25.03.1927
Neðri deild: 38. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2616 í B-deild Alþingistíðinda. (1894)

23. mál, járnbrautarlagning og virkjun Urriðafoss

Jakob Möller:

Jeg á brtt. á þskj. 221 og tvær orðabrtt. við þær aftur á þskj. 244. Jeg get að ýmsu leyti þakkað háttv. nefnd, hvernig hún hefir tekið í till. mínar, þar sem hún hefir fallist á sumar þeirra. En á aðrar vill hún ekki fallast, og skilst mjer, að það hljóti að stafa af misskilningi hjá hv. nefnd. Hvað viðvíkur 1. brtt., um að 3. gr. falli niður, bar háttv. frsm. (KIJ) því einu við, að það væri óaðgengilegt vegna þess, að samskonar grein hefði staðið í frv. um virkjun Dynjandisár. Það liggur í hlutarins eðli, að þótt þörf hafi verið fyrir þetta ákvæði þar, þá er ekki víst, að nein ástæða sje til þess að hafa það í þessu frv. Eftir því, sem jeg hefi skilið þetta, er heldur engin ástæða til þess að hafa ákvæði 3. gr. hjer. Það er ekki gefið út annað en að fjelag það, sem um sjerleyfið sækir, standi sjálft fyrir framkvæmdunum. Það þarf því ekki sjerstaka heimild til undanþágu frá sjerleyfislögunum, þar sem framsal á ekki að geta komið til greina nema með samþykki Alþingis. Mjer finst, þar sem á næstsíðasta þingi voru sett sjerleyfislög og það var lagt mikið kapp á það af meiri hl. þessarar deildar að fá inn þetta ákvæði, að framsal á sjerleyfi skuli borið undir þingið, þá sje það óviðkunnanlegt að vera þing eftir þing að veita undanþágu frá þessu ákvæði. Það er auk þess ekki víst, að sjerleyfishafi þurfi að nota þessa heimild, því að ekki er vitað, hvort Titan ætlar sjer að framselja sjerleyfið. En ef fjelagið ætlar sjer að framselja sjerleyfið, þá eru allar líkur til þess, að leyfi til að framselja fáist, ef sjerleyfið fæst á annað borð. Hv. frsm. segir, að þessi brtt. geri sjerleyfið óaðgengilegt. Þetta er aðeins fullyrðing út í bláinn, gerð til þess að hræða háttv. þm. til þess að halda fast í þetta ákvæði. Það er alt öðru máli að gegna um Dynjandisjerleyfið. Jeg hefi tekið það fram áður, að virkjun Titans er miklu meiri heldur en Dynjanda. En í sjerleyfislöggjöfinni er gerður mikill munur á því, hvort um mikla eða litla virkjun er að ræða. Dynjandi mun ekki vera nema Við af því vatnsafli, sem til mála getur komið að virkja í Þjórsá. Það liggur því í augum uppi, að það er fjarri því, að það sje sanngjarnt, að slegið sje af kröfunum, þegar um svona stórfelda virkjun er að ræða, þótt slíkt sje gert þegar ræða er um minniháttar virkjun. Menn athugi bara muninn á þessu í sjerleyfislöggjöfinni. Mjer finst því alveg sjálfsagt að samþykkja þessa brtt. mína og fella 3. gr. niður, og halda fast við það, ef þarf að framselja sjerleyfið, þá komi til kasta Alþingis að samþykkja það á ný. Það er ekki sama, hver það er, sem á að virkja Þjórsá og reka stóriðju rjett við bæjarvegg Reykjavíkur. Það er ekki sama, hvort það er frændþjóð okkar eða geróskyldar þjóðir, t. d. Englendingar, Ameríkumenn eða jafnvel Kínverjar eða Japanar. Jeg verð að halda fast við það, að í engu verði til slakað í þessu efni.

