17.05.1927
Neðri deild: 77. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2264 í B-deild Alþingistíðinda. (1754)
18. mál, laun skipherra og skipverja á varðeimskipum ríkisins
Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):
í fyrsta sinni í þessum umr. er nú komið með samanburð, sem hægt er að hafa hendur á. Hv. þm. Barð. (HK) nefndi tvær tölur, þ. e. mánaðarlaun 1. og 2. stýrimanns á verslunarskipum Eimskipafjelagsins. Jeg vil gjarnan taka upp þennan samanburð, en geta verð jeg þess, að þessar tölur standa á ábyrgð hv. þm. (HK), því að jeg hefi ekki haft tækifæri til að ganga úr skugga um, hvort þær eru rjett tilgreindar. En gerum ráð fyrir því.
Samkvæmt orðum hv. þm. (HK) hefir 1. stýrimaður á skipum Eimskipafjelagsins 530 kr. í laun mánaðarlega. Jeg býst við, að hv. þm. miði við kauptaxta þessa árs, því að launakjörin munu hafa breyst eitthvað um síðustu áramót. En eftir frv. er 1. stýrimanni á varðeimskipum ríkisins ætlaðar 470 kr. í kaup á mánuði, er hann hefir gegnt starfi sínu í 8 ár, en það hygg jeg vera rjettari samanburð. Hjer er að vísu um 60 króna mun að ræða. En tvens ber að gæta: Í fyrsta lagi hlýtur kaup stýrimanna mjög að fara eftir stærð skipa þeirra, er þeir stýra, og það er mjög mikill stærðarmunur á skipum Eimskipafjelagsins og varðskipunum, og því er ekki nema eðlilegt, að stýrimenn á þeim síðarnefndu hafi mun minna kaup. Í öðru lagi hafa stýrimenn á skipum Eimskipafjelagsins æðimiklu erfiðari stöðu en stýrimenn á varðskipunum. Auk varðstöðu sem skipstjórnarmenn verða stýrimenn á verslunarskipum að hafa alla umsjón með móttöku og afhending farms í lest og úr á höfnum. Staða þeirra er að þessu leyti svo ósambærileg við samskonar stöðu á varðskipum, að mjer þykir þessi munur á kaupi ekki óeðlilegur.
Tökum 2. stýrimann. Hv. þm. (HK) sagði laun slíks manns hjá Eimskipafjelaginu 440 kr. á mánuði. En hjer eftir frv., mælt á sama mælikvarða og áður, 420 kr., þ. e. 20 kr. lægra en á verslunarskipunum. Ef tekið er tillit til aðstæðna, er það heldur ekki óeðlilegur mismunur. Jeg hygg, að háttv. þm. Barð. muni við nánari athugun á málavöxtum sannfærast um, að hjer er ólíku saman að jafna, og fallast á, að eðlilegt sje í samræmi við það, að stýrimannakaup á varðskipunum sje lægra heldur en á verslunarskipum Eimskipafjelagsins.
Hv. 4. þm. Reykv. (HjV) gat þess, að lesnar hefðu verið upp tölur um þetta í sambandi við annað mál, sem heyrði undir annað ráðuneyti og jeg hafði því ekki talið mjer skylt að hlusta á. Upplýsingar, sem áttu við þetta frv., voru lesnar upp þá. Það er í meira lagi óheppilegt að blanda þannig saman tveimur óskyldum málum, og er hjer víti til varnaðar. En jeg hugsa, að jeg geti verið reiðubúinn hvenær sem er og hvar sem er til þess að standa í fyrirsvari fyrir launaákvæðunum í þessu frv., að þau sjeu ekki á neinu sviði óhæfilega lág.
Háttv. þm. Barð. sagði, að til stæði endurskoðun á launalögunum á næsta þingi. Hvað hæft er í því, veit jeg ekki. Það getur vel verið, að einhverjum hafi dottið það í hug, hvort sem úr því verður eða ekki. En verði svipaður hugsunarháttur ríkjandi þá sem nú hefir komið fram í ræðum hv. þm., þá mun þjóðin frekar óska eftir, að þeirri endurskoðun sje slegið á frest fyrst um sinn.