29.04.1927
Efri deild: 61. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2153 í B-deild Alþingistíðinda. (1697)

78. mál, fræðsla barna

Ingibjörg H. Bjarnason:

Mentmn. fjekk fræðslumálastjóra á fund með sjer, og hann benti nefndinni á, að ekkert væri athugavert við tillögu hv. þm. A.-Húnv. (GÓ) nema það, að kennarar gætu átt á hættu, að laun þeirra væru rýrð. Ef hægt er að fyrirbyggja, að breyting sú, sem till. fer fram á, rýri laun kennara, er tillagan meinlaus og mikið frekar til bóta. Jeg mun því greiða henni atkv. mitt.