17.05.1927
Neðri deild: 77. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2263 í B-deild Alþingistíðinda. (1753)
18. mál, laun skipherra og skipverja á varðeimskipum ríkisins
Hákon Kristófersson:
Hæstv. forsrh. (JÞ) furðar á afstöðu minni í þessu máli. Jeg vil taka það fram, að jeg hefi aldrei sagt, að launin væru ósæmileg, og jeg hefi virt þá viðleitni stjórnarinnar að spara.
Annað mál er það, að jeg hefi vítt það, að á tveim öðrum stöðum hjá ríkisstjórninni eru laun miklu hærri en hjer. Þá er það ekki rjett hjá hæstv. ráðh., að ekki hafi komið fram rök þessu til stuðnings. Jeg benti á þennan mismun, þegar málið var hjer til umr., og jeg vil enn á ný benda á, að t. d. 1. stýrimaður hjá Eimskipafjelagi Íslands hefir 530 kr. á mánuði, 2. stýrimaður 440 kr. á mánuði o. s. frv., og er það eigi svo lítill munur.
Hæstv. ráðh. benti á, að stöðurnar væru eftirsóttar, en jeg sje ekki, að meta eigi kaupgreiðslu eftir því.
Það, sem jeg hefi út á kaupgreiðsluna að setja, er, að það er ekkert samræmi í þessu. Nú þegar hæstv. forsrh. segir, að stöðurnar sjeu eftirsóttar, þá vil jeg spyrja: Eru stöður skipstjóra ekki líka eftirsóttar? í 10. gr. frv. er ákveðið, að núverandi skipstjóri haldi launum sínum óbreyttum; ekki er samræmi í lækkunaráttina þar!
Þá fullyrði jeg, af því mjer er það vel kunnugt, að menn þeir, sem rjeðust á skip þessi í fyrra, höfðu von um líka launagreiðslu og hjá Eimskipafjelagi Íslands.
Háttv. þm. N.-Ísf. segir, að jeg haldi því fram, að launin sjeu ósæmilega lág, og mintist um leið á presta og símritara í þessu sambandi. Jeg get ekki sjeð, að laun skipverja á varðskipunum sjeu sambærileg við laun þessara manna, enda kemur þar fleira til greina.
Hann benti á, að við vildum taka einn flokk manna út úr. Það er einmitt gert í frv. Þar er vissum starfsmönnum goldið miður en öðrum í sömu atvinnugrein.
Jeg get ekki borið laun þessara manna saman við laun forstöðumanns stýrimannaskólans, sem hefir frítt húsnæði, ljós og hita. (JAJ: Það hafa þeir líka, ef þeir eru einhleypir). Nú, hefir þá hv. þm. N.-Ísf. ætlast til, að ekki yrðu aðrir en einhleypir menn og piparsveinar á þessum skipum? Hann virðist hafa gengið út frá því. Annars sje jeg ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frekar; deildin mun hvort eð er á sínum tíma leggja sinn dóm á málið. En mjer finst einkennilegt, að nú á síðustu stundu finnur nefndin hvöt hjá sjer til þess að afgreiða málið, einkum þar sem á næsta þingi verða endurskoðuð laun allra embættismanna.
Treysti jeg stjórninni til þess að launa mönnum þessum ekki miður á þessu ári en lagt mun verða til á því næsta.
Þá er heldur ekki hægt að bregða mjer um það, þótt jeg sje andstæður launaákvæðinu, að jeg vilji íþyngja ríkissjóði með óþörfum útgjöldum. Jeg vil aðeins bera rjettlætið fyrir brjósti. Jeg geri ráð fyrir, að í þessar stöður verði ekki valdir aðrir en valinkunnir sæmdarmenn, og hæfir því ekki að fara ver með þá en aðra starfsmenn ríkisins. Læt jeg svo útrætt um þetta frá minni hálfu, þar til við 3. umr., er brtt. mínar munu fram komnar.