24.02.1927
Neðri deild: 14. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2138 í B-deild Alþingistíðinda. (1662)

37. mál, fjáraukalög 1926

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Jeg hefi eiginlega ekkert að segja um þetta frv. í heild, sem hægt er að láta koma fram við þessa umr. það eru alt saman einstakar upphæðir, hver annari óviðkomandi, sem þótt hefir nauðsynlegt að greiða á árinu 1926 umfram fjárlög. Jeg skal því láta mjer nægja að óska þess, að því verði vísað til fjvn., að umr. lokinni.