20.04.1927
Efri deild: 54. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2843 í B-deild Alþingistíðinda. (1966)
23. mál, járnbrautarlagning og virkjun Urriðafoss
Jóhann Jósefsson:
Jeg hefi fylgt þessu máli með atkvæði mínu hjer í deildinni, þó að jeg hafi ekki sjerstaklega gert grein fyrir því. En jeg vildi nú með nokkrum orðum skýra, hvers vegna jeg hefi aðhylst það, þrátt fyrir hin ýmsu mótmæli, sem risið hafa gegn því.
Það er vitanlega ekkert hægara, þegar verið er að ræða um svona stórfeldar framkvæmdir, en að gera þær tortryggilegar og draga í efa, að úr þeim geti orðið.
Mjer hefir verið það ljóst frá upphafi, að ýmsir örðugleikar myndu verða á því að koma þessu öllu í framkvæmd. En jeg get tekið undir það með háttv. 6. landsk. (JKr), að samgöngubætur við Suðurlandsundirlendið, til þess að bjarga ræktuninni austanfjalls, sjeu svo mikið atriði, að ekki megi láta þessa von um framkvæmdir í þessa átt ónotaða. Á það hefir líka verið bent af hæstv. atvrh., að tíminn, sem þingið er bundið við þetta sjerleyfi, sje svo mjög takmarkaður, að með honum sje járnbrautarmálinu ekki skotið á lengri frest en gera þarf af öðrum ástæðum.
Mjer finst ekki þurfa að nefna þetta sjerleyfi í sambandi við t. d. sjerleyfið um saltvinslu úr sjó og sjerleyfið um járnvinslu úr sandi, því að þar fór þingið ekki eftir öðru en lausum hugmyndum, en hjer liggur fyrir ítarleg rannsókn. Sama má segja um Dynjandisársjerleyfið, sem veitt var á síðasta þingi; þar lágu fyrir allábyggilegar rannsóknir, enda þótt ekkert verði úr því, að það sjerleyfi verði notað, en það er nú ósannað enn.
Aðalástæðan fyrir því, að jeg fylgi þessu máli, er vonin um samgöngubótina við hjeruðin austanfjalls. Hitt atriðið, sjerleyfið til fossavirkjunar, fælir mig ekki, því að jeg er þess fullviss, að fossarnir verða aldrei beislaðir nema með erlendu fjármagni og sjerþekkingu. Með þessu er jeg því alls ekki, eins og sumir háttv. þm. virðast gera, að opna mjer leið til þess að geta sagt, ef ekkert verður úr framkvæmdum í þessu efni, að jeg hafi ekki fylgt málinu nema að hálfu leyti.
Í frv. þessu er skýrt tekið fram, hve mikið tillag ríkissjóðs skuli vera til þessa fyrirtækis. Sömuleiðis er það ákveðið, hversu miklar framkvæmdir skuli gerðar, áður en tillag ríkissjóðs fellur til útborgunar. Virðist því alltryggilega um þessa hluti búið.
Þá liggur fyrir brtt. á þskj. 393, þar sem háttv. 1. landsk. vill tryggja það, að ríkissjóður sje á engan hátt ábyrgur fyrir skuldbindingum sjerleyfishafa. Brtt. þessari gæti jeg fylgt, ef síðari hluti hennar væri feldur burtu. (JJ: Jeg tek síðari hluta tillögunnar aftur). Úr því svo er, þá fylgi jeg tillögunni, því að jeg tel þetta ákvæði vera til bóta.
Með þessum forsendum mun jeg fylgja máli þessu út úr deildinni.