07.05.1927
Neðri deild: 69. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2437 í B-deild Alþingistíðinda. (1830)
19. mál, varðskip ríkisins
Frsm. 1. minni hl. (Jörundur Brynjólfsson):
* Jeg hefi leyft mjer að flytja brtt. við 3. gr. Það er, að nánar sje ákveðið en í greininni, með hvaða fyrirvara skipverjar geti sagt upp starfi sínu, og eins ef yfirmenn segja þeim upp, þá sje það með tilteknum fyrirvara. Jeg tel heppilegra fyrir báða aðilja, að þetta sje skýrt fram tekið, en ekki óákveðið, þótt þá yrði farið eftir ákvæði um uppsögn sýslunarmanna ríkisins. Hæstv. atvrh.. sem nú mun bundinn í hv. Ed., hefir tjáð mjer, að hann geti fallist á þessa till. mína og þætti betur, ef hún yrði samþykt.
Um brtt. hv. þm. Barð. (HK) vil jeg segja það, að jeg tel ekki rjett, að hún verði samþykt.
Þau ákvæði, sem hann vill nema brott úr 4. gr. 1. málsgr., get jeg ekki betur sjeð en að þurfi að standa, og teldi jeg miður farið, ef brtt. yrði samþykt. Sje jeg svo ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum.