01.04.1927
Efri deild: 42. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2288 í B-deild Alþingistíðinda. (1777)

19. mál, varðskip ríkisins

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Það kom mjer ekki á óvart, þó að hv. 5. landsk. færi að tala enn á ný um tildur og hjegóma í sambandi við þetta mál. Jeg var búinn að heyra þjóta svo í þeim skjá hjer á dögunum. Háttv. þm. finst frv. vera einstaklega fáfengilegt og enga þýðingu hafa fyrir landið, en bara vera til skaða mönnunum, sem eiga að búa við það, o. s. frv. Það er nú svo. Það er vitanlegur hlutur, að þessi hv. þm. er ákafur stjórnarandstæðingur, en hann ætti samt að viðhafa eitthvert hóf í ummælum um mál, sem snerta alt landið og alla þjóðina, eins og landhelgismálið gerir.

Þetta aukna eftirlit landhelgisgæslunnar hefir mætt mikilli andúð og misjöfnum dómum hjá öðrum þjóðum, þeim, sem helst hafa orðið fyrir skakkaföllum vegna aukinnar landhelgisgæslu hjer við land.

Það er í raun og veru ekki óeðlilegt, þótt kvartanir ýmislegar hafi komið fram, einkum þegar þess er gætt, að togaraskipstjórar, sem verða fyrir barðinu á varðskipunum, halla mjög oft frásögn sinni, þegar þeir koma heim til sín eða á þann vettvang, þar sem þeir álíta, að slík frásögn komi að gagni; en að þetta mál mæti þeirri kaldhæðni, sem kemur fram hvað eftir annað hjá þessum hv. þm. (JBald), það þykir mjer furðu sæta. Þessi kaldhæðni, sem hv. þm. sýnir málinu yfir höfuð, býst maður við að sje sprottin af því, að hv. þm. vill gera lítið úr yfirmönnum skipanna, þegar hann er að tala um tildur og hjegómaskap í sambandi við lagasetningu, sem er nauðsynleg, þegar um það er að ræða að koma hjer á laggirnar löglegri landhelgisgæslu, og með því að ala á sífeldri tortryggni gagnvart þessum mönnum. Hv. þm. hefir áður drepið á það, að þeir myndu ekki sýna litla hlutdrægni í sínu starfi, en núna veittist hv. þm. einkum að öðrum skipherranum fyrir það, að hann myndi vera hjegómlegur maður. Jeg skil ekki almennilega, hvert gagn þessi hv. þm. þykist vinna þjóð sinni með þessum ummælum; að því er snertir þann sjerstaka mann, sem hv. þm. var að tala um, þá get jeg fullvissað hv. þm. um það, að ef hann sjálfur er eins laus við hjegómlegt tildur í sínu dagfari eins og sá maður er, þá má hv. þm. vel við una, því að það er langt frá því, að skipherrann á Þór sje nokkur hjegómamaður eða tildursrófa. Hygg jeg, að hv. þm. (JBald) ætti þar heldur að hugsa um að mjela sína eigin köku. (Atvrh. MG: Það gerir hv. þm. (JBald) í Alþýðubrauðgerðinni). Þá fer ríkið heldur ekki varhluta af hæðni háttv. þm., þegar hann er í ræðu sinni að tala um þann vafasama heiður að vera starfsmaður ríkisins. Jeg býst, satt að segja, við því, að hv. þm. muni nú reyna að rökstyðja það betur, hvers vegna það beri að skoða þetta litla ríki, sem við erum borgarar í, þannig, að það sje vafasamur heiður að vera starfsmaður þess. En sú fullyrðing hv. þm. um það, að frv. væri hvergi til bóta þeim mönnum, sem ættu að vera á skipunum, hún kemur nú heldur en ekki í bága við stefnu hv. þm., því að jeg veit ekki betur en að hann telji vanalega öllum málum best borgið þannig, að ríkið hafi þau til meðferðar, því að ríkið á eftir kenningu hv. þm. að reka alt mögulegt. Þessu máli á nú að skipa á þann hátt, að allir menn á skipunum verði starfsmenn ríkisins, og virðist það því ekki eftir venjulegri kenningu hv. þm., að þeirra hlutur verði nokkru verri fyrir það, þótt þeir verði starfsmenn ríkisins.

