07.03.1927
Neðri deild: 23. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2111 í B-deild Alþingistíðinda. (1641)
24. mál, afnám kennarastóls í klassískum fræðum
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg stend aðeins upp til þess að þakka hv. mentmn. fyrir afgreiðslu hennar á frv. En um þau atriði — sem í rauninni er alveg nýtt mál —, sem fljettast hafa inn í afgreiðslu nefndarinnar á málinu, ætla jeg ekki að ræða nú, enda gefst tækifæri til þess síðar.
Jeg er algerlega sammála hæstv. kenslumálaráðherra (MG), að það var rjett af stjórninni að skipa ekki í fræðslumálastjóraembættið, svo að Alþingi gæfist kostur á að segja, hvernig um það skuli fara.