29.04.1927
Efri deild: 61. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2151 í B-deild Alþingistíðinda. (1692)
78. mál, fræðsla barna
Frsm. (Jónas Jónsson):
Mentmn. Ed. leggur til, að þetta frv. verði samþykt. Hún álítur, að í þó nokkrum tilfellum sje betra að hafa slíka heimild, sem frv. fer fram á. Einstök fræðsluhjeruð eru oft svo lítil, að erfitt er að hafa þar heilan kennara. Það er því auðsjeð, að töluverð umbót er í þessu fólgin.