17.05.1927
Neðri deild: 77. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2252 í B-deild Alþingistíðinda. (1741)
18. mál, laun skipherra og skipverja á varðeimskipum ríkisins
Frsm. meiri hl. (Jón Auðunn Jónsson):
Jeg skal ekki tefja tímann fyrir hv. þdm.; þeim er öllum þetta mál kunnugt og þarf ekki að skýra það frekar en gert er í nál. Aðeins vildi jeg bæta því við, að hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) var ekki viðstaddur, þegar málið var afgreitt úr nefndinni; en hinsvegar er svo áliðið þingtímans, að við þurftum að koma nál. í prentun áður en til hans náðist. Veit jeg því ekki um afstöðu hans til málsins.
Hv. 1. þm. Rang. (KIJ) hefir aftur á móti nokkra sjerstöðu í nefndinni, sem hann mun gera grein fyrir.
Úr því búið er að gera þessa menn að sýslunarmönnum ríkisins með lögum, sem afgreidd voru frá hv. Ed. fyrir skömmu, þá leiðir af sjálfu sjer, að við verðum að ákveða þeim mönnum laun. Jeg get ekki trúað, að hv. þdm. vilji láta þingið aðeins tiltaka um skyldur þeirra, en rjettindi ekki.