Háttv. þm. mintist á sjólið í þessu sambandi. Það getur vel verið, að hv. þm. líti á þessa menn sem eitthvert sjólið eða sjóher, en nefndin gerir það ekki. Við höfum tekið það fram í nál. okkar, að við skoðum þá sem sjólögreglu, en ekki sem sjólið. Þessi óánægja, sem hv. þm. mintist á, og vitnaði þar til allra starfsmanna á skipunum, að skipherrum undanteknum, að þeir myndu geta staðfest, að þetta væri svo. En jeg þekki líka nokkuð af þessum mönnum og hefi þekt þá í mörg ár og hefi haft tal af þeim síðan þetta frv. kom fram, og jeg hefi ekki orðið var við neina óánægju hjá þeim; en það getur náttúrlega hafa átt sjer stað, ef hv. þm. hefir verið að fiska eftir óánægju hjá þeim og verið að reyna að troða slíku inn í höfuðið á þeim, að hv. þm. hafi kannske getað fengið þá til að fallast á eitthvað þess háttar. (JBald: Komu þessir menn til hv. þm., eða kom hv. þm. til þeirra?). Jeg hefi hitt þá á förnum vegi, og af því að jeg þekki þessa menn sjerstaklega, og hefi oft hitt suma þeirra, síðan þetta frv. kom fram, hefi jeg átt tal við þá um það og ekki heyrt, að þeir væru neitt óánægðir, svo að jeg held, að þetta sje aðeins tilbúningur hv. þm., eins og hann oft leyfir sjer, og þá er það alt of auðvirðilegt að vera nokkuð frekar að elta ólar við hv. þm. (JBald) um þessa óánægju, sem ekki á sjer stað. En þetta mál er alls ekkert hjegómamál. Það hafa gengið nokkuð misjafnlega til þessa viðskifti Íslendinga að undanförnu við útlenda lögbrjóta hjer við land; við höfum margar frásagnir um viðureignir við þá, og það hafa komið fyrir nokkur slys í viðureigninni við þá, og þó hefir miklu oftar legið við meiri slysförum. (JBald: Og þess vegna hefir stjórnin ætlast til þess, að mennirnir væru ótrygðir). Því hefir verið haldið fram af útlendingum, að við hefðum ekki rjett til margs, sem við höfum gert, t. d. þegar skip hafa verið mönnuð út frá veiðistöðvum og lögbrjótarnir hafa í sumum tilfellum verið teknir fastir, en stundum tekist að sleppa. Þetta hefir stundum verið kallað ránskapur, þegar frá því hefir verið skýrt í útlöndum, og hefir ekki verið álitið viðeigandi athæfi, þar sem oft hefir verið vitanlegt, að regluleg lögregla hefir ekki verið að verki. En þegar við tökum lögreglueftirlitið í okkar hendur, þá er ekkert sjálfsagðara og eðlilegra heldur en að þetta eftirlit sje skipulagsbundið með löggjöf, þannig, að þetta á ekki að vera neitt íhlaupaverk, að einn maður sje sendur út á sjóinn í þetta skiftið og annar í hitt skiftið, heldur á það að vera sjálf lögregla ríkisins, sem að þessu starfar, því að nú er ekki lengur að ræða um hnefarjett, sem stundum liggur við, að hafi orðið að gilda í þessu máli, heldur reglulega löggæslumenn, sem eiga að líta eftir því, að þessi lög sjeu ekki brotin.

