera. En ef hv. deild er ófáanleg til þess að breyta því, þá mætti minka misrjettið með því að hafa tollívilnunina minni.