12.02.1927
Efri deild: 4. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2276 í B-deild Alþingistíðinda. (1769)

19. mál, varðskip ríkisins

Jón Baldvinsson:

Svo óþarft sem næsta frv. á undan var, þá er þetta þó hálfu óþarfara. Í þessu frv. felst ekkert annað en tildur og hjegómi, þar sem verið er að reyna að breyta sjómönnunum í sjólið konungsríkisins Íslands. Frv. væri blátt áfram hlægilegt, ef ekki byggi það undir, að verið er að reyna að koma upp dátaflokki í líku sniði og ríkislögreglan átti að vera. Mjer finst liggja í frv., að þetta sje meining hæstv. stjórnar. Þetta eiga að verða starfsmenn ríkisins, vinna eið að stjórnarskránni o. s. frv. — Jeg held satt að segja, að stjórnin hljóti að hafa ákaflega lítið að gera, fyrst hún leggur tíma í að semja slíkan hjegóma sem þetta. Það er auðvitað ætlast til, að þetta sjólið megi ekki gera verkfall. Það á að setja því skilyrði eins og í næsta frv. á undan. Í einu orði sagt er þetta frv. hjegómatildur, sem deildin ætti ekki að líta við, nema þá til þess eins að salta það í nefnd svo rækilega, að það sæi aldrei framar dagsins ljós.