Það er víst óhætt að fullyrða, að af þeim málum, sem við höfum með höndum og snerta nokkuð aðrar þjóðir, mun ekkert mál vera nú sem stendur, sem er þess eðlis, að það geti valdið eins miklum ágreiningi og óánægju milli okkar og annara þjóða eins og einmitt eftirlitið með landhelginni. Sjer þá ekki hv. þm., að okkur er nauðsynlegt að láta ekkert ógert til þess að styrkja þá aðstöðu, sem þetta litla þjóðfjelag hefir í viðskiftunum við sjer margfalt stærri og sterkari þjóðir? Það má altaf búast við því, þegar landhelgiseftirlitið er komið í það form, að landhelginnar er gætt af vopnuðum skipum, að þá geti einhverra orsaka vegna komið einhver alvarleg atvik fyrir, t. d. slys, sem menn ekki geta við ráðið, og þá er ekki nema eðlilegt, að eftirgrenslan yrði hafin af hálfu útlendinga, eftirgrenslan í þá átt, á hvaða hátt landhelgiseftirlitið væri framkvæmt og af hverjum það væri framkvæmt, hvaða mentun þeir menn hefðu, sem stæðu fyrir því, og hverskonar menn það væru. Útlendingum kemur ekki til hugar, að það sjeu aðrir en opinberir sýslunarmenn, sem hafa það með höndum. Kæmi það nú upp, að við t. d. hefðum til þess menn, sem enga sjermentun hefðu, er talin væri nauðsynleg í þessum efnum, hefðum menn, sem alls ekki væru sýslunarmenn eða opinberir starfsmenn, heldur blátt áfram leikmenn, þá er jeg ekki í nokkrum vafa um, að það myndi hafa alvarleg eftirköst fyrir þessa þjóð. Íslendingum yrði alls ekki liðið það að láta landhelgiseftirlitið vera í höndum annara manna en reglulegra löggæslumanna, og að því tilskildu, að þeir hefðu nauðsynlega þekkingu til að bera; þeim yrði alls ekki liðið að láta framkvæma þetta af öðrum en slíkum mönnum. Svo fremi sem nokkuð á bjátaði, myndi þetta komast strax upp, og jafnvel með tímanum, þótt ekkert sjerlegt kæmi fyrir, sem framkallaði það. Það er því svo fjarri því, að þetta skipulag sje nokkurt tildur eða hjegómi, að það er þvert á móti aldrei nauðsynlegra, að löggjafarvaldið veiti þeim mönnum, sem eiga að starfa að löggæslunni, hæfilega aðstöðu á sínu sviði en í sambandi við þetta mál. Þetta virðist mjer tæplega geta orðið að deiluefni hjá löggjöfum þjóðarinnar.

Háttv. þm. var eitthvað að tala um einkennisbúna menn, og það er eins og það sje þyrnir í hans augum, að þessir menn hafi nokkurn einkennisbúning. Vill hv. þm. þá, að lögregluliðið í landi hafi nokkurn einkennisbúning? Það er þó svo hjá öðrum þjóðum, að þeir, sem eiga að gæta laganna, eiga að vera einkendir frá öðrum mönnum, og jeg get staðfest það með dálitlu dæmi, sem komið hefir fyrir hjer við land. Í fyrra strauk togari, sem var í haldi í Vestmannaeyjum. Þar voru varðmenn um borð, en hann setti þá yfir í annað skip um leið og hann strauk. Í brjefi, sem jeg hefi sjeð frá skipstjóranum, þar sem hann er að „fóðra“ það, að hann hafi strokið, telur hann það upp meðal annars, að hann hafi ekki getað sjeð það á mönnunum, að þeir væru starfsmenn lögreglunnar, af því að þeir hafi ekki haft neinn einkennisbúning. (JBald: Finst hv. þm. þetta rjettmæt ástæða?). Mjer dettur ekki í hug að halda því fram, að það hafi verið rjett, en jeg er aðeins að benda á, hvernig útlendingar líta á þetta atriði. Þeir eru óvanir því að sjá löggæslumenn án einkennisbúnings. Hv. þm. má ekki skilja mig svo, að jeg sje að verja framferði þessa manns, heldur að það má ekki eiga sjer stað, að útlendingar geti skotið sjer inn undir svona afsakanir. Jeg veit heldur ekki betur en að það hafi komið fyrir hjer á landi, að menn hafi þóst mega leyfa sjer ýmislegt við yfirvöldin, hafi þau ekki borið einkennisbúning í þann svipinn. Útlendingar, sem vanir eru meiri aga en við, leggja enn meira upp úr öllu slíku. Eftir að ríkið er búið að leggja í þann kostnað að kaupa og eignast strandvarnarskip og halda þeim úti til þess að halda uppi lögum og rjetti á landhelgissvæðinu, þá er það nærri því raunalegt að þurfa að standa í stímabraki hjer um það, hvort þeir menn, sem halda eiga uppi lögum og rjetti fyrir okkar hönd, skuli hafa sömu aðstöðu og gerist hjá öðrum siðuðum þjóðum.

