07.05.1927
Neðri deild: 69. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2440 í B-deild Alþingistíðinda. (1834)
19. mál, varðskip ríkisins
1834Hákon Kristófersson:
* Jeg ætla aðeins að gera örstutta athugasemd. Þrátt fyrir skýringu hv. frsm. 1. minni hl. og yfirlýsingu hæstv. atvrh. er jeg enn sömu skoðunar. Það liggur sitthvað í hugtakinu að segja upp stöðu og að víkja frá stöðu. Hæstv. atvrh. benti á, að það væri eðlilegt, að sama vald, sem rjeði mennina, viki þeim frá stöðu. Þá fer að verða nokkuð lítið úr því að kalla þá sýslunarmenn ríkisins, ef það hefir ekki framkvæmdarvald til slíks, en eftirlætur það skipherra. Jeg er því algerlega mótfallinn, að hann sje einráður um slíkt. Jeg lít svo á, að ef kalla á menn þessa sýslunarmenn ríkisins, þá víki skipherra þeim frá í umboði ráðuneytisins. Eftir því er líka komin fram brtt. frá hv. frsm. 1. minni hl. viðkomandi uppsögn frá hvorum aðilja; þar lítur hann auðsjáanlega ekki svo á, að uppsögn og brottvikning sje eitt og hið sama. Þar hefir skipherra vald til þess fyrir hönd ráðuneytisins að segja mönnum upp stöðu; hið sama vald virðist mjer hann þurfa til þess að víkja þeim mönnum úr stöðu sinni, sem óhæfir reynast. Til öryggis fyrir þessa menn vil jeg, að ráðuneytið samþykki slíkar ráðstafanir. Ef hv. deild finst þessi till. mín ekki eiga rjett á sjer, verður hún látin fara sömu leið og vant er um slíkar till., en jeg held því enn fast fram, að till. sje til bóta en engra skemda á frv.
Læt jeg svo úttalað um þetta frá minni hálfu, enda er það mjer ekkert kappsmál.
*Ræðuhandr. óyfirlesið.