14.05.1927
Efri deild: 74. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2448 í B-deild Alþingistíðinda. (1841)

19. mál, varðskip ríkisins

Jón Baldvinsson:

Mjer leist ekki á blikuna, þegar hv. þm. Vestm. fór að vitna í Prjedikarann í máli þessu. Jeg hjelt, að það lægi nær honum að sverja við þann gula í Vestmannaeyjum í stað Prjedikarans. Annars er það ekki einleikið, hvað hv. þm. verður ofsareiður, þegar minst er á þetta mál. Það er eins og engin kritik á því megi koma fram og ekki megi segja, að menn þeir, sem staðið hafa fyrir landhelgisgæslunni undanfarið, sjeu annað en dýrlegir englar. Ef hv. þm. hefði góða samvisku fyrir hönd þessara manna, sem hann er altaf að hæla, þá þyrfti hann ekki að nota þær upphrópanir um þá, sem hann altaf hefir gert. Jeg hygg, að hann komi með því aðeins í veg fyrir það, að menn komist að kjarna málsins. Jeg get ekki sjeð, að það sje nein svívirðing í garð þessara manna að finna að landhelgisgæslunni og vilja hafa hana góða. Hvaða Íslendingur trúir þeirri yfirstjórn landhelgisgæslunnar, sem studd er af togaraeigendum? Jeg held, að hv. þm., þegar hann er að forsvara landhelgisgæsluna, sje ca. 31/2 mílu frá sannleikanum. Hann sagði, að flokksbróðir minn í hv. Nd. hafi orðið fyrir opinberri vanvirðu út af máli þessu. En það hefir nú verið sýnt fram á það, að þeir menn, sem trúað er fyrir landhelgisgæslunni, annast hana ekki eins vel og þeir ættu að gera. Það er sannarlega ekki til þess að ala þá upp í dugnaði og samviskusemi, ef hæstv. stjórn og flokkur hennar verja slydduskapinn, sem þeir kunna að gera sig seka í. Hvers vegna var varðskipið ekki við Snæfellsnes, þegar togararnir voru þar að veiðum í vetur og fiskigangan var þar fyrir innan landhelgislínu? Hví var varðskipið þar ekki allan tímann? Svari hv. þm. því. Það hafði ekki annað að gera. Ef hv. þm. getur ekki svarað þessu og skýrt frá ástæðunni, þá er full ástæða til að vera tortrygginn. Jeg hefi vikið að þessu áður, en hann svaraði þá engu nema smáskætingi, eins og nú í síðustu ræðu sinni. Það var svo sem auðvitað, að háttv. þm. þyrfti að fara út í Prjedikarann og í látna þingskörunga um orð gagnvart mjer, þar sem hann mintist á nokkur orð, sem Bjarni heitinn Jónsson frá Vogi ljet falla í umr. einu sinni í hv. Nd. Jeg hygg, að Bjarni hafi ekki notað þau orð í sömu merkingu og hv. þm. (JJós) vill leggja í þau. Jeg veit ekki, hvort hv. þm. vill skríða eftir bökum alþýðunnar, en hjelt þó, að hann mundi þó ætla sjer að komast á hennar bökum inn í þingið, en þar ætlaði hann sjer að vera fulltrúi svo sem 50–60 útgerðarmanna. Því hvenær, sem kemur fyrir mál, er horfir til heilla almennings, tollamál eða mál, er horfa til breytinga til batnaðar á kjörum alþýðunnar, þá rís háttv. þm. (JJós) og flokksmenn hans altaf á móti því. Og mjer þykir leitt, að háttv. þm. hefir farið hríðversnandi í þeim fjelagsskap, sem hann hefir verið í síðustu 4 árin á Alþingi, eins og þegar óskemt epli er látið í skáp hjá skemdum eplum, þá tekur það í sig skemdirnar. Þannig hefir því verið farið með hv. þm. hjer á Alþingi.

Hv. þm. segist vera viðbúinn að taka málstað mannanna á strandvarnarskipunum. Jeg veit, að hann er svo góður kunningi og hefir svo gott hjarta, að það muni hlaupa með hann í gönur, svo að hann finni ekki þær þungu sakir, sem bornar eru á þá og sem staðfestar hafa verið í prófum þeim, sem haldin hafa verið, — um það, að landhelgisgæslan sje ekki í góðu lagi. Jeg þekki menn þessa ekki, nema lítið eitt annan manninn. Honum var einu sinni falið hjer mikið vald, og gerði hann sig þá að nokkurskonar kongi, gaf út tilskipanir, sem ekki aðrir en konungur og Alþingi sameiginlega geta annars gefið út. Jeg get ekki trúað því, að maður, sem hagar sjer svo, geti stjórnað svo vel fari.

Það, sem hv. þm. sagði um vinnutímann á varðskipunum, er ekki rjett. Mjer er kunnugt um það, að kyndararnir á þeim vinna að jafnaði 10–12 stundir í sólarhring, og þegar togarar eru teknir, þá vinna menn á skipunum mjög lengi — alt upp í sólarhring, og fyrir þann tíma er þeim ekki ætlað sjerstakt kaup, eins og á verslunarskipunum.

Jeg læt hjer nú staðar numið, en jeg veit, að hæstv. forseti lætur mig fá stutta athugasemd til þess að bera af mjer sakir, ef hv. frsm. skyldi aftur fara í ofsafenginn upphrópunartón, eins og áðan; það fer honum heldur ekki neitt vel.