Hv. þm. var að tala um það, að jeg mundi ef til vill vera að fara með vitleysu, þar sem jeg gat þess, að meðal annars væri það nauðsynlegt, að löggæslumenn væru sýslunarmenn hins opinbera, vegna þess að skýrslur þeirra yrðu þá skoðaðar sem opinberar embættisskýrslur og því jafngildar sem væru þær eiðfestar, svo fremi að ekki væri hægt að hnekkja þeim með sönnunum. Jeg fór þarna með rjett mál, og mig furðar á því, að hv. þm. skuli ekki vita það, að skýrslur embættismanna eru lögleg sönnun án eiðstaðfestingar, þangað til hægt er að sanna, að þær sjeu rangar. Það getur verið, að hv. þm. hafi einhverntíma heyrt um það, að yfirmenn á dönsku varðskipunum hafi verið látnir sverja í landhelgismálum, en það hnekkir ekkert því, sem jeg sagði. Jeg býst við því, að í þau fáu skifti, sem það hefir komið fyrir, þá hafi það verið af því, að viðkomandi dómari hafi litið svo á, að sú aðferð væri æskileg, af því að hjer væri um útlenda en ekki íslenska embættismenn að ræða. Það er því fjarri því, að jeg færi hjer með neitt það, sem ekki gæti staðist, og haldi hv. þm. áfram að rengja orð mín, þá eru til menn í þessari háttv. deild, sem eru báðum okkur lærðari í þessum efnum og munu geta borið um það, hvor okkar hafi á rjettu að standa. Mjer kemur, eins og áður er sagt, leiðinlega fyrir sjónir andúð og kaldhæðni hv. þm. í garð landhelgisgæslunnar, því að jeg get ekki varist þeirri hugsun, að það er starfið, sem hv. þm. er að setja hornin í, þótt hann einn daginn beini spjótum sínum að hæstv. stjórn, annan daginn að löggæslunni og þriðja daginn að foringjum skipanna. Jeg er á öndverðum meiði við hv. þm., því að jeg álít sjálfsagt, að löggjafarvaldið stuðli að því að efla landhelgisgæsluna sem hægt er, og geri. Þetta starf þannig úr garði, að engin útlend þjóð þurfi að líta niður á þá opinberu starfsmenn, sem við sendum út á hafið, eða geti álitið þá standa lægra en sína eigin löggæslumenn að neinu leyti. Jeg vil gera okkar sýslunarmenn, að svo miklu leyti sem okkur er unt, færa um að halda uppi lögum og rjetti innan okkar landhelgi, eins og aðrar þjóðir láta sínum embættismönnum í tje lagavernd til þess að inna það sama starf af hendi við strendur sinna landa.

Út af ummælum hv. þm. um þann mikilsverða rjett alþingismanna að mega segja og benda á ýmislegt í skjóli þinghelginnar, sem annars varðaði við lög, vildi jeg mega minna á það, að vitaskuld hafa þingmenn þennan rjett, og það er sjálfsagt nauðsynlegt, að þeir hafi hann, en þessum rjettindum fylgir þó allajafna sú skylda, sem ekki liggur neitt ljettara á baki hv. 5. landsk. en annara þingmanna, að bera ekki taumlaust, jafnvel ekki í skjóli þinghelginnar, þeim mönnum sakir á brýn að ósekju, sem standa utan hennar. Til þess hafa þingmenn að vísu lagalegan rjett, en jeg býst ekki við, að nokkur þingmaður sje þannig hugsandi, að hann skoði sig lausan við siðferðilegá ábyrgð á því, hvernig hann fer með þennan dýrmæta rjett, nema ef vera skyldi hv. 5. landsk.