Þá hefir nefndin fallist á II. brtt. mína, enda tekið fram, að það, sem í henni felst, hafi einnig verið tilgangur frv. En jeg hefi nú komið með viðaukatill. við hana á þskj. 244, þar sem því er bætt við, að sporvíddin skuli vera að minsta kosti 1,067 m. Það er hið sama sem Sverre Möller gerði ráð fyrir í upphafi, en síðar hefir vegamálastjóri gert ráð fyrir því, að mætti mjókka þetta. En það er varlega í það farandi að hafa sporvíddina mjóa, vegna snjóa og áfreða, og því hefi jeg tekið þetta fram.

Þá er hið sama að segja um tvær fyrstu brtt. undir tölulið III; þœr valda ekki ágreiningi og nefndin felst á þær. Enda hefir því verið haldið fram við umr., að skilja beri 9. gr. frv. svo, sem ráðherra eigi að ákveða flutningsgjöldin og hefði eftirlit með rekstri járnbrautarinnar. í 2. brtt. er efnisbreytingin á þá leið, að í stað „framlags“ í 9. gr. komi „matsverð“, það er að segja, ef ríkissjóður tekur við brautinni, þá greiði hann fjelaginu matsverð hennar á þeim tíma, að frádregnum hluta ríkissjóðs, eins og jeg hefi bætt við í viðaukatill. á þskj. 244. Það liggur í hlutarins eðli, að þetta er rjett. Eins og hv. frsm. tók fram, getur gengið breyst á þeim tíma, frá því að brautin er bygð og til þess tíma, er ríkissjóður tekur við henni. Þó ber ekki eingöngu á þetta að líta, heldur líka hitt, að á sama tíma getur brautin gengið úr sjer, og er því með ákvæði till. ætlast til þess, að fram fari mat, sem tekur fult tillit til rýrnunar. Þetta er sjálfsagt, því að sjerleyfishafi á ekki rjett á því að fá fult framlag sitt, hvað gömul sem brautin er, þegar ríkissjóður tekur við henni, heldur sannvirði hennar eftir ástandi því, sem hún er í á þeim tíma, sem matið fer fram.

Þá er það 3. liður III. brtt. og síðasta brtt., sem hv. nefnd hefir ekki getað fallist á. Þessi 3. brtt. fer ekki fram á annað en það, að það sje ríkisstjórnin, en ekki sjerleyfishafinn, sem ráði yfir járnbrautinni. Annað er ekki efni hennar. Þetta segir nefndin, að sje mjög óaðgengilegt fyrir sjerleyfishafann. Við vitum ekkert, hverjir verða sjerleyfishafar, en samt er tilætlun nefndarinnar, að þeir ráði yfir þessu samgöngutæki, en ekki íslenska stjórnin. Jeg skal játa, að í brtt. er farið nokkuð langt til þess að tryggja stjórninni yfirráðin, þar sem svo er ummælt, að járnbrautin með öllu tilheyrandi verði eign ríkissjóðs, ef sjerleyfishafi vill ekki hlíta úrskurði ráðherra út af ágreiningi um rekstur brautarinnar, en þetta þýðir ekki annað en það, að völdin yfir járnbrautinni eiga að vera óskoruð í höndum stjórnarinnar. En þetta telur nefndin ekki aðgengilegt. En hv. deild verður að skera úr því, hvor þessara aðilja eigi að ráða yfir járnbrautinni.

