17.05.1927
Neðri deild: 77. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2254 í B-deild Alþingistíðinda. (1745)

18. mál, laun skipherra og skipverja á varðeimskipum ríkisins

Hjeðinn Valdimarsson:

Hæstv. forsrh. (JÞ) sýndi ekki þá kurteisi að vera viðstaddur, þegar umr. um frv. um strandvarnarskipin fóru fram og jafnframt umr. um laun skipverjanna. Þá var þetta mál nokkuð mikið rætt, og tel jeg óþarft að fara lengra út í það. En það hefir greinilega komið í ljós síðan frá stjórnarinnar hendi, að tilgangur þessara laga er meðal annars sá, að fá á þessi skip lægra launaða menn heldur en yfirleitt á sjer stað á öðrum skipum. Sýnist helst vaka fyrir hæstv. stjórn að geta komið fjölda manna út á sjóinn með lægra kaupi, sem atvinnurekendur geti svo vitnað í. Það segir sig sjálft, að jeg er á móti slíkum lögum. Kaup háseta er samkv. þessu frv. um 100 kr. lægra á mánuði heldur en á öðrum skipum ríkissjóðs, þar sem kaupsamningur er gerður, og á Eimskipafjelagsskipunum.