07.05.1927
Neðri deild: 69. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2439 í B-deild Alþingistíðinda. (1833)

19. mál, varðskip ríkisins

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Jeg vil lýsa yfir því, að jeg hefi ekkert að athuga við brtt. á þskj. 558, frá hv. 2. þm. Árn. (Jör B). Tel jeg hana til bóta og vil mæla með því, að hún verði samþykt. Öðru máli er að gegna um brtt. á þskj. 553, frá hv. þm. Barð. (HK). Hana tel jeg ekki til bóta. Hv. þm. mun ekki hafa verið viðstaddur, er jeg mintist á aðfinslur hans við 4. gr. við 2. umræðu málsins.

Nú hefir háttv. frsm. 1. minni hl. skýrt, hvernig í þessu liggur, að skipherra hefir vald til þess að víkja burt bæði þeim mönnum, sem hann hefir sjálfur ráðið, og þeim, sem ráðnir eru af stjórninni. Hann á að vera einráður um þá menn, sem hann hefir sjálfur ráðið, og virðist það ekki nema rjett, að sama vald, sem ræður mennina, víki þeim frá. En þegar um þá menn er að ræða, sem ráðuneytið hefir ráðið, skal hann bera frávikninguna undir það, og ræður það úrslitum.

Þetta er það, sem felst í 4. gr.