Þá get jeg ekki annað en furðað mig mjög á því, að nokkur skuli vera á móti síðustu brtt. minni. Hún fer ekki fram á annað en það, sem bæði stjórnin og nefndin hafa vikið að, að til mála gæti komið, nefnilega að fjelagið setji tryggingu fyrir framkvæmdum. Það er nú komin fram varatillaga frá hv. 4. þm. Reykv. (HjV), um að meta trygginguna í krónum, hafa hana 100 þús. kr. Eftir minni till. er ekki hægt að segja, hve há tryggingin er; það fer eftir því, hve mikils virði vatnsrjettindi og fasteignir fjelagsins hjer á landi eru. Það er spurning, hvort það verður yfir 100 þús. kr. virði, ef alt strandar, en það kemur ekki til, að fjelagið greiði nokkra tryggingu nema sú verði raunin á. Því er það mikil spurning, hvort brtt. mín er óaðgengilegri eða meiri steinn í götu fjelagsins en brtt. hv. 4. þm. Reykv., sem heimtar 100 þús. kr. peningatryggingu eða tryggingu í banka. Sú trygging hugsa jeg, að sje erfiðari fyrir fjelagið, ef það trúir því, að það geti komið þessu í framkvæmd, hafið verkið og haldið því áfram. En þá er trygging sú, sem jeg fer fram á, langhandhægust og alveg útlátalaus. En ef fjelagið hefir sömu trú og jeg, að þetta sje aðeins hálmstrá, sem reynt er að grípa í, til þess að gera tilraun til þess að bjarga einhverju af því, sem búið er að leggja í þetta fjelag, þá skil jeg vel, að það vilji halda í þessi rjettindi, til þess að geta komið á ný síðar til þess að fá sjerleyfi. Ef svo er, þá er þessi brtt. mín óaðgengileg fyrir fjelagið. En nú er þetta frv. borið fram í trausti þess, að fjelagið geti komið fyrirtæki þessu í framkvæmd, og því get jeg ekki skilið, hvers vegna hv. frsm. telur brtt. þessa óaðgengilega. Það skyldi þá helst vera vegna þess, að vatnsrjettindin og fasteignirnar væru svo veðbundnar fyrir, að engin eign væri í þeim lengur og fjelagið gæti þess vegna ekki sett þessa tryggingu, því að ef þessar eignir eiga að vera trygging, þá verða þær að vera óveðsettar. En ef þær eru toppveðsettar, þá væri æskilegt, að það upplýstist, því að það kynni að hafa þýðingu fyrir þetta mál. Jeg sje ekki betur en að allar mínar brtt. sjeu sjálfsagðar og það sje tæplega forsvaranlegt að afgreiða frv. þetta án þeirra, ef það er þá ekki meiningin að auglýsa það fyrir alþjóð manna, bæði hjer og erlendis, að hjer sje aðeins að ræða um braskútboð á okkur. (MJ: Er þá forsvaranlegt að afgreiða frv. með þessum brtt. ?). Hv. 2. þm. Reykv. (MJ) var eitthvað að tala um prófstein í sambandi við þetta mál við 2. umr. Hjerna er prófsteinninn. Jeg hefi ekki ástæðu til þess að segja meira um þessar brtt. mínar. Áður hefi jeg talað um málið frá almennu sjónarmiði og þarf ekki að endurtaka það.

Um brtt. frá öðrum hv. þm. þarf jeg ekki að fjölyrða. Jeg vil þó biðja hv. samgmn. að bera brtt. sínar á þskj. 246 saman við það, sem fram kom í umr. við 2. umr. Þá sagði hv. frsm., að fjelagið væri skuldbundið til þess að framleiða tilbúinn áburð. En nú ber nefndin fram brtt., sem ber það með sjer, að fjelagið ætlar sjer ekki að skuldbinda sig til þess. Hví skyldi nefndin vera að breyta orðalagi brtt. hv. þm. Str. (TrÞ) þannig, að fjelagið skuli skylt að láta af hendi svo og svo mikið af köfnunarefnisáburði „þegar komin er á fót vinsla köfnunarefnisáburðar“, ef fjelagið ætlaði sjer að vinna köfnunarefnisáburð? Jeg skil ekki í því, að fjelagið ætli sjer að leggja fyrir sig köfnunarefnisvinslu. Það gæti aldrei borgað sig, því að hjer er markaðurinn lítill og fjelagið yrði þá að keppa við framleiðendur í markaðslöndunum. Jeg veit nú að vísu ekki, hvað sjerleyfishafi ætlar sjer að gera; mjer er ekki kunnugt um neitt, en þetta viðfangsefni getur hann ekki lagt stund á, enda fer fjarri því, að hann sje skyldur til þess samkvæmt frv., þótt vitanlega mætti taka slíkt fram í sjerleyfinu. Ef samþ. yrði brtt. hv. þm. Str., þá væri líka þessi skylda ótvíræð, en með breytingu hv. nefndar fellur hún alveg niður.