20.04.1927
Efri deild: 54. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2830 í B-deild Alþingistíðinda. (1960)
23. mál, járnbrautarlagning og virkjun Urriðafoss
Jón Baldvinsson:
Jeg vil aðeins varpa þeirri spurningu fram, hvort hæstv. atvrh. eða einhvern forgöngumanna þessa máls hafi dreymt nokkuð síðan síðast var á það minst um væntanlegar verksmiðjur, eða rámar nokkuð í þessar 60 milj. kr., sem á vantar til þess að fyrirtækið komist til fulls á laggirnar. Fái jeg ekkert svar, þá er það af því, að þeir góðu herrar vita ekkert frekar en síðast.