04.04.1927
Efri deild: 44. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2362 í B-deild Alþingistíðinda. (1800)

19. mál, varðskip ríkisins

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Hv. 1. landsk. sagði, að jeg hefði ekki vjefengt þá staðhæfingu hans, að miðstjórn Framsóknarflokksins hefði hvatt landsstjórnina til þess að nota Þór til landhelgisgæslu. Jeg trúi því, að þetta sje rjett hjá hv. þm., og það er skoðun mín, að þetta hafi verið rjett gert. En hvort hv. þm. (JJ) hefir lagt þarna eitthvað inn, sem honum finst, að hann megi altaf vera að taka út á, um það er mjer ókunnugt. Það má vel vera, að hann hafi átt þarna einhvern hlut að máli. En það voru fleiri en hann. Og það gefur hv. þm. engan rjett til þess að vera sífelt að bera brigður á einlægni útvegsmanna, sem studdu málið miklu fyr en Framsóknarflokkurinn sinti því. Þetta tek jeg fram, svo að hv. þm. og aðrir misskilji ekki þögn mína. Jeg álít, að miðstjórn Framsóknarflokksins hafi gert rjett í tillögum sínum um að nota Þór, en jeg vil líka vera rjettlátur í garð annara manna, sem ekki voru í miðstjórninni og ekki áttu sæti á þingi, en studdu málið með ráðum og dáð og fjárframlögum úr eigin vasa. En það voru og eru togaraeigendur í Reykjavík. Þetta verða hv. þm. að gera sjer ljóst, og því vil jeg ekki láta það liggja í þagnargildi, enda er það fjarri mjer að vilja draga nokkuð undan af sannleikanum í þessu efni. En reynslan mun sýna síðar, hvor rjettara hefir fyrir sjer að því er snertir þetta mál. Það verður því ávalt til hollustu, að sem reglulegast og best skipulag sje á þessu starfi, en ekki látið svífa í lausu lofti eins og hv. 1. landsk. vill sætta sig við.