07.05.1927
Neðri deild: 69. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2395 í B-deild Alþingistíðinda. (1816)

19. mál, varðskip ríkisins

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Jeg get ekki neitað því, að mjer brá heldur í brún, þegar jeg sá álit hv. 1. minni hl. allshn. á þskj. 503, og sá það, að tveir hv. þm., annar, sem er búinn að sitja alllengi á þingi, en hinn nýr, hafa tekið frv., sem hefir legið hjer fyrir deildinni og verið vísað til annarar nefndar, og sett það inn í annað óskylt mál, sem til allshn. var vísað.

Jeg býst við, að þessir hv. þm. viti það, að þetta mál heyrir undir annað ráðuneyti en það, sem til þeirra var vísað. Öll launamál heyra undir fjármálaráðuneytið.

Nú hljóta allir að sjá, að þetta er mjög óheppilegt. Í fyrsta lagi vegna þess, að þegar að því kemur, að leggja á lögin fyrir konung til undirskriftar, þá kemur fram vafi um það, hvor ráðherra eigi að undirskrifa þau með honum, og svo öll framkvæmd laganna síðar. Þetta sýnir því mjög mikinn viðvaningshátt í löggjafarstarfinu hjá þessum hv. þm.

Jeg hefi nú spurt hv. form. fjhn. (KIJ), hvort nefndin hafi fallist á þessa meðferð málsins, og jeg hefi fengið þau svör, að hann hafi ekki heyrt á þetta minst fyr en nál. á þskj. 503 kom fram. Þetta er nú bara formshlið málsins. Jeg verð að segja það, að till. þessara tveggja hv. þm. ganga mörg spor aftur á bak, í samanburði við frv. eins og það kom frá stjórninni og eins og það kom frá hv. Ed., þó að hún breytti því ekki til bóta. Þar voru útgjöld ríkisins heldur aukin.

Við meðferð launamálsins í hv. Ed. kom það fram, að laun yfirvjelstjóra væru of há í samanburði við laun annara, t. d. stýrimanna. Á því get jeg ekki gefið aðra skýringu en þá, að alt fram að þessu mun hafa verið mikil ekla á vjelstjórum, og því hafa laun þeirra yfirleitt orðið há, og miklu hærri hjer en vjelstjóralaun í nágrannalöndunum. Stjórnin sá sjer því ekki fært annað en miða við ástandið eins og það er.

En nú hafa þessir tveir nefndarmenn allshn. komið fram með brtt. um allmikla hækkun á láunum vjelstjóra, og ekki á byrjunarlaunum þeirra, heldur lokalaununum, einmitt þeim, sem lengst verða greidd, af því að aldurshækkunin kemur svo fljótt.

Þetta sýnir, að hv. allshn. er ekki fær um að taka málið úr höndum þeirrar nefndar, sem því var vísað til. Jeg verð að segja það, að launahækkun gat hvergi komið ver niður en á þessum lið, sem þessir hv. þm. báru niður á.

Þá hafa þessir hv. þm. felt niður úr till. sínum og ætlast til, að niður fjelli úr frv. ákvæði um laun annara fjölmennra starfsmannaflokka á þessum skipum, nefnilega háseta og kyndara, og einnig ákvæði um laun stýrimanna, annara en 1. stýrimanns.

Jeg hefi nú heyrt það, að það eigi að vera eitt númerið í kosningabaráttunni hjá andstæðingum stjórnarinnar, að hún sje að stofna stóran flokk embættismanna með. þessum lögum.

Út af þessu tel jeg mjer skylt að taka það fram, að það verður ekki sparnaður fyrir ríkið, að laun þessara manna sjeu óákveðin. Jeg er þvert á móti sannfærður um það, að það verður dýrara fyrir ríkissjóð í bráð og lengd, ef launin eru ekki ákveðin með lögum. Dýrtíðin hefir vitanlega farið minkandi, en verðlagið er þó ekki komið á það stig, sem það kemst, þegar peningarnir eru komnir í gullgildi. Það er löng og erfið leið eftir.

Reynslan sýnir, að laun þeirra, sem hjá ríkinu vinna, hafa lækkað svo, að fyrir hverjar 178 kr., sem greiddar voru 1925, eru greiddar 144 kr. í ár, og enn er fyrirsjáanleg allveruleg lækkun við næstu áramót.

Hjá þeim, sem fá laun sín eftir reglum ríkisins, hafa þau lækkað um ca. 25%, 34 kr. af hverjum 178 kr., og þessi lækkun kemur án þess að nokkuð þurfi fyrir henni að hafa frá hálfu ríkisins.

Jeg er nú nýbúinn, að gefnu tilefni, að sýna fram á það, að kennarakaup hefir lækkað um 20% eftir launalögunum, en mjer er ekki kunnugt um, að stundakenslukaup hafi lækkað um einn eyri síðan það var hæst.

Jeg verð að segja það, að það er mjög óviðfeldið og lýsir reglulegum viðvaningshætti hjá hv. 1. minni hl. allshn., að upp í frv. taka þeir ákvæði um laun skipstjóra, 1. stýrimanns, vjelstjóra og svo vikadrengja, en þegja um laun allra hinna, sem þar liggja á milli. Þeir grípa á báðum endum, en sleppa öllum hinum, sem vitanlega er langmestur hluti þeirra manna, sem á skipunum vinna. Þetta á því alt að vera í stjórnarinnar hendi, og það sýnir óneitanlega mikið traust þessara hv. þm. á stjórninni, að þeir vilja láta þingið afsala sjer þeim rjetti, sem það hefir til að ákveða laun þessara manna, í hennar hendur.

En jeg vil segja hv. flm. till. á þskj. 503, að þingið gegnir alls ekki sinni skyldu í þessu máli, ef það sleppir öllum ákvæðum um það, hve mikið kaup skuli greiða þessum starfsmönnum.

Það er því till. mín, að við atkvgr. verði allar þær brtt. á þskj. 503, sem snerta frv. um laun skipherra og skipverja á varðskipum ríkisins, feldar, og jeg vona, að hæstv. forseti sjái sjer fært að haga atkvgr. svo, að hægt sje að fella þessar brtt. án þess að það verði frv. því, sem hjer liggur fyrir, að öðru leyti að grandi.